Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Gjafir sem gleðja.
11.9.2010 | 21:38
Hún Gulla vinkona mín kom í fyrradag og færði mér rós úr garðinum sínum, þetta eru gjafir sem gleðja,
gefnar af einlægni og kærleika takk elsku Gulla mín. Rósin er hér til hliðar.
Gærdaginn notaði ég til að fara á Eyrina, skrifaði undir sölusamning hjá Búseta og vænti þess að allt fari vel þar. Fór síðan í Touata umboðið og dúllaði mér smá í búðum, í Heim Hafsins fór ég til að heilsa upp á Huld og Halla keypti mér reyktan silung, íslenskt jurtakrydd og rúgbrauð. Er ég lenti á Húsavíkinni komu elskurnar Milla og c/o borðuðum við snarl saman.
Fór í morgun í búðir, merkilegt maður flytur á millihúsa og það vantar allt milli himins og jarðar og þá er bara að kaupa það, fór einnig í Töff Föt og fékk mér einar leggings. Kom heim gekk frá öllu saman skreið upp í rúm og svaf til þrjú það var bara yndislegt.
Síðan var matur hjá þeim kl 18 og er rétt komin heim og ætla bara að láta ykkur vita að ég er grútsyfjuð.
Kærleik á línuna
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 831936
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Til umhugsunar:
- Sósíalistarnir og svarti listinn
- End the Fed
- Tilgangslausar vottanir á kostnað neytenda og skattgreiðenda
- Þegar sunnan vindurinn blæs blíðlega
- Pétur Gunnarsson rithöfundur á RÚV
- Samsæriskenningar fjölmiðla
- Auglýsingar duga fyrir fólk sem hefur misst sjálfstæði sitt og sál, anda. Auglýsing er líka að hafa verið forsætisráðherra
- Tíu hnífar í hjartastað. Bradford Hill viðmiðin um orsakir sjúkdóma. Bólusetning við covid-19
- Vér sem í orðum fordæmum.
- Öllu frelsi fylgir ábyrgð, líka tjáningarfrelsinu
- Lengi lifi Ósjálfstæðis Marxisminn
- Þá er Ástþór Magnússon með vinsælustu greinina, augljóslega.
- Fyrstu 20 dagar maímánaðar 2024
- Aðförin að málfræðilegu kynhlutleysi
Athugasemdir
Elskan mín svona rósir gleðja og lifa lengur í minningunni en rósin sjálf.
Ég á eina mynd af rós sem húsbandið mitt gaf mér á ferðalagi og sú rós lifði lengi og lifir enn í minningunni.
Eigum við að láta vita af okkur þegar eyrarferð er í vændum og ef tími er til þá að hittast á kaffihúsi, þetta er nú hugmynd hjá mér og hver og einn verður að meta tíma sinn.
Ég verð á eyrinni á morgun og ætti að hafa tíma í kaffihúsaspjall, hvað um hádegið við hittumst síðast á Greifanum, ég er til ef þú ert til eða einhver úr okkar hóp.
egvania (IP-tala skráð) 12.9.2010 kl. 16:57
Ég get ekki verið á eyrinni á morgun, en læt vita í tíma ef ég get, er svo sannarlega til í hitting
Knús á þig dúllan mín
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.9.2010 kl. 17:58
Knús á þig elskuleg mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.9.2010 kl. 17:56
Þetta er ekkert smá flott rós sem þú hefur fengið frá henni Gullu. Æðislegur liturinn líka. Gott að þú ert komin í tölvusamband.
knús í þitt nýja hús
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 20:35
Takk Jónína mín, veistu að rósin stendur enn jafnfalleg.
Heyrumst
Knús kveðjur
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.9.2010 kl. 12:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.