Skemmtilegur sunnudagur

Fórum allar á fimleikasýninguna í morgun, hún var bara æðisleg það er svo gaman að sjá framförin hjá þessum krökkum, einn strákur er með og er það Hjalti Karl frændi Aþenu Marey.
Hér koma smá myndir, ég tók ekki margar þær koma örugglega frá Millu og stelpunum.


100_9220.jpg

Þetta eru ljósin Hjalti Karl og Aþena Marey, tekið eftir sýningu.
Þau eru yndisleg

100_9215.jpg

Þarna eru allar stelpur í jólakjólum sem stjórnin saumaði á þau
nema Hjalti Karl er ekki eins og þær enda eini strákurinn.

100_9218.jpg

Þær eru nú bara ekki nógu góðar þessar myndir, en sýna samt smá.


100_9211.jpg

Þarna eru englarnir mínir að horfa á og Ingimar og Dóra sitja fyrir
aftan, Milla var upptekin í vinnu því hún er í stjórninni.

Þegar þetta var afstaðið var ekið á Eyrina farið í búðir á göngugötu
Haldið ekki að frúin ég hafi ekki keypt eina stuttkápu, rosa flott.
Ókum þeim svo upp í Höll frá henni ókum við niður einhverja götu
sem mig minnti að alveg niður að kirkju eða þar, en nei lenti í blind bak
við skólann og sátum þar föst, hálkan var svo mikil að við komumst ekki
upp brekkuna aftur.
Ég hringdi bara í löggufólk og þau komu tvö, yndisleg ætluðu að kippa
í okkur upp, en það var engin krókur til að lykkja í svo löggumann
bakkaði bara bílnum upp, en það rétt hafðist, Gísli minn fékk að koma
með löggukonunni upp brekkuna og það var nú rétt svo að jeppinn
hefði það upp.
Takk æðislega fyrir hjálpina kæru löggur.

Þetta kostaði það að við rétt náðum á Glerártorg að kaupa okkur stól
við tölvuna, en allt í lagi förum bara aftur seinna.

Sóttum svo mæðgur eftir hljómleik, fengum okkur smá að borða og
svo var ekið heim, fyrst með þær að Laugum, komum svo aðeins við
hjá ljósunum okkar, nú erum við komin heim í hlýjuna okkar.

Kærleik á línuna
Milla
Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að myndunum.  Flottir krakkar að dansa, og englarnir flottir.  Það er gott að vita af góðum löggum þegar eitthvað bjátar á hjá manni.  Takk fyrir þetta Milla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.12.2009 kl. 13:37

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk elskan, já þessar löggur geta sko verið æðislegar og alveg bráðnauðsýnlegt að geta leitað til þeirra.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.12.2009 kl. 13:46

3 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Flottar myndir og örugglega gaman  

Er bara að kvitta fyrir innliti 

Ólöf Karlsdóttir, 7.12.2009 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.