Það hlaut að koma að því.

 Neyðin kennir naktri konu að spinna, segir máltækið,
en neiðin kennir líka svöngum börnum að stela.
Þau gera það bæði fyrir sjálfan sig og sína og einnig út af
þrælsóttanum sem þau bera fyrir þeim sem yfir þeim ráða.
Allar götur hafa börn verið notuð til glæpa af þessu tagi
og ekki fer það batnandi.

Nú eru þau send út og suður til að ná og sendast með eiturlyf.

Hvað hefur þetta allt í för með sér? Jú þau eru handtekin og
dæmd í fangelsi, maður skildi þá ætla að reisa þyrfti barnafangelsi,
en, nei þess gerist ekki þörf þetta eru jú bara börn,
öllum er alveg sama hvort sem er.

Maður héllt nú kannski að mannkynið mundi  þroskast og að fullorðnir
mundu eigi bara huga að sínum hag, en nei þetta fer bara versnandi.

 


mbl.is Þrjú börn dæmd í þriggja ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já þetta fer allt versnandi því miður.

Eigðu góðan dag Milla mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.7.2008 kl. 12:25

2 Smámynd: Ásgerður

Þau hljóta að hafa verið mjöög svöng,,,10 miljónir. En sammála það á ALDREI að dæma börn í fangelsi með fullornum, það bara passar ekki saman.

Knús á þig frænka

Ásgerður , 26.7.2008 kl. 12:26

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Stelpur mínar stiklað er á stóru, og mætti ýmislegt tiltaka,
en eins og að selja blíðu sína er ein elsta iðja konunnar þá er
þjófnaður elsta grein mannkyns og ætíð hefur börnum verið beitt til þess.
Knús til ykkar
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.7.2008 kl. 12:56

4 Smámynd: Tiger

 Já, það er óendanlega ljótt og skelfilegt þegar börn eru notuð svona illilega af fullorðnum. Hvers skonar óþjóðalýður er svona hjartalaus að misnota svona grunlaus börn? Það ætti að gera allt til að ná í þá sem standa á bakvið svona "glæpabörn" og taka harkalega á þeim. Endalaust ljótt bara ..

Knús á þig Milla mín og hafðu ljúfa helgi.

Tiger, 26.7.2008 kl. 17:06

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 26.7.2008 kl. 18:11

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Einar minn svona gerist það, ekki gott og þetta á eftir að aukast.
Kveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.7.2008 kl. 20:01

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tiger minn ekki verður auðvelt að ná þeim, það get ég sagt þér þetta er búið að viðgangast aldir eftir aldir, lesum bara söguna.
Knús kveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.7.2008 kl. 20:04

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús til þín elskulegust og sólarkveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 26.7.2008 kl. 22:14

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hallgerður Huld Og Linda knús
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.7.2008 kl. 22:40

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

CHARLES DIKKENS.....Ekkert hefur breyst þannig lagað séð

Knús á þig Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 26.7.2008 kl. 22:46

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Charles Dikkens það er akúrat saga sem sannar þetta á hin besta hátt.
Knús Sigrún mín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.7.2008 kl. 23:29

12 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þetta er amerískur siður sem Hong Kong menn eru kannski að taka upp?

Sigurður Þórðarson, 27.7.2008 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband