Viðbót við færsluna mikið var.

Langar til að bæta við nokkrum atriðum sem ég var eiginlega
of þreytt til að tala um í gærkveldi.

Allir vita það að vændi, barnaklám og klám af öllum toga
hættir aldrei, það verður alltaf til.
Einnig vitum við að klám tengist víni, dópi og öfugt og við
munum aldrei að fullu getað aftrað því.

Þessi lög eru nauðsynlegur og góður liður í því að geta náð
til þeirra sem stunda kaup á klámi.

Hef nú oft talað um þetta áður, en það erum við foreldrar,
ömmur, afar, leikskólakennarar, kennarar og allir þeir sem
koma að uppeldi barnanna okkar sem þurfa að hjálpast að
við að ala börnin upp í góðum gildum, hvað sé rétt og rangt.

Mikið hefur til dæmis borið á virðingaleysi í tali barna og það
er miður því barn sem sýnir öðrum virðingaleysi ber ekki virðingu
fyrir sjálfum sér, þetta þarf að laga.
Einnig er afar brýnt að ala börnin upp þannig að allt þetta sé
ekki eins og kennsla heldur að það sé bara liður í lífinu rétt eins
og að bursta tennurnar, borða, klæða sig og umfram allt að sýna
þeim kærleikann því ef þau ekki fá hann þá leita þau eftir honum
í hinum ýmsu myndum.

Eigið góðan dag í dag
.
Heart


Og ég spyr af hverju ekki fyrir margt löngu, var einhverjum
hagur í að hafa þetta svona?

Fyrirgefið það er von að maður spyrji, búið að taka of mörg
ár að setja þessi lög.

 

Til stendur að breyta almennum hegningarlögum þannig að kaup á vændi verði gert refsivert.

Til stendur að breyta almennum hegningarlögum þannig að kaup á vændi verði gert refsivert. mbl.is/Árni Torfason

// Innlent | mbl.is | 17.3.2009 | 15:03

Kaup á vændi verði refsiverð

Í nýrri aðgerðaáætlun gegn mansali, sem ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag, eru lagðar til aðgerðir sem miða að því að sækja gerendur til saka, auka aðstoð við þolendur og tryggja vernd þeirra. Þá stendur til að breyta almennum hegningarlögum þannig að kaup á vændi verði gert refsivert.

Einnig á að girða fyrir undanþágumöguleika í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald fyrir nektarstaði þannig að lögin banni alfarið starfsemi nektarstaða. Þá verða siðareglur settar fyrir Stjórnarráðið og opinberar stofnanir sem fela í sér skýlaust bann við kaupum á kynlífsþjónustu. 

Talað er um að þessi lög færi málið neðanjarðar, en það er
ekki endalaust hægt að skýla sér á bak við það.
Ef eftirlitið með þessu er gott ef stúlkur vita að þær geta
fengið hjálp þá hlýtur þetta að minnka þó við vitum að ætíð
verði þetta til því miður.
Vonum það besta.

Góða nótt
HeartSleepingHeart


mbl.is Kaup á vændi verði refsivert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott kvöld hér. 

Já meiningin er góð líklega.  Áfengisbannið í bandaríkjunum þar sem kaup á áfengi var bannað varð til þess að færa kaup og sölu áfengis undir glæpaflokka og skapa þar með glæpamönnum alveg gríðarlegar tekjur. 

Reikna má með að sama gerist með vændi undir þessum nýju lögum.  Þetta færir tekjur til glæpahópa.  Vegna þess að ekki er þorandi fyrir leikmenn að gera viðskiptin nema fyrir tilstuðlan glæpona vegna hættu á ákæru.  Að komast í viðskiptin gegnum undirmálsmenn tryggir að viðskiptin séu ekki "under cover" aðgerð lögreglu eða DV.

Þetta er afturför að mínu mati og menn geta rétt ímyndað sér þá aðstöðubreytingu sem konurnar verða fyrir.

Svona frumvarp nánast tryggir aðkomu þriðja aðila að vændi í öllum tilfellum.

Árni (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 20:37

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Er ekki sammála þér Árni en það er allt í lagi að við séum eigi með sömu skoðun.
Kveðja til þín.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.3.2009 kl. 21:14

3 Smámynd: egvania

Milla mín góða nótt.

egvania, 17.3.2009 kl. 22:00

4 identicon

Þá verður vændisþjónusta ókeypis í þessu landi hér eftir sem er ágætt fyrir illa borgandi neytendur, nei djók. Það verða samt örugglega fundnar leiðir framhjá þessu ef ég þekki hórumangara þessa lands rétt (þekki þá samt ekki neitt, ekki misskilja strákinn gott fólk). Annars góðir punktar hjá þér Milla mín. Vonandi hefur Árni ekki rétt fyrir sér, en hann ber kynlífssölu saman við áfengi og dóp. Þekki ekki samanburðinn. Sem betur fer. Eigðu annars ofsalega góða nótt mín kæra og skilaðu kveðjur frá okkur.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 22:02

5 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Þessi lög voru þörf fyrir löngu en ég fagna að nú hafi vændi verið bannað. Vændi er brot á mannréttindum og með lokun þessara nektarstaða mun það að mestu hverfa en þó þarf líka að vera á varðbergi fyrir vændi sem er rekið í heimahúsum eða auglýst á netinu.

Klámvæðingin er vonandi að deyja út.

Hilmar Gunnlaugsson, 17.3.2009 kl. 22:14

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góða nótt mín kæra

Sigrún Jónsdóttir, 17.3.2009 kl. 23:10

7 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Vallý þó og skilja mig eftir úti Milla mín nú verð ég að fylgjast með heimsókn á vissan stað .Eins gott að ég flækist ekki í það.Góða nótt Milla mín ,Óla og co

Ólöf Karlsdóttir, 17.3.2009 kl. 23:46

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásgerður mín góðan daginn og endilega vertu í bandi elskan
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.3.2009 kl. 07:29

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Einar minn þú veist nú að ég sem kalla þig strák misskil eigi orð þín.
Auðvitað verður vændi alltaf til, en vonandi tekst með öllum þeim ráðum sem við eigum til að bjarga einhverjum.

Árni er að líkja saman tíma AL Capons þá voru nú löggumenn bara drepnir ef þeir stein héldu ekki kjafti og litu undan.
Við skulum vona að það verði minna um svoleiðis ofbeldi og mútur
núna.

Því miður fer þetta saman vín dóp og vændi, en þessi lög voru samt nauðsynleg.


Góðan daginn kveðjur til ykkar í Mosó
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.3.2009 kl. 07:38

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hilmar minn klámvæðingin deyr aldrei út, ég vildi að það væru fleiri menn eins og þú, en hvernig dettur þér í hug að menn sem eru sjúkir í svona ógeð hætti eins og hendi er veifað, Nei Hilmar því miður það verður aldrei. rétt hjá þér á varðbergi verðum við að vera.
Kveðja til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.3.2009 kl. 07:43

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Knús í daginn þinn Sigrún mín

Ladý Vallý posavél? sko Óla viltu vera á varðbergi með hana Vallý.
Þú hringir bara í Pétur ef einhver grunur læðist að þér.
Knús í daginn ykkar
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.3.2009 kl. 07:47

12 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 18.3.2009 kl. 08:15

13 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ía Jóhannsdóttir, 18.3.2009 kl. 08:48

14 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Knús til ykkar Ía og Solla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.3.2009 kl. 10:17

15 Smámynd: Auður Proppé

Auður Proppé, 18.3.2009 kl. 10:24

16 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Sigríður B Svavarsdóttir, 18.3.2009 kl. 11:04

17 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Knús til ykkar elskurnar eigið góðan dag

Væri nú gott ef einhver mundi kommenta á þessa færslu mína,
hef áhuga á að vita hvað fólki finnst um þessi mál.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.3.2009 kl. 11:43

18 identicon

Ég er nú svolítið mikið hrædd um að hann Árni sem skrifar efsta kommentið hafi rétt fyrir sér í þessum málum, því miður held ég að þetta sé að virka eins og hann sér það.

Ljós til þín Milla mín.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 11:56

19 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Jónína enda segi ég það síðar í kommenti frá mér.

Knús Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.3.2009 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.