Lesið þetta endilega alltsaman.

 Ég fékk þetta í mali frá henni Ingibjörgu Helgu, hún er að berjast
 fyrir eðlilegu gleðiríkara lífi, lífi án eineltis.
 Vona að þetta sé í lagi þín vegna Inga mín, fólk verður að sjá þetta
 lesa og fá skilning.
 Það er ætíð ljós í fjarska sem maður getur teigt sig í
.

Ljós í myrkri. 

Um þessar mundir eiga margir um sárt að binda og sjá jafnvel ekkert nema tilgangsleysið og svartnættið fram undan.

Við ykkur vil ég segja; Það birtir alltaf upp um síðir. Við eigum alltaf eitthvað að þakka fyrir. Það er kannski ekki auðvelt að trúa því í dag en þú verður að trúa því, þín vegna. Mín leið til að umvefja ykkur sem þurfið á því að halda með ást og kærleik, skilningi og umburðarlyndi. Nær kemst ég ekki en ég verð að snerta við ykkur. 

Það er ekkert sem skiptir meira máli í lífinu en þú - þitt líf.

Þú átt bara eitt líf og þess skaltu gæta. Þegar okkur líður hvað verst og við sjáum engan tilgang með lífinu er gott að minna sig á það að þú átt fjölskyldu og vini sem elska þig og vilja ekki að neitt slæmt hendi þig. Alveg sama hversu illa þér líður núna og þér finnist allt lítils virði eða jafnvel ekki skipta neinu máli, það skiptir máli. Þín fjölskylda, þínir vinir, hafa áhyggjur af þér, hafa áhyggjur af því hvernig þér líður - þú skiptir fólk máli. 

Jafnvel þó að allar leiðir virðist lokaðar, að maður geti talið sér trú um að búið sé að brjóta allar brýr að baki, engum þyki vænt um mann, að þú sért bara til ama og það létti bara á fólki að losna við þig, þá er alltaf ljós einhver staðar fram undan, það þarf bara að koma auga það.  

Það er alveg sama hvað á gengur í lífinu við lærum af því öllu og styrkjumst, verðum skilningsríkari og reyndari auk þess að hafa meira að gefa öðrum, það er tilgangurinn.  

Það er einhver tilgangur með öllu sem gerist í lífinu. Við sjáum það kannski ekki í dag en ef til vill á morgun eða hinn. Við lærum til að hjálpa öðrum. Til þess að þú getir hjálpað öðrum verður þú að lifa af núna. Ég bið þig um að þiggja alla þá hjálp sem þér býðst, ekki gefast upp. Ef þú ert í eða við svartnættisholið, komdu þér þá í burtu frá strax, fáðu hjálp, lifðu. 

Það er alveg sama hversu erfið okkar reynsla er, þín bíður eitthvað stórkostlegt.

Það kemur alltaf góður tími á móti slæmum tíma. Þessu verður þú að trúa.  

Ég þekki það á eigin skinni að missa allt. Ég kynntist því fyrir 15 árum síðan. Fór í gegnum efnislegt og tilfinningalegt gjaldþrot. Skilnað, missti nánast allt sem ég átti nema syni mína tvo, fjölskylduna mína og skuldirnar.

Ég stóð uppi peningalaus, atvinnulaus, húsnæðislaus og bíllaus. Andlegt flak. Þá komst ég að því að það er erfiðara að fyrirgefa sjálfum sér fyrir sín mistök en fyrir aðra, sem mistök mín bitnuðu á að fyrirgefa mér.

Með mannorðið í hættu, þunglyndi, kvíða og óvissu í farteskinu tók við nýr kafli í lífi mínu og það birti upp.  Það birtir alltaf upp. 

Eftir á að hyggja þá sé ég hvað lífsviljinn skiptir miklu máli. Við megum ekki glata honum eða sjálfvirðingunni. Við þurfum að halda áfram. Það eru aðrir sem mega ekki við því að við gefumst upp.

Ef við gefumst upp skiljum við eftir okkur ólýsanlegan sársauka, sársauka sem er svo sár, sársauka sem verður sárari og sárari. Ótal ósvaraðra spurninga, sjálfsásökun, sektarkennd og óendanlega mikilli sorg og söknuður. 

Þau okkar sem hafa orðið fyrir efnislegu og/eða tilfinningalegu gjaldþroti og skakkaföllum á lífsleiðinni skiptast í tvo flokka; það eru þeir sem reyna að gera það besta úr því sem komið er, sættast og aðlagast breytingunni, byrja upp á nýtt.

Eða þeir sem festast í sárum biturleika og reiði út í allt og alla. Komast ekki út úr því liðna sem ekkert getur breytt nema við sjálf með því að halda áfram, taka okkur taki. Til þess þiggjum við öll þá hjálp sem býðst. Við verðum, af því að lífið heldur áfram með öllum sínum kostum og göllum.

Við þurfum að horfa á kostina, það sem hefur gefið lífinu gildi. 

Í dag þakka ég fyrir að eiga son, maka og fjölskyldu sem ég elska út af lífinu og vini sem er mér ómetanlegt. Ég er á lífi og ég þakka fyrir það. Það hefði verið svo auðvelt fyrir mig þegar eldri sonur minn tók líf sitt að leggjast í kör og sjálfsvorkunn. Svo mikill er sársaukinn við að missa þann sem maður elskar. En ég ætla að berjast, ég berst fyrir auknum skilningi á þeim skelfilega sjúkdómi sem þunglyndi er og afleiðingum þess.

Ég bið til guðs af öllu mínu hjarta og allri minni sál að ljós lífsins nái að skína sem skærast inn í hjörtu allra og að umhyggja og kærleikur umvefji hverja þá sál sem kvelst einmana í einangrun sinni.

Það er til hjálp, taktu við henni, þiggðu hana og láttu ljós þitt skína. Berstu með mér fyrir betra lífi og hjálpaðu öðrum sem eiga bágt.

Við ykkur sem eruð í sömu sorglegu sporum og ég og mín fjölskylda. Ég finn svo til með ykkur og veit hversu erfitt þið eigið. Ekki tapa trúnni á lífið. Það koma aftur góðir tímar hjá okkur. Allar góðar minningar og hugsanir er ekki hægt að taka frá okkur, njótum þeirra. 

Kveikjum á kertum á hverjum degi og minnumst látinna ástvina í bæn um að nú líði þeim betur, að þeir séu lausir við það sem þá þjakaði og hrjáði og um leið skulum við  þakka fyrir þá og það sem við eigum. Það hjálpar okkur að lifa af.

Þið eruð öll í mínum bænum, þið skiptið mig máli.

Mig langar til að bæta við frá mínu hjarta.
Hættum að hnútuhastast út af ekki neinu nema kannski okkar eigin
þörf fyrir að finna sökudólg sem jafnvel finnst hjá okkur sjálfum.
Ljós inn í ykkar daga.
Milla.


 

                                                                        
Liðsmaður Jerico

Ingibjörg Helga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þetta Milla. Þessi kona er einstök. Ég ber mikla virðingu fyrir henni. Hún snýr vörn í sókn. Og hefur þrátt fyrir gífurlegt áfall afgang fyrir okkur hin.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 08:42

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Hallgerður mín hún Inga er yndisleg kona.
Við getum þetta öll eins og hún segir það er bara að byrja.
Ljós í daginn
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.10.2008 kl. 09:31

3 identicon

Já það er auðvelt að brotna saman á þessum erfiða tíma. Megi englar alheims gæta þeirra sem eiga erfiðast núna og hugur minn er hjá þeim fjölmörgu. Góða helgi

Hindin (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 10:21

4 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tad er troski ad hafa lært ad tyggja...Tessi kona er sterk og hefur lært ad tyggja og fyrirgefa...

Takk Milla mín fyrir ad fá leyfi til ad deila tessu med okkur.

Vil senda tessari konu gódar hugsanir.

kvedja úr haustinu í Jyderup.

Gudrún Hauksdótttir, 17.10.2008 kl. 10:28

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir þetta Milla mín. Stórt faðmlag

Kristín Katla Árnadóttir, 17.10.2008 kl. 10:38

6 Smámynd: Brynja skordal

takk fyrir þetta Milla mín hafðu ljúfa helgi Elskuleg

Brynja skordal, 17.10.2008 kl. 11:29

7 identicon

Takk fyrir þetta, Milla mín!

Ég fékk þetta líka sent í tölvupósti frá henni Ingu, frábært hjá þér að setja þetta inn á bloggið hjá þér, svo fleiri geti séð.

Kær kveðja á þig

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 11:31

8 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Já hún Inga er bara Gullmoli það er nokkuð ljóst, ég fékk þetta líka í póst frá henni og þetta svona hífir mann upp að lesa þetta frá henni

Guðborg Eyjólfsdóttir, 17.10.2008 kl. 11:57

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Stelpur mínar við höfum allar fengið þetta mail sem höfum verið í sambandi við Ingu, en aftur á móti setti ég þetta inn fyrir þá fjölmörgu sem vita ekki einu sinni um hvað málið snýst.

Og við verðum núna að vanda orð okkar sér í lagi í kringum börnin okkar
hef nefnilega hlerað að þau eru að hugsa um þessi mál sem þau í raun skilja ekki.

Tek undir það að Inga er gullmoli og sendum henni hlýjar kveðjur.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.10.2008 kl. 12:40

10 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 17.10.2008 kl. 18:12

11 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Þetta er virkilega fallegt nú ætla ég að setja þetta í hausin á mérPeningar maður verður ekki hamingjusamur af þeim Nú ætla 

að setja hökuna upp og brosa allan hringin 

Vá hvað þetta segir mikið

Milla mín takk fyrir að setja þetta hér svo ég gæti lesið þetta

Sendu þessari konu knús og faðmlag fyrir mig 

Kveðja og stórt knús á þig Milla mín

Rugluspiladósin 

Ólöf Karlsdóttir, 17.10.2008 kl. 23:27

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku Óla mín gott að þú skildir fá ljómun af því að lesa þetta við eigum að fara eftir þessu alla daga og muna í raun hvað við eigum gott.
Ljós og bjartsýni til þín rugludallurinn minn
Þín Milla sko ruglan á Húsavík.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.10.2008 kl. 07:55

13 Smámynd: Líney

Hjartanlega   sammála, þurfum  meiri jákvæðni þessa dagana.

Líney, 19.10.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.