Fyrir svefninn.
4.7.2008 | 20:56
Þessari visku nappaði ég frá henni nöfnu minni Ásdísi Emilíu
og fannst upplagt að birta þetta núna.
Indijáninn
Kvöld eitt, sagði gamall Cherokee indíáni barnabarni sínu,
ungum dreng, frá baráttu sem á sér stað innra með fólki.
Hann sagði: "Sonur minn, baráttan er á milli tveggja
"úlfa" innra með okkur öllum.
ANNAR ER ILLUR. Það er reiði, öfund, afbrýðissemi, böl,
eftirsjá, græðgi, hroki, sjálfsmeðaumkvun, sekt, gremja, minnimáttarkennd, lygar,
falskt stolt og að vera fullur af yfirlæti og egói.
HINN ER GÓÐUR. Það er gleði, friður, ást, von, rósemi,
auðmýkt, góðvild, góðfýsi, hluttekning, örlæti, sannleikur,
samúð og trú."
Drengurinn hugsaði um þetta nokkra stund
og spurði síðan afa sinn: Hvor úlfurinn vinnur?"
Gamli maðurinn svaraði, einfaldlega:
"SÁ SEM ÞÚ NÆRIR."
Bæn.
Drottinn sem ræður öllum þjóðum yfir,
uppspretta lífsins, kjarni þess sem lifir,
leiddu oss gegnum lífsins böl og þrautir,
leiðbeindu oss að ganga réttar brautir.
Láttu þinn kærleikskraft oss alla styðja,
kenn oss að lifa, stríða,vaka biðja.
Aldrei þín hjálparhöndin frá oss víki,
,, helgist þitt nafn og tilkomi þitt ríki".
Mér fannst þetta allt passa svo vel inn í daginn í dag.
Kæru vinir.
Góða nótt.
Athugasemdir
Ég nappaði þessu í gærkvöldi hjá henni nöfnu okkar. Mér finnst öll viska heimsins felast í þessu, knús og góða nótt
Ásdís Sigurðardóttir, 4.7.2008 kl. 21:30
En hvað þetta var viturlegt svar, indíjánar hafa verið mikið náttúrufólk og vitsmunaverur, langt yfir því sem maðurinn í dag er svona að mestu leyti. Bara ef við gætum farið aðeins aftur til fortíðar, og lært af forfeðrum okkar. Knús á þig Milla mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.7.2008 kl. 21:43
Þetta er falleg dæmisaga og bænin ekki síðri, takk fyrir þetta elsku Milla og góða nótt
Erna, 4.7.2008 kl. 22:06
Góða nótt.
Heidi Strand, 4.7.2008 kl. 22:49
Góðan daginn kæru vinir.
Að fara eftir því sem Indijánar gerðu, væri mikil viska, og mundum við ekki sjá eftir því.
Góðar kveðjur inn í helgina.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.7.2008 kl. 07:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.