Helgargleði.

Við erum búin að eiga yndislega helgi, þau komu að sunnan sonur minn með konu og tvö börn,
það má ekki gleyma bumbubúanum sem er að koma á þeim bæ,
það er lítill  Fúsilus og á hann að fæðast í september.
Við vorum öll saman alla helgina og dætur mínar sem búa hérna líka.
Börnunum kemur svo vel saman og eru alltaf jafn glöð að hittast.
Allir hjálpuðust að við  matartilbúning og allt í kringum það, nema Solla mín enda er hún bumbulínan,
Fúsi sagðist vera í sumarfríi og var aðallega að hamast í krökkunum sem var bara af hinu góða.
þau fóru síðan á sunnudeginum.
Manni finnst allt vera tómt, en ekki lengi, ljósið hennar ömmu sinnar kom labbandi til okkar í dag eins og hún er vön, það má nú ekki líða dagur án þess að ég sjá þær allar dúllurnar mínar hérna.
Nú við verðum ekki lengi án gesta, frænka mín er að koma í vikunni ásamt sínum.
Bróðir minn er að koma með sína konu um helgina, þetta er nú það sem ég veit í bili.
Gaman gaman!!!!!!!!!!!!            ÉG er InLove  í lífinu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband