Tvö hús inn á torgið, já er það?

Ég hef nú ekki séð neina skilmerkilega teikningu um þessar
hótelbyggingar, en það er nú sama.
Með þeirri aðgerð að færa tvö hús inn á torgið hlýtur ásýndin
að eyðileggjast, aðgengi að lakast, og það er ekki verið að vernda
gömlu ásýndina, eins og sagt var að ætti að gera.
Fyllið bara torgið af gömlu yndislegu húsunum okkar, já og
gleymum ekki að nota hljómskálagarðinn,
var ekki á sínum tíma verið að tala um að nota hann sem
antik garð með kaffihúsum og slíku.
Þvílíkt rugl.
það á að byggja upp gamla bæinn eins og mögulega er hægt
Rífa niður Morgunblaðshöllina, sem var algjört sjokk fyrir
augað er maður á hana leit.
Hættum að hafa þá stefnu að þjóna peningavaldinu.


Hvað höfum við að gera með hótel á þessum stað?
Hvað þarf að grafa djúpt fyrir bílakjallara, og hvað kemur
í ljós við þann uppgröft?
Gamlar minjar já eða bara sjór.
Yrði fróðlegt að fylgjast með því, sem ég vona að komi ekki til.
                                 Góðar stundir.


mbl.is Kaupmenn ævareiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn hjartað mitt, hér er þokan á undanhaldi fyrir sólinni
veit að þið munið eig góðan dag í dag.
Knúsaðu alla frá mér.
Mamma sem elskar ykkur allar.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.7.2008 kl. 08:41

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Nákvæmlega ekkert við hótel að gera á þessum stað.  Góða helgi Milla mín 

Ía Jóhannsdóttir, 5.7.2008 kl. 08:42

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ekkert Hótel! knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.7.2008 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband