Ja hérna er þetta að gerast hér?
6.12.2008 | 10:21
Fálkinn hefur sig til flugs eftir fyrirsætustörfin á ljósastaurnum.
mbl.is/Hafþór Hreiðarsson
Fálkinn sem sagt var frá hér á fréttavef Morgunblaðsins í gær heldur áfram að veiða sér til matar í miðbæ Húsavíkur. Hann náði að læsa klónum í aðra önd við Búðarárgilið í morgun og virðist helst vilja endur á hádegisverð.
Þegar ljósmyndara bar að garði við Marabrautina sat fálkinn sem fyrr á ljósastaur. Annað hvort hefur hann verið ónáðaður við veisluborðið, sem var í snjóskafli, eða orðinn pakksaddur því ekki var hann búinn með bráðina.
Hann sat sem fastast á staurnum allt þangað til honum fannst nóg um athyglina sem hann fékk og tók flugið til vesturs út á Skjálfanda.Ekki má kæra hann, hann er friðaður rétt eins og endurnar
gæti alveg hugsað mér að fá að drepa endur mér til matar
þó ég mundi nú ekki taka niður þessar heldur fara aðeins
ofar í landið til þess, er nú reyndar að grínast þetta eru vinir
mínir koma ævilega upp á hól til að fá brauð frá vori fram á mitt
sumar, en samt bara ósanngjarnt.
Eigið góðan dag í dag
Milla.
Fálkinn enn að á Húsavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Eigðu góðan dag
Hólmdís Hjartardóttir, 6.12.2008 kl. 10:50
Flottur fálki. Það er gaman að svona frétt.
Ásdís Sigurðardóttir, 6.12.2008 kl. 12:01
Það var svo flott vísan um börnin í síðustu færslu hjá þér að ég verð að koma með eina sem minnti mig á hana. Það var semsagt maður heima í denn sem var alltaf kallaður Ingi pungur og einhver orti um hann..
Ingi pungur er með pung
eins og pungur í framan
hefur pung og heldur á pung
og hefur af pungum gaman.
Thí hí....
(vonandi ekki of gróft )
Eigðu góða helgi
Hindin (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 12:05
egvania, 6.12.2008 kl. 13:52
Dóra mín knúsa alla frá þér og sömuleiðis.
Sömuleiðis hólmdís mín ertu ekki að fara á mótmælafundinn?
Ásdís mín hann er flottur,
en hann má ekki drepa endurnar mínar
Nei nei Hindin mín alsekki of gróft, bara flott vísa.
Ásgerður mín ljós til þín besta vina
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.12.2008 kl. 13:58
Fallegur.
Góða helgi til þín Milla mín
Hulla Dan, 6.12.2008 kl. 15:34
Takk fyrir notalega samúðarkveðjuna
Marta B Helgadóttir, 6.12.2008 kl. 16:18
Sömuleiðis Hulla mín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.12.2008 kl. 17:31
það er svo frá hjartanu Marta mín
ljós og kærleik til þín og þinna
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.12.2008 kl. 17:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.