Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Æ. þetta er yndislegt.

það er svo yndislegt að lesa svona fréttir í öllum
leiðindafréttunum sem á okkur hafa dunið.
Til hamingju með Apríl litla, fjölskylda kær,
hann á örugglega eftir að færa ykkur sóma og gull.


mbl.is Einstök fósturmamma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert skrýtið að maður sé ælltaf veikur.

Guð ég sem hélt að allir væru svo þrifalegir heima hjá mér að
ekki væri um neinar bakteríur að ræða á mínu takkaborði.

Nei í alvöru, Auðvitað spritar maður takkaborðið reglulega
þau verða nú svo rykug og skýtug svona sér í lagi þegar
barnabörnin eru búin að fá að fara aðeins í tölvuna.

En svo má maður ekki vera of þrifin, sumir sérfræðingar segja að
við séum að þvo á okkur veikindin.


mbl.is Fleiri sýklar á lyklaborði en klósettsetu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins! Fólk er búið að fá nóg.

Þar kom að því!, að fólk er búið að fá nóg, loksins
hafa augu fólks opnast, með það að ekki er endalaust
í tugaára hægt að troða á okkur þegnum þessa lands.

Og hvenær ætlar þessi blessuð ríkisstjórn að skilja að
hún er ekki að standa sig eins og skildi?

Sem betur fer er ekki alveg búið að heilaþvo okkur,
enda greindari en svo, að það gerist, hefur samt tekið
okkur svolítinn tíma að skilja að við höfum val og að það sé í
lagi að segja nei takk.


mbl.is Fylgi við Samfylkingu og ríkisstjórn minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er líka til á Íslandi.

Noregur ekki einsdæmi eins og fram hefur komið.
Þessi viðbjóður er til í öllum löndum, og hefur ætíð verið.
Hér áður og fyrr er dætur urðu vanfærar,
var oft vinnumönnum kennt barnið og þorðu þeir eigi
margt að segja.
Eða dæturnar neituðu að segja hver hefði barnað hana.
Hver veit um það hver átti þessi börn.

Þetta hefur og mun því miður alltaf viðgangast.
Skrímslin eru svo mörg í okkar heimi.


mbl.is Norsk kona eignaðist þrjú börn með föður sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að hann slasaðist ekki illa.

En það stingur ætíð í mig er talað er um, að fólk hafi
ekki slasast illa, að talið sé, síðar vill það nefnilega koma
fram að fólk hafi slasast.

Vonum að það komi bara í ljós að um slys hafi verið að ræða,
Það er nefnilega alveg komið nóg af árásum og misbeitingum
á fólk þó það sé ekki farið að keyra það niður líka.

Trúi því eiginlega ekki að um það sé að ræða.


mbl.is Bifhjólaslys í rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Jón litli,  fimm ára, var á gangi með eldri bróður sínum,
sem var miklu stærri. Maðurinn sem mætti þeim,
sagði við Jón: ,, Þú ert miklu minni en hann bróðir þinn."
,, það er von," svaraði strákur,
,, Því við erum bara hálfbræður."

Prestur er að tala um fyrir drykkjumanni og segir:
,, Ég veit til þess, að menn hafa orðið blindir af að
drekka áfengi."
Þá sagði drykkjumaðurinn:
,, Það er alveg öfugt farið með mig.
Ég sé tvöfalt, þegar ég er drukkinn."

Hjalti Pálsson framkvæmdastjóri Véladeildar S.Í.S.
sagði eitt sinn við viðskiptamann, að stefnt væri
að því, að ekki þyrfti annað en að styðja á
hnapp til að gefa kúnum.
Út af þessu orti Hjörtur Eldjárn:

                  Að því Hjalti er að keppa
                  með einum hnapp að gefa kúnni.
                  Þá er hart að þurfa að hneppa
                  þremur til að sinna frúnni.

                                      Góða nótt.Sleeping


Fyrir hundrað árum.

 Borgarstjórinn.

Samkvæmt lögum 22. nóv. 1907 skyldi hin nýja bæjarstjórn
kjósa í fyrsta sinn borgarstjóra fyrir Reykjavík til næstu sex ára.
Borgarstjórakjörið fór fram 7. maí.
Kosningu hlaut Páll Einarsson, sýslumaður í Hafnarfirði.

Gaman að lesa þennan:
                  ,, Heilbrigðis-nefndar-ilmur
.

18/5 1907 Oft hefur heilbrigðisnefndinni látið vel að sjá um þrifnað
bæjarins. En nú er eins og kóróni allt, að túnbletturinn framan við
menntaskólann, rétt við fjölförnustu göturnar þrjár,
Bankastræti, Lækjargötu og Laufásveg, er albreiddur af
samansettum jafningi af mannskít og kúamykju,
svo að ófært má heita út úr húsum í hverri af þessum götum,
sem vindur stendur upp á - ekki talsmál um að opnaður verði
gluggi í húsi áveðurs fyrir þessum heilbrigðis-nefndar- ilm.
Vér erum löghlýðnir af náttúru og uppeldi,
en fáist ekki nefndin til að ráða bót á þessu tafarlaust,
þá vorkennum vér engum þeirra herra, er hér eiga hlut að máli,
þótt einhver yrði til að taka einn þeirra eða fleiri
og nudda trýninu á honum upp úr túninu.
                                                                     Reykjavík.

Þess er vert að geta sem gert er.

Jafnframt því að láta vita þess getið að auminginn
Jóhann Bjarnason, að aukanefni ,,beri"
andaðist hinn 27. ág. síðastl. norður í Svarvaðadal
eftir nokkra vikna legu, finnur hreppsnefndin í kirkjuhvammshreppi
sér bæði ljúft og skylt að þakka hér með öllum þeim, sem fyrr og
síðar af mannkærleika gáfu aumingja þessum bæði föt og fæði
og viku góðu að honum á hans mörgu mæðuárum og ferðalagi
um landið. Fáráðlingur þessi er eflaust ,,einn af okkar minnstu
bræðrum" og fyrirheitið mun rætast á þeim,
sem veittu honum, margir af fátækt sinni.

F. h. hreppsnefndar
                   Kirkjuhvammshrepps.

Helguhvammi. 23. jan. 1908.

                 Baldvin Eggertsson.

Ekki gaman að lesa, orðalagið í þessari tilkynningu
er náttúrlega barns síns tíma, og væri talið
niðurlægjandi í dag.
                                 Eigið góðan 1. maí dag.
                                        Milla.Heart


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband