Fyrir svefninn. Valdefling í verki á Húsavík.
29.8.2008 | 20:20
þegar ég flutti til Húsavíkur, kynntist ég vel einni vinkonu
Millu minnar, henni Gunnu, hún er þvílíkur fjörkálfur og bara
í alla staði yndisleg stelpa.
þegar Setrið var stofnað var hún notandi no.1, eins og hún
segir sjálf frá.
Einhverju sinni var hún stödd hjá mér þá hringir gemsinn hennar,
það var verið að kalla alla á námskeið í hláturjóga og hún spyr ertu
með, ég sló til, ætla nú bara ekki að lýsa því hvað það var gaman.
Eftir þetta fór ég stundum í kaffi í Setrið.
Setrið er geðræktarmiðstöð fyrir einstaklinga innan Þingeyjarsýslu
sem búa eða hafa búið við geðraskanir, með þeim afleiðingum að
lífsgæði þeirra hafa skerst.
Setrið er batahvetjandi stuðningsúrræði þar sem unnið er á
jafningjagrundvelli og hugmyndafræði valdeflingar er höfð að leiðarljósi.
Á Setrinu er leitast við að viðhalda hlýju andrúmslofti og umhverfi þar sem
virðing og trúnaður ríkir.
Mun segja meira frá þessari starfsemi síðar.
Vegna áhuga míns á mannrækt af öllum toga ákvað ég að fara á
fræðsludaga sem nefnast valdefling í verki.
Fyrirlesarar á þessum fræðsludögum eru.
Auður Axelsdóttir Iðjuþjálfi og forstöðumaður Geðheilsa-eftirfylgd
heilsugæslu Höfuðborgarsvæðis,
Elín Ebba Ásmundsdóttir dósent við Háskólann á Akureyri,
Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur,
Þórey Guðmundsdóttir.
Ásamt fagfólki úr heimabyggð, sem eru.
Unnsteinn Júlíusson heilsugæslulæknir.
Þórhildur Sigurðardóttir, sérkennsluráðgjafi,
Erla Alfreðsdóttir iðjuþjálfi og forstöðumaður Setursins.
Aðalsteinn Júlíusson lögregluþjónn á Húsavík.
Fundarstjóri er Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri.
Þrír aðilar sögðu sögu sína, það var grátið get ég sagt ykkur,
það sem fólk þarf að ganga í gegnum er með ólíkindum,
bæði í sambandi við orsakir geðraskana afleyðingar,eftirfylgni,
barning við kerfið og batann sem er alls ekki auðveldur því
þú treystir ekki á að batinn sé kominn, enda hver veit það
og hver getur sagt með vissu hvort eða hvenær.
Við sátum þarna með kaffi og matarhléum, sem við fengum á staðnum,
frá kl 9.30 til 16.30 og ég var ekki tilbúin að fara ég vildi vita meira ,
mig þyrsti í meiri fróðleik, fæ viðbót á morgunn en svo mun ég halda áfram
upp á eigin spýtur að fræðast um geðræktarmál, það gerir mann vitrari um
hvernig maður á að hjálpa til við mannrækt.
*******************************************
Djúpið.
Ég kom til hafsins huggun til að fá
hlustaði á djúpsins þunga nið
mér fannst um stund þú stæðir mér við hlið
það stirndi í sálu minni mynd þína á.
mín fíkn var dýpsta holdsins hættu frá
ég hrópaði ó gef mér stundarfrið
það bergmálaði í bjargsins klettahlið
og brimsins rifnu ólgu örveikt já.
að baki liggur hyldjúp hulin gjá
hughrif okkar vafin þyrnivið
að morgni rís ný fegurð innan frá
og fangann áþekkt hafsins söngva klið.
oft er hafsins hættu ekki að sjá
-en hjartans djúp er hættulegra svið.
Hörður Torfa.
í september 1995
af plötunni áhrif.
Góða nótt
Athugasemdir
Góða nótt Milla mín
. Geðrækt er góð "rækt"
.
Sigrún Jónsdóttir, 29.8.2008 kl. 20:51
Sigrún mín áhugi minn á mannrækt yfirleitt hvatti mig til þessa
og ég mun eigi hætta, ætla mér að stiðja við bakið á vinum mínum sem þarna eru.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.8.2008 kl. 21:16
Þú ert svo mikill persónuleiki Milla mín.
Góða nótt
Kristín Gunnarsdóttir, 29.8.2008 kl. 21:26
Hláturjóga var reglulega stundað er ég starfaði í Smáraskóla. Mér fannst þetta ferlega gaman en frekar asnalegt alveg í byrjun. Hláturinn lengir lífið og hjálpar endalaust ! Góða nótt Milla.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 29.8.2008 kl. 22:06
Bara yndislegt að hlægja sig brjálaðan.

Góða nótt
og takk fyrir fallegt ljóð og áhugaverðan pistil.
kveðja
Eva Benjamínsdóttir, 29.8.2008 kl. 22:52
Trúi vel að þetta hafi verið fræðandi og senn átakanlegt að hlusta á milla mín þú ert yndisleg
hafðu ljúfa helgi með þínu fólki Elskuleg
góða nótt
Brynja skordal, 30.8.2008 kl. 00:25
Milla, heldurðu að ég þekki Gunnu? hverra manna er hún ? Er Setrið í Snælandi gamla? þar lærði ég að dansa. Kær kveðja til þín mín elskulega og GN
Ásdís Sigurðardóttir, 30.8.2008 kl. 00:27
Góða nótt mín kæra
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.8.2008 kl. 00:42
Bergur er fínn Hann var bæjarstjóri hér í Vestmannaeyjum og ég þekki konuna hans vel en hún er frá Seyðisfirði... Góða nótt og ljúfa helgi..
hindin (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 01:15
Takk yndislegu skjóðurnar mínar.









guys.
Um persónuleikann veit ég eigi Stína mín en takk ég reyni allavega að vera góð
Já Fjóla mín hláturinn lengir lífið, ég vildi að sem flestir
mundu skilja það.
Sigga Bergur Elías var allavega frábær fundarstjórnandi því það
er eigi auðvelt að tala um þessi mál en honum fórst þetta afar vel úr hendi.Já og mér lýst vel á þennan mann.
Sömuleiðis Eva mín takk fyrir innlit, frænka mín.
Knús til þín lady Vallý
Jæja varstu stillt elskan ég hafði nú engar áhyggjur af öðru.
Sömuleiðis Brynja mín, ég er einmitt að fara aftur kl 9.
Ásdís mín hún Gunna mín er frá Flateyri, svo er hún mun yngri en ég
held að þú þekkir hana ekki. Setrið er í gamla Snælandi, held ég
leiðrétti það ef það er rangt.
hvernig gengur með Snædísi
Knús til þín Rósin mín
Hindin mín Bergur er fínn maður, knús á þig ljúfust.
Kærleik til ykkar allra inn í helgina ykkar.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.8.2008 kl. 07:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.