Fyrir svefninn.

Eins og hjá öllum er nóg að gera hjá mér þó ég megi og geti
ekki neitt. Við fórum í búð í dag og kláruðum að kaupa allt sem
vantaði nema það sem kaupa þarf á Þorláksmessu eins og rjóma
og mjólk.

Í kvöld borðuðum við saman og Dóra mín eldaði, það var fiskiveisla
o la Dóra. Kaffi og brún lagterta á eftir sem hún var að baka í dag,
ég bað um gyðingakökur, borða eigi svona brúnt tertusull.

Litla ljósið er rétt nýfarin heim Tvíburarnir fóru með hana, því hún var
ekki tilbúin að fara er þau fóru mamma hennar og pabbi, en vildi
samt ekki sofa.


                   Mig var að dreyma.

                      Þögnin og ástin
                      eru systur.---
                      Mig var að dreyma
                      að ég væri kysstur.
                      Eg mætti í svefninum
                      mjúkum vörum.
                      Eg vaknaði einn,
                      ---þú varst á förum.

                     Eg hefði kosið þér
                     kærsta óðinn.
                     En þögnin fjötraði
                     þrána og ljóðin.
                     Hún oft mig vefur
                     í arma sína
                     og stingur svefnþorni
                     söngva mína.

                                  Magnús Ásgeirsson.

Góða nótt
HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fallegt.  Takk fyrir daginn kæra Milla og eigðu góða nótt og vonandi góðan dag fyrir höndum.  Kær kveðja úr jólasnjónum í Mosó.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 21:31

2 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Góða nótt gæska..

Sigríður B Svavarsdóttir, 18.12.2008 kl. 21:50

3 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Dugnaðar forkur bara búin að öllu, ég ætla nú í fyrstu og seinustu innkaupaferðina til Akureyrar á laugardaginn. Kvitt og kveðja.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 18.12.2008 kl. 22:09

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 19.12.2008 kl. 00:19

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 19.12.2008 kl. 00:43

6 Smámynd: egvania

Kæra Milla kærleikur til þín

Ásgerður

egvania, 19.12.2008 kl. 04:10

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 19.12.2008 kl. 07:57

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Bara að táta vita af því að þessi stelpa mín vissi ekki að ég borðaði morgunmat kl 7 og heyrði sko alveg í henni er hún fór frammúr, en maður má nú stundum kúra
Góðan daginn kæru vinir og takk fyrir hlýjar kveðjur. hef hugsað mér að vera bara stillt í dag, má ekki vera bara í rúminu yfir jólin.
Ljós í daginn ykkar
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.12.2008 kl. 10:28

9 Smámynd: Líney

Góðan dag mín kæra

Ég ætla að fara  að fordæmi þínu og klára  innkaupin í dag og á morgun,þannig að einungis ferskvaran,mjólk,rjómi og þ.h sé eftir til þorláksmessu eða jafnvel aðfangadagsmorguns,hef  þurft í búð  á aðfangadag og þá var engin röð eða ys og þys eins  og á þollák,sé bara til með þetta... knús og kyss norðurvonandi hafið þið það sem  allra best

Líney, 19.12.2008 kl. 10:32

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góðan daginn Milla mín.  Hér er snjór og yndislegt veður. Er svona að huga að því hvað þarf að kaupa, strákurinn fer í það eftir helgi með pabba sínum.  Kveðja norður.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.12.2008 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband