Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
Björk er sjálfri sér samkvæm.
6.3.2008 | 07:14
Björk er afburða listakona, það sem mér finnst
svo gott við hana, hún skapar list sína í ljósi þess
sem hún sér og upplifir í heiminum.
Síðan syngur hún það sem hún hefur skapað og engin
kemst hjá því að hlusta og taka eftir boðskapnum.
Declare Independence.
Er að sjálfsögðu fyrir alla sem þurfa þessa hvatningu.
Heyr fyrir þér Björk Guðmundsdóttir.
![]() |
Yfirlýsing frá Björk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fyrir svefninn.
5.3.2008 | 21:07
TVÆR SÍÐUSTU SÖGURNAR AF VILHJÁLMI
BÓNDA Á STÓRA-HÓLMA Í LEIRU:
Vilhjálmur var eitt sinn í róðri með sonum sínum.
Á heimleiðinni fengu þeir logn og hita,
og mun Vilhjálmi hafa þótt synir sínir róa linlega.
Hann segir þá við strákana:
,, Ekkert langar mig til að eiga heima hér".
Vilhjálmur fór til Vesturheims með fjölskyldu sinni,
og kom aftur eftir tvö ár, en fjölskylda hans varð eftir vestan hafs.
Hann settist aftur að suður í Leiru. þá voru samgöngur milli
Vesturheims og Íslands ógreiðari en þær eru nú.
Einu sinni fréttist það í Leirunni, að kona Vilhjálms mundi dáin.
Kona nokkur fer til Vilhjálms og spyr,
hvort það muni vera satt.
Þá segir Vilhjálmur:
,, Ég fékk nú bréf frá henni alveg nýlega,
og ekkert gat hún um það".
Góða Nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Að gefnu tilefni. Svör við spurningum fólks.
5.3.2008 | 11:21
Ég hef oft verið spurð að því hvort ég væri mjög trúuð.
Vegna þess að ég tala mikið um kærleikann.
Ég hef mína trú frá barnæsku,
ekki var neitt sérstaklega verið að tala um það í mínum uppvexti
að ég ætti að fara með bænir og slíkt, en maður bara gerði það.
Auðvitað fór ég eins og aðrir í sunnudagsskólann,
og svo var trúin bara þarna, mér var kennt að vera ætíð góð við aðra.
Hef ég reynt að fara eftir þessu, en þið vitið hvernig það er í lífinu.
Þegar maður er ungur og óþroskaður, er maður oft óvæginn,
og þar var ég ekkert öðruvísi en hinir, ef einhver gerði á hluta minn eða minna,
þá var ég upp eins og fjöður og varði mitt.
Ég hafði þá ekki þroska til að skilja að maður eltir ekki ólar við
ósanngirnina, eyðir ekki orku sinni í ólarnar.
Þegar ég þroskaðist upp í kærleikann, þá kenndi ég börnunum mínum,
eftir því sem ég best kunni, að elta ekki ólar við vitleysuna.
en auðvitað þurftu þau að læra og þroskast alveg eins og ég
af sínum eigin mistökum.
Þau þurftu líka að ganga í gegnum heimiliserfiðleikana með mér,
og þroskuðust mikið á því.
Ég fer aldrei í kirkju nema ég þurfi þess, en ég fer út og anda að mér
loftinu úr náttúrunni, þaðan fæ ég orkuna.
Ég trúi á að ég sé það sem ég hugsa. Ég trúi á englana, álfana,
fjöllin, jöklana, alheimskraftinn og kærleikann.
Svona hugsa ég, og þar af leiðandi lifi ég í kærleikanum,
þó ég geti orðið reið.
Kveðja til ykkar allra Milla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Snjór í Eyjum, snjóflóð, óveður og viðvaranir.
5.3.2008 | 06:28
Þetta hefur bókstaflega dunið á okkur, í blöðum
og fréttum yfirhöfuð.
Verst hefur þetta verið fyrir vestan, suðvestan og á suðurlandi.
Og það með svo miklum látum og stanslaust, að maður spyr sig
hvað er að gerast.
það sem hefur vakið mig til umhugsunar er þessi bleyka birta,
sem hefur komið fram, ef fólk hefur séð til himins.
þegar ég var að alast upp, sögðu menn, að þetta væri gosbirta
Nú væru hræringar eða jafnvel gos í vændum.
Við öllu er að búast á landi voru.
það er nú annað sem mér finnst óhugnanlegt, þú ferð í tölvuna
á morgnana, það sem blasir við þér á forsíðu er, stríð,
menn með hríðskotatól, blóðugt slasað fólk eða dáið.
Hvaða fólk er þetta jú, þeir sem minna mega sín.
Af hverju skildi maður aldrei sjá innrás á ríkar þjóðir?
líklegast vegna þess að þær kaupa sér frið.
Annaðhvort með Olíu eða peningum.
Ekki nenni ég svona yfirleitt að fara út í málefnalegar
útskýringar á hugleiðingum mínum, það tekur því ekki.
Eitt veit ég að mannslíf eru ekki virt, frekar en
skíturinn undir fótum sumra manna.
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Skildi hún hafa þetta?.
5.3.2008 | 06:00
Hillary Clinton er mín kona, ekki bara að því að hún er kona,
heldur vegna þess, að hún mundi stjórna af visku og ráðsemi.
Ekkert hef ég á móti Barack Obama, þekki ekkert til hans.
Óneitanlega væri það flott ef kona yrði forseti Bandaríkjanna
og vona ég að svo verði, en auðvitað kemur mér það harla
lítið við, og þó.
![]() |
Clinton sigraði í Ohio |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fyrir svefninn.
4.3.2008 | 20:51
FRAMHALD: Sögur af Vilhjálmi bónda á Stóra Hólmi í leiru.
Vihjálmur var illa við, að synir hans eyddu spariskildingum
sínum í óþarfa.
Einu sinni fóru þeir með föður sínum til Keflavíkur.
Þeir höfðu keypt sér þar rúsínur og voru að pukrast með
að éta þær á leiðinni heim.
,, Hvað eruð þið að éta, strákar?" spyr faðir þeirra.
,, Rúsínur", segja þeir.
,, finnst ykkur það ekki vera dýrt skepnufóður?"
Segir þá Vilhjálmur.
SR. Jón Skagan hætti prestskap og tók upp annað starf.
Þá var kveðið:
Skaust úr leik við skaparann,
skitnar ræður hætti að krota,
þegar í fjandanum fleygði hann
Flíkinni, sem hann hætti að nota.
VONGLÖÐ.
Gleðisjóinn geyst ég fer,
þó gutli sorg und kili.
Vonina læt ég ljúga að mér
og lifi á henni í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þetta eru sko flottar konur.
4.3.2008 | 11:35
Kvennaferð og kvennaskipulag,
Ef þær geta það ekki þá engin, að skipta sér niður í hópa
var rétt ákvörðun, minna umfang að sjá um ef eitthvað kemur upp á,
og ferðin gengur betur.
Það góða við ferðirnar í dag er nútímatæknin.
hér áður fyrr voru bara gömlu, en góðu talstöðvarnar.
Skildu eiginmönnunum ekki hafa verið órótt,
mörgum hefur örugglega langað að fara á móti þeim.
Flott hjá ykkur stelpur.
![]() |
Voru 16 klukkutíma til byggða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Hlýtur að koma að því.
4.3.2008 | 07:10
50 % líkur tjáir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur okkur,
Náttúruhamfarir eins og gos, hugnast manni aldrei.
Þar sem ég bý, hefur landslagið víða skapast af gosi,
ægifagurt er að aka um og skoða, t.d. Hljóðakletta, Ásbyrgi,
upp með Jökulsánni að Mývatni, Dimmuborgir og þar um kring,
enda í Aðaldalshrauninu, bara svo eitthvað sé talið upp.
Allt þetta svæði, skópu eldgos fyrir X mörgum árum síðan,
og hvílir dulúð yfir landshlutanum.
Stórmögnuð og virðingafull eru eldgos svo framarlega sem þau
valda ekki mannsskaða.
Góðar stundir.
![]() |
Helmingslíkur á eldgosi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fyrir svefninn.
3.3.2008 | 20:19
Vilhjálmur hét maður, sem bjó á Stóra-Hólmi í Leiru
á síðari hluta 19. aldar.
hann var greindur maður og fyndinn í tilsvörum.
Sigríður hét kona hans.
þau áttu sonu tvo, er hétu Björn og Bjarni.
Sjófang geymdi Vilhjálmur niðri við sjó, og voru strákarnir
stundum sendir þangað að sækja í matinn.
Vilhjálmi þótti þeir ærið seinir í förum.
Eitt sinn spyr hann konu sína, hvort hún sjái nokkuð til þeirra,
er þeir voru í slíkri för.
Konan segist halda, að þeir séu neðst í túninu.
,, Jæja", segir þá Vilhjálmur,
,, en sérðu hvort það er lífsmark með þeim?"
Háðsamir bræður.
Bræður háðir vamma vana
varpa hagsæld innra manns.
Smíða háð um smælingjana
smiðjubelgir andskotans.
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Stórfurðulegt. og óskiljanlegt.
3.3.2008 | 16:53
Óskiljanlegt er að fyrir nokkru var loðnuveiði bönnuð,
engin loðna fannst.
leit haldið áfram, Bingó loksins fannst hún og í það
miklu magni að lagt er til að auka aflamark um
50 þúsund tonn.
Landkrabbi hugleiðir nú hvort þorskurinn þurfi ekki að fá smá loðnu,
eða er þetta spurning um hver borðar meira af loðnu,
loðnuskipin eða hvalirnir, eða hvað, veit þetta einhver?
kannski finnst Þorskur í torfum eins og loðnan, hver veit.
Ein sem er alveg út að aka í þessum málum.
![]() |
Leggja til aukningu loðnukvóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)