Fyrir svefninn.

Einn skjálfti í viðbót, manni bregður, það er ekki skrítið.
Vonandi fer þetta að hætta og guð veri með öllum
þeim sem á þessu svæði eru.

Smá til að hlæja að.

Tveir skattþegnar voru að blaða í útsvarsskránni
og ofbauð þeim álögurnar.
,, Ég sé ekki annað en að við verðum að fara að betla",
mælti annar.
,, Hjá hverjum" sagði hinn.

Bjarni Benediktsson frétti, að Karlakór Reykjavíkur
ætlaði að syngja í Algier, og varð honum þá að orði:
,, Lokksins gátum við hefnt fyrir Tyrkjaránið".

Sr. Einar á Borg var frændi Garðars Gíslasonar kaupmanns,
og kallaði hann Þorbjörgu móður garðars fóstru sína.
Einu sinni skrifaði  sr. Einar Garðari og endaði bréfið
með þessari vísu:

                       Ef hún fóstra að því spurð,
                       hvort Einar drekki núna,
                       segðu að ég sé alveg þur
                       og elski bara frúna.

                                     Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt Milla mín
(Tók þátt í skoðanakönnuninni og kaus kjöt, matvönd að vanda...)

Róslín A. Valdemarsdóttir, 2.6.2008 kl. 20:17

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk fyrir þetta Milla mín, ekki veitir af smá gríni á þessum tímum

Góða nótt

Sigrún Jónsdóttir, 2.6.2008 kl. 20:43

3 Smámynd: Erna

Elsku Milla mín ég er svo leið yfir því hafa ekki hitt þig í dag  en vonandi hittist betur á næst, skilaðu góðri kveðju til Gísla og góða nótt

Erna, 2.6.2008 kl. 21:02

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.6.2008 kl. 21:35

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Stelpur takk fyrir innlitin.

Borðar þú engan fisk Rósin mín?

Já hefði nú alveg viljað koma í kaffi til þín Erna mín, en við komum bara næst

Knús til ykkar, Silla, Jóhanna, Sigrún, og Sigga.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.6.2008 kl. 06:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband