Fyrir svefninn.

                           Hreiðrið mitt.

          Þér frjálst er að sjá hve ég bólið mitt bjó
          ef börnin mín smáu þú lætur í ró,
          þú manst að þau eiga sér móður
          og ef að þau lifa, þau syngja þér söng
          um sumarið blíða og vorkvöldin löng
          þú gerir það, vinur minn góður.

                                      Þorsteinn Erlingsson.


Kæru vinir ég er búin að vera svolítið þreytt í dag, á ekki
gott með að þola hitann, þannig að ég hef verið löt hér á
blogginu, ekki komentað sem skildi, vona að mér sé fyrirgefið það.

                         Hægt að segja við óvin.

                  Ég veit um
bók með fullt af fólki
                  sem er vitrara en þú.
                           "Hvaða?"
                  --Símaskránna
.Grin

                        Börn allsnægtanna.

                Við eigum að skammast okkar
                með allt til alls
                alla vegi færa
                allt lífið framundan.

                Við hefðum átt að alast upp
                fyrir dúk og disk
                þegar fólk hafði hvorki
                til hnífs eða skeiðar
Crying

Höfundur ónefndur.
                                       Góða nótt
.
Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku Milla, takk fyrir falleg orð á síðunni minni, það gladdi mig að heyra þetta.  Hjartað í mér þolir illa svona hita svo það hefur ekki komið að sök að ég þarf að vera inni, pabbi dregur fyrir hjá sér og opnar svo gluggana til að fá golu, hann þolir þetta ekki heldur.  Vona að þú hressist samt bráðlega, ég veit að þú ert alltaf hress í toppstykkinu  góða nótt elskuleg Double Kiss  Girl In Bed

Ásdís Sigurðardóttir, 1.8.2008 kl. 21:36

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góða nótt Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 1.8.2008 kl. 21:46

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Góða nótt, og sofðu vel.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.8.2008 kl. 22:09

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

heart_104Knús knús og bestu kveðjur.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 2.8.2008 kl. 07:17

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn skjóðurnar mínar.
Óska ykkur öllum góðrar helgar hvar sem þið eruð.

 Kisses Kisses KissesMilla. 





Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.8.2008 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.