Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Við ættum nú ekki annað eftir.
16.10.2008 | 10:49
Því get ég vel trúað og tekið undir að Seðlabanki Íslands hafi
glatað trúverðugleika sínum, og er það löngu vitað,
þar á bæ eiga menn að víkja og það strax, að mínu mati.
Þórólfs Matthíassonar prófessors í hagfræði við HÍ.telur að
Seðlabanki Íslands muni eigi endurheimta hann næstu tuga ára
og þess vegna þurfi hann að fara undir Norska bankann og við
þyrftum að taka upp norsku krónuna.
Ég haf nú bara aldrei heyrt aðra eins vitleysu, "fyrirgefið"
eigum við ekki bara að leggja okkur undir norska konungsveldið aftur,
með fullri virðingu því.
Það væri lag nú að opna augun fyrir því að ráða þarf menn sem
sérfróðir eru til þeirra starfa sem um ræðir, og eru það nú bara flest
störf sem koma í huga mér akkúrat núna°.
Góðar stundir.
Vill norsku krónuna inn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 832539
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Við eigum að gera betur.
- Ranghugmynd dagsins - 20241121
- Kvenfrelsunarflog Ríkisútvarpsins
- Ríki heimsins eru ekkert hrifin af frelsi
- Kosningagos
- Úkraínustríðið 11 ára
- Hvar er Miðflokkurinn?
- Knockin' On Heaven's Door
- Fyrstu 20 dagar nóvembermánaðar 2024
- Sósíalistaflokkur Íslands - tilraun númer tvö!
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
Athugasemdir
Þórólfur er hallur undir Noreg, það hefur kannski eikað með það að gera að hann nam hagfræðina í Norge.
Rannveig H, 16.10.2008 kl. 10:52
Þú ert sum sé mætt á svæðið og farin að rífa kj....Velkomin heim í heiðardalinn ljúfust.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 11:01
Fyrr má nú rota en dauðrota Rannveig.
Knús Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 11:08
Velkomin heim Milla mín
Bíddu, bíddu er þetta Hallgerður hér að ofan ?
M, 16.10.2008 kl. 11:11
Mætt á svæðið búin að taka baðið í gegn og engillinn að skipta á rúminu,
Varð aðeins að setjast niður og það lá beinast við að nota kjaftinn þar sem ég hafði eigi notað hann á blogginu undanfarið, Bara heimavið hjá syninum, er að reyna að siða hann svolítið til, hann er nefnilega heilaþveginn D lista maður
Knús til þín ljúfust Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 11:12
Helga skjol, 16.10.2008 kl. 11:24
Þetta væri bara eins og að ganga inn í ESB ekki missum við sjálfstæði við það. Að fara í efnahagsbandalag með Noregi er ekkert annað. Við værum áfram íslendingar, nema með stöðugan gjaldmiðil, og hugsanlega einhver áhrif á hagstjórnina annað en ef við myndum t.d. fara í ESB.
Hrefna (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 11:26
Ég er alveg til í að skoða "föðurlandið" og krónuna þeirra. Búin að missa alla trú á núverandi valdhöfum hér heima
Sigrún Jónsdóttir, 16.10.2008 kl. 11:46
velkomin heim í heiðardalinn Milla mín
Brynja skordal, 16.10.2008 kl. 12:13
Úff við verðum bara að reyna að treysta þessum vitleysingjum til þess að reyna að laga það sem þeir eru búnir að eyðileggja fyrir okkur hérna í þessu landi En Knús á þig Milla mín
Guðborg Eyjólfsdóttir, 16.10.2008 kl. 12:33
Knús á ykkur öll ....... Munið að knúsið kostar ekkert
Kv frá mér, til ykkar........
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.10.2008 kl. 13:33
Velkomin aftur heim Milla mín.
Ía Jóhannsdóttir, 16.10.2008 kl. 15:07
Velkomin heim Milla mín
Kristín Gunnarsdóttir, 16.10.2008 kl. 15:27
Knús til þín Helga mín, verð nú að segja þótt seint sé að þetta er flott mynd af þér.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 15:59
Já emmið mitt þetta er hún Hallgerður, er hún ekki flott á þessari mynd, ekki að hún hafi eigi verið ætíð flott.
Knús Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 16:00
Þín skoðun Hrefna, takk fyrir innlitið.
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 16:01
Sigrún mín við verðum bara að fá sérfróða valdhafa, er bara á móti því að taka upp gjaldmiðil annarra þjóða, nema ef vera skyldi Evru sem ég er einnig á móti.
Knús Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 16:04
Takk Brynja mín
Knús Milla
Guðborg mín ég treysti varla nokkrum manni
Knús Milla.
Knús Linda mín. Milla
Takk Ía mín, knús Milla
Knús Stína mín Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 16:08
Velkomin heim Milla mín við höfum sennilega verið á leiðinni út úr borginni á svipuðum tíma í gær.
Nei við förum nú ekki að taka upp norkskar krónur, en svo er spurning með evruna var að lesa frekar skrítnar fréttir um hana í gær í sambandi við Þjóðverjana að það sé ekki sama evra og evra það sé sem sagt ekki sama hvar hún er prentuð. Þjóðverjar taka ekki úr hraðbönkum heldur sækja sér evrur í banka því þá séu þeir öruggir um að evran sé prentuð í Þýskalandi. Skil þetta nú ekki alveg en ef það verður mismunandi hvers virði evran er, það fari eftir því í hvaða landi hún er búin til í þá erum við örugglega ekki á háu plani í þeim málum miðað við hvernig allt er hjá okkur núna. En svo í framhaldi af þessu hver treystir Íslendingi í dag?
Knús til þín inn í rómantískt kvöld.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 19:39
Velkomin heim snúllan tín ....Allt komid á fullt hjá minni í pólitískri umrædunni...Er í algjöru fríi frá pólitík um skeid...Mjög löngu sko
Med kvedju frá Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 16.10.2008 kl. 19:44
Við lestur þessarar fréttar dettur mér bara eitt í hug: Munið þið eftir Vidkun Quisling
Homo Erectus (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 20:16
Jónína mín engin treystir Íslendingum búnir að koma sér út í horn.
Þú veist nú hvað þjóðverjinn er duttlungafullur.
Já við vorum í Borgarnesi um tíu leitið, fengum okkur kaffi og wc ferð
Knús faðm
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 20:59
Nafna mín ég er nú að hugsa um að láta hana að mestu vera svona ef ég get, sjáum til
Knúsfaðm Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 21:01
Jæja Milla mín þá hefur þú verið tveimur tímum á undan mér í Borgarnesi. Hélt að þú væri lengur á leiðinni en þetta en þær hafa sennilega verið lúnar ferðalangarnir og viljað drífa sig heim.
Góða nótt.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 21:22
Já við vorum líka boðin í nýjan lax með nýuppteknum kartöflum til bróðir míns og mágkonu sem búa í Litluborgar landi í vestur Húnavatnssýslu,
það er við Vesturhópsvatnið. svo við vildum hafa smá tíma hjá þeim.
Nú við urðum að kveðja mömmu í Skógarbæ áður en haldið var úr bænum.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 21:27
Hver var það Homo?
Kveðja Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.10.2008 kl. 21:28
Hæ elsku Milla. Sé á lestri kommenta að þú hefur verið í burtu. Gott að þú ert komin heil heim á Húsavíkina. Ég sendi þér póst áðan verðum í bandi
Ásdís Sigurðardóttir, 17.10.2008 kl. 15:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.