Fyrir svefninn.

Þorleifur ríki á Háeyri var kvenhollur talinn.
Hann sagði eitt sinn svo frá:
,, Ég gekk að vetrarlagi með stúlku austur að hraunsá
og settist hjá henni í laut.
Þá skall allt í einu á útsynningshríð, en hvorugt nefndi að hætta ."
                    -------------------------
Sigurður Þórarinsson náttúrufræðingur var einu sinni spurður
að því, hvort hann teldi kynvillu ættgenga.
,, Varla ef hún er iðkuð eingöngu,"
svaraði Sigurður
                 ---------------------------
              Kveðið í baði á gamlárskvöld

                    Ég til nýja ársins lít
                    augum björtum meður.
                    Af mér þvæ ég allan skít
                    ársins þess sem kveður.

                                       Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt

Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.5.2008 kl. 21:01

2 Smámynd: Tiger

  

Alltaf jafngott að kíkja á þig Milla mín fyrir svefninn - enda kofinn þinn aldrei tómur ljúfan! Knús á þig og ljúfa drauma.

Tiger, 26.5.2008 kl. 21:26

3 Smámynd: Rannveig Þorvaldsdóttir

Takk fyrir skemmtunina  og góða nótt Millukrútt

Rannveig Þorvaldsdóttir, 26.5.2008 kl. 21:37

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góða nótt Milla mín! Knús og kossar

Huld S. Ringsted, 26.5.2008 kl. 22:25

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða nótt elsku Milla mín og ljós til þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.5.2008 kl. 00:08

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gott að fá bros fyrir nóttina og maður gengur að því vísu hjá þér Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 27.5.2008 kl. 01:19

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir innlitin skjóðurnar mínar, ykkur finnst gaman að kíkja á mig fyrir nóttina, en ég elska að kíkja á ykkur á morgnanna.
                Eigið góðan dag í sólinni
                   Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.5.2008 kl. 07:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband