Úr borg hraðans.
10.10.2008 | 20:58
Sérkennilegt fólk talar um borg hraðans, en ég hef aldrei orðið hans vör,
silagangur einkennir þessa borg bílar drullast varla yfir gatnamót á tíu, það skiptir kannski engu máli maður verður bara að reikna með að það taki 15 mín að komast yfir ein gatnamót.
Nei í alvöru hef bara ekki lent í öðru eins fórum í Húsgagnahöllina,
ég þurfti aðeins að skreppa inn í Bodum,
er við komum út aftur var bara allt orðið vita vitlaust það tók mig 15 mín
að komast þaðan út á götuna og ekki var verið að gefa sjens,
nei bara ekið eftir Íslenskri kurteisi.
Var orðin léttpirruð er ég loksins komst upp í Grafarvog til bróður míns,
aðallega var ég pisst vegna tillitleysis
ekki að því að það séu svona margir bílar að flækjast fyrir mér á götunum,
Nei nei allir verða að eiga sína bíla og aka einir í vinnuna og einir heim með
músíkina í botni, kannski er það eina stund dagsins sem fólk slappar af,
Gæti passað hjá mér, en svei mér þá ef sumir dotta ekki bara á ljósum,
allavega er mikið flautað.
það er með þetta eins og svo margt annað við eigum langt í land með að
læra alþjóða ökumenningu, eða þannig.
Er allavega bara ánægð að vera hér uppi í Grafarvogi og ég meira að segja
sá héðan friðarsúluna í gærkveldi, flott er hún, en hefði alveg eins viljað sjá
norðurljósin, sé þau bara heima hjá mér í vetur.
Jæja hætt þessu þrugli, við förum á Suðurnesin á morgun,
síðan verður haldið upp á 1 árs afmæli Sölva Steins míns á sunnudaginn.
Og eins og allstaðar er börnin eru svona lítil þá er fullorðna fólkið í meirihluta
svona eins og nokkurskonar ættarmót, það verður æðislegt.
Guð gefi ykkur öllum góða helgi.
Milla
Athugasemdir
Góda helgi Milla mín og njóttu í fadmi fjölskyldunnar.
Gudrún Hauksdótttir, 10.10.2008 kl. 21:17
Við biðjum innilega vel að heilsa og óskum ykkur innilega góða ljúfa helgi og knús knús og bestu kveðjur til ykkar
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.10.2008 kl. 21:43
Njóttu borgar dvalarinar........... ég öfunda þig nú ekki að vera þar. Mig langar bara vestur í djúp........ þar er friður.
knús vibba
Vilborg Auðuns, 10.10.2008 kl. 22:15
Hafðu það gott í höfuðborginni Milla og taktu bara eina létta slökunaræfingu á ljósunum. Ætti að duga þar til kemur að þér.
Anna Guðný , 10.10.2008 kl. 23:14
Eigðu ljúfa helgi með þínum, Milla mín.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 10.10.2008 kl. 23:47
Milla mín eigðu góða helgi rugludósin mínKveðja rugludósinKnúsí knús
Ólöf Karlsdóttir, 11.10.2008 kl. 00:42
Sigrún Jónsdóttir, 11.10.2008 kl. 00:58
Eigðu yndislega daga með þínu fólki
Kristín Gunnarsdóttir, 11.10.2008 kl. 08:29
Þetta helv. flaut á Íslendingum fer alltaf jafn mikið í taugarnar á mér. Næst bíð ég eftir því að þeir hoppi brjálaðir út úr bílunum (eins og Frakkar gera) og maður fái einn á lúðurinn bara fyrir það að fara eftir settum reglum.
Annars erum við bara góð hér í sveitinni og ekkert flaut.
Góða helgi Milla mín í borg Erils.
Ía Jóhannsdóttir, 11.10.2008 kl. 09:01
Það var ekki verið að kíkja á vin sinn í Bryggjuhverfi óttans? Reyndar er svo rólegt hérna að stundum fæ ég á tilfinninguna að´ég sé hvergi! Hvorki lifandi né dauð en ég skil þig, ég man enn hvernig það var að koma til Reykjavíkur frá Eyjum hér í den unglingsbjáni. Ég hélt að allt væri að verða vitlaust og ekki hefur það skánað. Blessi þig ljúfa mannafæla sem ekki kíkir í kaffi hafandi farið yfir fjallið.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 10:55
Solla Guðjóns, 11.10.2008 kl. 11:58
Sæl kella mín, passaðu þig á því að pissa ekki úti á götunni eða gangstétt það er alveg bannað
egvania, 11.10.2008 kl. 22:14
Helga skjol, 12.10.2008 kl. 07:17
Eigðu góða helgarrest
Dísa Dóra, 12.10.2008 kl. 10:01
Þú hefur greinilega verið búin að draga að þér orku umhverfisins Milla mín það er alveg vandalaust þessa dagana.
Eigðu góðan dag knúsilíus til þín.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 10:09
Vonandi hefur þú komist ósködduð úr borg flautsins.
Helga Magnúsdóttir, 12.10.2008 kl. 16:01
Ég er á lífi Milla mín og í góðum gír. Verðum í sambandi
Erna, 13.10.2008 kl. 10:24
Takk elskurnar mínar allar saman, sit hér við eldhúsborðið hjá Fúsa og Sollu er að sjálfsögðu að sukka í afgöngum, en skitt með það byrja bara er heim kem.
Það var æðislegt í gær nikill hávaði að vanda í börnum og ekki síður í fullornum.
Þó ég sé nú að tala um læti og einnig silagang í borginni þá er ég í miklum rólegheitum hér í Njarðvíkunum, býð eftir að börnin komi heim þá verða ekki rólegheit lengur.
Dóra mín hefur náð að kommenta inn á hjá mér, en hún gat ekki bloggað á sinni síðu. Hún hringdi kl 5 að hennar tíma í morgunn
þá hafði hún verið niðri í lobbýi að reyna að blogga, en ætlaði svo að reyna að sofna aftur og allt í góðu hjá þeim.
Knús til ykkar allra
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.10.2008 kl. 15:09
Ég kalla þetta nú alltaf "Borg dauðans" Er aldrei eins hrædd um líf mitt og þeirra sem eru með mér í bíl, þegar ég ek um götur Reykjavíkur, enda með sveita blóð í æðum.
Knús á þig sæta
Hulla Dan, 13.10.2008 kl. 19:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.