Fyrir svefninn.

Dagur er að kvöldi kominn búið að borða, sneiða rúgbrauðið
og það komið í frystiskápinn.
Hér er búið að vera mikið fjör í dag, var með fatakynningu
og einnig kom Ósk og var hún að kynna grafin ufsa og sósu
sem hún gerir sjálf, ristað brauð hafði hún með, þetta er
betra en grafin lax.
Gísli minn var í því að hella á kaffi og uppvarta okkur, eins og
ég hef sagt áður þá veit ég ekki hvernig ég færi að án hans.

Við fórum að tala um hollustu og allskonar aðferðir til að grenna
sig, eins og allir vita þá er sú aðferð bara til í okkar heilabúi.
Þar byrjar allt það sem við viljum gera.

Spurningin er bara sú: ,, hvort vill maður gera eitthvað í sínum
málum og hafa það gott í ellinni eða gera ekki neitt og enda í
hjólastólnum á elliheimili?"
Okkar er valið.

Ferðalagið.

Ég get ekki sagt þér hve leiðin er löng.
Ég las engin rastarmerki.
Mér fannst hún sem barni bæjargöng,
er býst það um nótt frá verki.

En ef til vill var hún engu lík
og einstæð af sorg og gleði
Ég lifi upp oft þá undraferð,
er andvaka ligg á beði.

Ólafur Jónsson

Góða nótt
HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

´Hæ elsku Milla mín, ég er bara í helgarfrí á eftir tvær vikur. Kær kveðja norður.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.3.2009 kl. 21:17

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góða nótt Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 7.3.2009 kl. 22:05

3 identicon

Stuðið sem hefur verið á ykkur frýr. Góða nótt kæra húsvíska mær og skilaðu kveðju til þinna frá okkur.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 22:44

4 identicon

jú jú amma hún ætlaði að sofa hjá ykkur.   Við fengum bara ekkert að heyta af því fyrr en hún fór að hágráta upp í rúmminu sínu kl 9:30 á leið í draumaheiminn. Jú þá mundi hún eftir því að hún ætlaði sko að sofa hjá ömmu.......................

Milla jr (IP-tala skráð) 7.3.2009 kl. 22:54

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æi elsku litla ljósið hennar ömmu sinnar, gátu þið ekki bara ekið barninu hingað yfir ekki langt að fara eða afi hefði getað sótt hana.
Ég fæ nú örugglega söguna seinna.

Kærleik til ykkar
Amma og afi.


Góðan daginn kæru vinir ætlaði ég að segja og eigið góðan dag í dag sem alla daga.
Hér er stórhríð eins og við köllum þetta nú til dags.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.3.2009 kl. 09:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.