Hvaða fjandans rugl er þetta

Stjörnuspá

SporðdrekiSporðdreki: Það er ágætt að setja traust sitt á aðra,
en umfram allt átt þú að treysta á sjálfan þig.
Segðu nýju ástinni frá leyndarmálum og þrám,
og þið verðið nánari.

Þetta er nú meira ruglið, ekki á ég neina nýja ást, bara hann
Gísla minn sem ég er búin að hafa afnot af (og hann af mér)
í 12 ár, Auðvitað á maður að treysta á sjálfan sig, en það er nú
í lagi að eiga klett eins og hann.

Hver er klettur heilla þjóðar, jú það erum við, og við höfum
val um allt sem gerist í okkar lífi, engum er hægt að treysta
nema sjálfum sér. Förum þá að gera það.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Milla.

Góður morgunn pistill.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 25.9.2009 kl. 07:15

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn Þórarinn minn
Kær kveðja
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.9.2009 kl. 08:50

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Kveðjur norður til ykkar allra.

Ía Jóhannsdóttir, 25.9.2009 kl. 14:01

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Hehe, er líka sporðdreki .. mín "nýja ást" er a.m.k. í felum ennþá!

Jóhanna Magnúsdóttir, 25.9.2009 kl. 17:19

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hlakka til að þú birtir mynd af nýju ástinni. Þegar ég stóð á krossgötum 1992 var ég á leið í bæinn, á Stapanum leit ég yfir dýrðina sem blasti við mér og varð í fyrsta skipti í tuga ára ástfangin og það í lífinu, síðar bættist Gísli minn í þessa ást 1997, hún varir, og tel ég það vera vegna þess að við látum ekki neitt hafa áhrif á okkur og erum ekki með kröfur á hvort annað.
Jæja nú er komið upphaf af ræðu hjá mér, en er hætt, elsku Jóhanna mín ég hef mikla trú á að þú blómstrir í þínu nýja lífi.
Kveðjur
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.9.2009 kl. 18:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.