Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Fyrir svefninn.
3.6.2008 | 21:20
Jónas bóndi var besti karl, en afar blótsamur.
Guðríður, kona hans var aftur á móti trúuð og guðhrædd,
en talin skynheilög og blendin.
Prestur Jónasar fer einu sinni að vanda um við hann
og segir:
,, Mér finnst, Jónas minn, að þú ættir að hætta að blóta svona
og taka konuna þína þér til fyrirmyndar".
Þá segir Jónas:
,, Ja, það er nú svona, prestur góður, að ég bölva talsvert,
og hún Guðríður mín biðst talsvert fyrir,
en hvorugt okkar meinar neitt með því".
Bílstjóri hjá Steindóri og hótelstúlka í Valhöll voru einu sinni
á skemmtigöngu á Þingvöllum.
Bílstjórinn segir:
,,Hér hitti Gunnar Hallgerði fyrst".
Þá segir stúlkan:
,, Er hann bílstjóri hjá Steindóri þessi Gunnar?"
Gilsbakka-Jón orti þessa vísu um Egil, bróður sinn:
Egill teygir tannagjá
títt að legils munni.
Brýtur eigi oddinn sá
af tilhneigingunni.
Góða nótt.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 832539
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Vinstri hreyfingin sjálfstætt kvennaframboð.....
- Við eigum að gera betur.
- Ranghugmynd dagsins - 20241121
- Kvenfrelsunarflog Ríkisútvarpsins
- Ríki heimsins eru ekkert hrifin af frelsi
- Kosningagos
- Úkraínustríðið 11 ára
- Hvar er Miðflokkurinn?
- Knockin' On Heaven's Door
- Fyrstu 20 dagar nóvembermánaðar 2024
- Sósíalistaflokkur Íslands - tilraun númer tvö!
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
Athugasemdir
Góða nótt Milla mín
Sigrún Jónsdóttir, 3.6.2008 kl. 21:37
Takk Milla mín og góða nótt
Erna, 3.6.2008 kl. 21:42
Takk elsku Milla mín, góð að vanda, GN
Ásdís Sigurðardóttir, 3.6.2008 kl. 23:23
Góða nótt á þig mín kæra
Róslín A. Valdemarsdóttir, 4.6.2008 kl. 00:20
Blessi þig inn í nóttina Milla mín.
Ía Jóhannsdóttir, 4.6.2008 kl. 00:39
Hvernig ætli þau Jónas bóndi og Guðríður kona hans hafi náð saman í upphafi - annað blótandi en hitt biðjandi. Hvar ætli þau hafi hist - ekki í kirkju allavega og ekki á kránni, svo líklega í réttunum. Hahaha ... það sem manni dettur í hug að pæla í stundum.
Knús á þig mín kæra Milla og eigðu ljúfa nótt og fagran dag á morgun!
Tiger, 4.6.2008 kl. 02:32
Takk fyrir innlitin snúður og snældur.
Ja það er ekki gott að vita hvernig þau náðu saman Tiger míó míó
gæti það hafa verið í þögninni, algengt var það hér áður og fyrr að þögnin var höfð í heiðri, það sem fleira fólk var samankomið í baðstofu, en hvað veit maður svo sem, bara pælingar.
Knús krús í daginn ykkar
milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.6.2008 kl. 06:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.