Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Yndislegt að hún er fundin, litla krúsin.

Maður fær alltaf sting í hjartað er svona fréttir berast,
aldrei að vita hvað er að gerast, og þarna eru líka
margir hættulegir staðir.

Guð sé lof að ekki lítur út fyrir annað en að henni hafi
bara langað á flakk, eða heim til sín, þetta er nú
akkúrat aldurinn sem þau rása svolítið.

Og eins og ævilega létu þeir ekki standa á sér
strákarnir í björgunarsveitinni.

Sendi litlu krúsinni og fjölskyldu hennar bestu kveðjur.


mbl.is Litla stúlkan fundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prestur grunaður um kynferðisbrot.

Tvær unglingsstúlkur hafa kært séra Gunnar Björnsson,
sóknarprest á Selfossi, fyrir kynferðisbrot.
Sömu heimildir herma að fleiri stúlkur íhugi að nú að kæra.

Talið er að meint brot Gunnars nái nokkur ár aftur í tímann.
málið kom upp í síðustu viku, þá barst lögreglunni á
Selfossi erindi frá barnaverndaryfirvöldum og kærurnar
tvær bárust næstu daga þar á eftir.
Lögreglan staðfestir að kærurnar hafi borist en vill lítið
tjá sig um málið að öðru leiti.

Farið hefur fram frumyfirheyrsla við Gunnar.

Gunnar óskaði eftir hálfs árs leyfi frá störfum í fyrradag.
Honum var veitt það og lét hann samstundis af störfum.

Saklaus uns sekt er sönnuð. Sagt og ritað.
Það er líka sagt og ritað, þar sem er reykur er eldur.

 


Fyrir svefninn.

Guðríður Húsfreyja sagði eitt sinn við Jóhann,
mann sinn:
,, Það er undarlegt með hana Guðrúnu,
nágrannakonu okkar, að hún skuli aldrei geta
viðurkennt galla barna sinna". ,, Það er ekkert undarlegt",
sagði Jóhann, ,, því að svona eru allar mæður".
,, Hvaða vitleysa er þetta!" sagði þá Guðríður. ,, Ég mundi
undir eins getað viðurkennt galla barna minna,---
ef þeir væru nokkurir".

                 Óráð vorsins.

         Í skugga vetrar sefur rós,
         snjórinn heldur á henni hita.
         Í gömlum vita logar ljós,
         látlaust í regnbogans svita.

         Vinur! Sérðu það sama og ég?
         Stúlkuna í bláa kjólnum?
         Sérðu hin bratta og beiska veg,
         og böðulinn í rafmagns stólnum?

         Veturinn er aðeins verkfæri æðri afla,
         viljalaus afplánar sinn dóm.
         Og er regnið laumulega leysir skafla,
         líttu þá á! Á jörðinni vaxa blóm.

                Arnoddur Magnús Valdimarsson.

                                      Góða nótt.Sleeping


Þetta getur eigi verið að gerast.

Auðvitað, allt notað, en til hvers, maðurinn er skrímsli
af verstu gerð, og þeir eiga bara eitt skilið, ætla ég ekki
að út tala mig um það.
En hver getur hugsað sér að verja þennan mann?.
mbl.is Segir Fritzl ósakhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt, fyrstu göngin dottin út.

Vonandi fylgja hin á eftir, merkilegt að hugsa um
af hverju þessi göng öll komu upp í kollinum á fólki.
Já alveg rétt," Í kolli mínum geimi ég gullið, stendur í laginu".
Áttu kannski að vera vegagjöld í þessi göng öll?,
kannski eru þetta gullverðlaun fyrir briljant hugmyndir
sem duttu í kollinn á sumum, nei bara smá hugdetta.

Merkilegt hvað ráðamönnum hefur langað mikið inn í
moldarkofana aftur, varla komnir úr þeim,
eða kannski eru þetta áhrif frá Star Wars myndunum
Þar er svona miðja göng út um allt og lyftur upp og niður,
en yrðu bara upp hjá þeim.
Nei annarrs það koma engin göng UFF! sem betur fer.


mbl.is Holtsgöng út úr aðalskipulagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Jóhanna var nemandi í Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Einu sinni segir hún móður sinni, að hún sé trúlofuð
einum af skólabræðrum sínum.
,, Hvað heitir hann?" spurði móðir hennar.
,, Hann heitir Jón", svaraði Jóhanna.
,, Og hvers son er hann?" spurði móðirin aftur.
,, Maður er nú ekki að spyrja um svoleiðis í gaggó",
svaraði stúlkan.

Magnús Torfason var að segja sögur í samkvæmi.
Eiríkur frá Hæli og Páll á Hjálmstöðum voru þar
viðstaddir.
Þá missti Magnús allt í einu þráðinn í sögu þeirri,
sem hann var að segja, og bað Eirík að segja sér,
hvar hann hefði verið í sögunni.
        Þá kvað Páll á Hjálmstöðum:

                      Barst mér andans bláþráður
                      bara að þessu sinni.
                      Finndu endann, Eiríkur,
                      á andans snældu minni.

                                              Góða nótt.Sleeping


Erum komin heim.

Er við vorum búin að ná í snúllurnar ókum við til hins
fagra staðar Akureyrar.
Byrjuðum í Bónus en fyrst fórum við inn á kaffihúsið hjá
Bónus og fengum okkur kaffi og eina saman bacetti.
Síðan fórum við að versla, er við komum út úr Bónus
hittum við fyrrverandi mág minn sem bauð okkur að koma í kaffi
þau voru í íbúð í einhverri síðu, við þangað en hittum þau aldrei
eitthvað skolast til í mér heimilisfangið.
Jæja niður í bæ, það var farið í Hagkaup, Glerártorg og að sjálfsögðu
í miðbæinn, í bókabúðinni voru keyptar bækur ekki ég, heldur þær,
Síðan fóru þær að kaupa sér skó, boli, buxur og allt sem þeim datt í hug
það er nefnilega komin vorhugur í okkur, en á misjafnan hátt.
Allavega var bíllinn fullhlaðinn er haldið var heim.
Áður en við fórum var farið á Hlölla Báta, sjúklega góðir,
ekki var skilið við Akureyri öðruvísi en að fá sér Brynjuís á eftir
nema ég, finnst ekki ís góður.

Brunuðum í Lauga með snúllurnar, þær ætla bara að vera heima
hjá sér þessa helgi, en koma langa helgi næst.
Hringir ekki síminn það er Milla að bjóða í pizzu að sjálfsögðu
heimatilbúna, Hún Milla er snillingur í grænmetis-pizzum,
svo við erum að fara til þeirra í mat.

Eftir helgi vona ég svo að veðrið verði þannig að maður getir
háþrýstiþvegið allt hátt og lágt, sko úti og inni,
blanda að sjálfsögðu ediki í sápublandarann á græjunum,
en ég get víst ekki spúlað innan-hús, Jesús stelpur haldið ekki
að það væri munur ef það væri hægt,
svo skal bara veðrið rétt ráða því hvort það verður ekki gott
um Hvítasunnuhelgina.
              Kærleikskveðjur til ykkar allra
                  Milla.InLove


Héllt að svona rugl væri úr sögunni.

En eigi eftir því sem maður les, þvílíkir gosar,
gott að það er verið að kæra þessa, "bjána",
Þó að ég viti það fyrir víst að menn sem aka með
annað fólk um óbyggðir landsins, undir áhrifum áfengis
lærir aldrei neitt siðferði.

Til hvers eru menn að fara út í náttúruna, til að njóta hennar?,
nei þá væru þeir ekki drukknir.
Þeir hljóta að vera að fara, að því að þeir halda að það sé í
lagi að haga sér eins og skepnur í náttúrunni.
Svona menn eru óhamingjusamir.


mbl.is Drukknir ökumenn skemmdu hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Förum af bæ í dag.

Það er alveg stórkostlegt hvað það er mikið að gera
hjá öllum, við borðuðum saman í gærkveldi, borðuðum 
steiktan fisk, kartöflur og ferskt salat.
Þær systur ætluðu kvennaferð til Akureyrar í dag,
En þá kom upp úr dúrnum að íþróttasýningin væri í dag
og þar sem Viktoría Milludóttir er í fimleikum þá var hætt við þá ferð.
En Dóra mín á erindi til Akureyrar, svo það kemur í hlut þeirra
sem ætíð er hægt að treysta á Tounge  sem sagt ömmu og afa,
að fara með elsku snúllurnar okkar í Akureyrarferð.
Svo núna erum við að hafa okkur til í þá ferð, nema ég varð,
auðvitað aðeins að líta í tölvuna.
Ætlum að vera komin í Bónus kl 10 og eiga svo daginn í eitthvað annað,
manni þarf aldrei að leiðast á Akureyri.
                  Kæru bloggvinir og þeir sem kíkja inn
                  megi þið eiga góðan dag í dag.
                  Kveðja Milla.Heart

Fyrir svefninn.

Í húsinu hverfisgötu 80 kom upp eldur í sumar.--
Magnús Magnússon ritstjóri leigir þar á 1. hæð.
Fjörgömul kona, sem býr í kjallara húsins varð
eldsins vör. Hún gat af tilviljun náð í lögregluþjóna,
sem voru fyrir utan húsið.
Þeir fóru strax á glugga magnúsar og börðu á gluggann.
Magnús hélt þetta vera drukna menn, bað þá fara og
hvaðst ekki opna fyrir þeim, en lögreglumennirnir börðu
því ákafar.
þá kallaði Magnús aftur út um gluggann:
,, Ef þið farið ekki undir eins,
þá hringji ég á lögregluna".

Vísur eftir Sæmund Björnsson í Strandasýslu um
Gvend lontu, er eina nótt ætlaði til stúlku í baðstofu,
en rak sig á kopp, er stóð á loftinu, svo fólkið vaknaði
við og Sæmundur líka.

                  Svefnsins firrtur var ég værð,
                  vert er slíkt að muna,
                  er bölvuð lontan ólm og ærð
                  anaði í hlandkolluna.

                  Þú hefur vaðið ramman reyk,
                  rétt er slíkt að muna,
                  er fjandann með þér fékkst í leik
                  að fala hlandkolluna.

                                     Góða nótt.Sleeping


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband