Fyrir svefninn.

Jæja nú er klukkan bara 19.30, og hvað með það,
en ég er nú ekki að fara að sofa alveg strax, bara bráðum
.

Kona nokkur undir Eyjafjöllum kom í heimsókn til hjóna,
er bjuggu þar eystra.
Hún virðir börn hjónanna fyrir sér og segir:
,, Mikið eru börnin myndarleg. þau eru ekkert lík ykkur.
Þau eru líka heppin með það."
              --------------------------------------------
SR. Páll á Völlum spurði einu sinni dreng einn á kirkjugólfi,
hver hefði svikið Krist.
Drengurinn vissi það ekki.
Prestur sagði þá, að það hefði verið lærisveinn hans
og heitið Júdas.
Þá segir strákur:
,, Það veit ég, að þessu lýgurðu."
               -------------------------------------------

Maður nokkur hitti kunningjakonu sína, sem var komin á
fertugsaldur. Þau höfðu ekki sést lengi.
,, mér sýnist þú hafa fitnað á seinni árum," sagði maðurinn.
,, Þetta máttu ekki segja," sagði konan.
,, Veist þú ekki að það er móðgandi?"
,, Það er ekki móðgandi fyrir konu, sem komin er á þinn aldur,"
Svaraði maðurinn.
                                        Góða nótt.Sleeping

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt kæra Millan mín
Og takk fyrir netspjallið í dag, þó það hafi nú verið stutt

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 19:43

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Heyrðu ég var búin að vera í tölvunni endalaust varð að fara aðeins út á pall með englinum og drekka kaffið sem hann var búin að hella á.
Knús fyrir daginn
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.6.2008 kl. 19:50

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir skemmtilega sögu.

Góða nótt Milla mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.6.2008 kl. 20:28

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Milla ég var alls ekki að skamma þig eða neitt svoleiðis

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 20:53

5 Smámynd: Erna

Knús í nóttina Milla mín og takk fyrir kvöldsögurnar þínar

P.s. Nú erum við Dóra glaðar, Spánn var að vinna Ítali í vítaspyrnukeppni. Heyrði aðeins í henni á sms meðan á leiknum stóð.

Erna, 22.6.2008 kl. 22:15

6 identicon

Fínar kvöldsögurnar  þínar ,gaman af þeim.

Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 22:26

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Surprise, suprise
Nú segi ég ekki meir!
Ekki um þetta, þangað til eftir einhverja daga kæra mín, Milla

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 23:16

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 23.6.2008 kl. 00:16

9 Smámynd: Tiger

 Yndælar kvöldsögur eins og alltaf Milla mín kær. Þakka kærlega fyrir þær. Var lítið á netinu um helgina, enda algerlega dásamlegt veður hérna fyrir sunnan og ég notaði allan þann tíma sem ég átti lausan til að vera úti - og naut þess í botn.

Knús á þig elsku Milla og eigðu góða viku framundan.

Tiger, 23.6.2008 kl. 03:22

10 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Alltaf jafn yndisleg skrifin tín...Hló mikid ad tessari sídustu,Tíddi hana yfir á dönsku fyrir minn og tad tóti honum mjög,sko mjög fyndid.

Eigdu gódann dag mín kæra

KV frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 23.6.2008 kl. 05:36

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn kæru vinir.

Katla
Búkolla

Rósin mín er það ekki, svaraði þér á þinni síðu.

Erna þið Dóra eruð að sjálfsögðu smá klikk, gargið saman yfir túttuleik, ég meina það, þið verðið að fá ykkur græjur í tölvurnar svo þið sjáið hvor aðra stökkva upp og æpa, það var mark!!!!!

Gréta mín

Sko Róslín maður segir ekki A og ekki B. engin leyndarmál hér,
svona koma með það. Ég bíð ekki í nokkra daga.
Annars veit ég alveg hvað þú ætlar að segja þú ert að koma til
Húsavíkur ég veit allt.Eða er það ekki annars? Svara! svara! svara.

Sigrún mín

Tiger míó ætíð gaman að sjá þig, ég skil vel að þú notir veðrið til útivistar, það varir nú yfirleitt ekki svo lengi.
Knús í vikuna þína
Milla

Já Guðrún mín annað hvort hefur hann verið vitgrannur mjög þessi maður, eða svona hreinskilinn, ég tippa á hið fyrra.
Kveðja til Jyderup
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.6.2008 kl. 07:42

12 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

MÚ Ha ha ha ha ha!
En nei ég er ekki á leiðinni til Húsavíkur, en það kemur að því skal ég segja þér, þá hlakka ég mikið til!
En ég segi ekki meir og svara ekki meir

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.6.2008 kl. 12:28

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ok skal ekki spyrja meir

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.6.2008 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband