Á þetta ekki að vera fullþroska maður?

Að mínu mati hefur þessi umræddi maður engan kærleika
handa stjúpsyni sínum.
Hvar er faðir drengsins, hann er kannski jafn slæmur,
vill ekkert með hann hafa, því að það getur ekki verið að móðirin
hafi orku til að sporna á móti þessu ástandi.
Kannski er hún beitt andlegu og líkamlegu ofbeldi
þannig að hún er ekki í stakk búin til að gefa neitt af sér.
Tek það fram að ég er ekki að saka neinn, les það hinsvegar
út úr málinu að það er miklu ábótavant í öllu sem snýr að drengnum
og hann er númer eitt, það eru börn alltaf númer eitt.
Guð veri með þessum dreng.
mbl.is Sló stjúpson sinn í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Nákvæmlega það er ekki allt í orden þarna, og greiið drengurinn fer greinilega eitthvað í taugarnar á fósturpabbanum, það er vonandi að móðirin hafi vit á að láta sig hverfa ef hún er ekki þegar búin að því

Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.2.2008 kl. 15:40

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Úff, ekki gæti ég verið með manni sem myndi ekki líka barnið mitt.. það er það eina sem ég get sagt um þetta..
Knús á þig Milla

Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.2.2008 kl. 15:43

3 Smámynd: Heidi Strand

Þetta getur haft alvarlegar afleiðingar á drengnum.

Ég las viðtal við stúlku hér í Danmörku.  Hún hefur verið árásargjörn og var i slæma stelpuklíku. Hún hefur beitt mörgum gróft ofbeldi en var sjálf fyrir  líkamlega og kynferðislegt ofbeldi í æsku af fósturpabba sínum.
Það eru líka til pedofila karla sem fer í sambönd við konur til að komast í börnin þeirra.

Heidi Strand, 14.2.2008 kl. 16:01

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það er svo mikið rétt hjá þér Milla, börnin eiga alltaf að vera númer 1 en því miður er það ekki á öllum heimilum. Eitthvað er greinilega ekki í lagi þarna fyrst að honum er liðið það að vera upp á kant við stjúpsoninn

Huld S. Ringsted, 14.2.2008 kl. 16:42

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það fer nú bara um mig er þú minnist á pedofila karla Heidi,
Huld mín það er örugglega ekki allt í lagi þarna.
Vonandi lætur þessi kona sig hverfa

Ég var á ráðstefnu um barnaverndarmál fyrir mörgum árum síðan,
þá var okkur sögð sönn saga konu, sem bjó með manni sem misnotaði barnið hennar, hann neitaði sök og bla bla bla.
Þegar upp var staðið þá valdi konan manninn og barnið var gefið í fóstur. Svona veikar geta konur orðið.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.2.2008 kl. 17:20

6 Smámynd: Ragnheiður

Las þessa frétt í gær, áreiðanlega á vísi. Þar var tekið fram að kærandinn hefði verið faðir drengsins þannig að honum virðist ekki vera sama.

Ragnheiður , 14.2.2008 kl. 17:30

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Gott að vita, en hann ætti þá að taka betur í taumana
áður en það er orðið of seint.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.2.2008 kl. 17:37

8 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Margir segja vínið gleður mannsins hjarta, eða hitt þó heldur.

Þorkell Sigurjónsson, 14.2.2008 kl. 20:04

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

einmitt ekki getur það hafa glatt þetta hjarta, svo er líka merkilegt hvað margir halda að þeir geti falið óargadýrið í sjálfum sér á bak
við vínið. Æ, hann var nú fullur greyið

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.2.2008 kl. 20:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband