Fyrir svefninn.

Strákur einn vann að því að snúa við brauðum í
Bernhöftsbakaríi hér í Reykjavík.
Ekki var hann neinn vitsmunamaður, en gat þó oft
komizt hnyttilega að orði.
þetta var í þá daga, þegar efnaðar konur voru að
taka upp danskan búning í stað hins Íslenska.
Eitt sinn var strákur þessi niðri á bryggju,
og var honum þá gefin hlýri.
Hélt hann nú heimleiðis með fiskinn og dró hann
á eftir sér. hann mætir þá skipstjórakonu,
sem hann þekkir, og er nýkomin á danskan búning.
,, Hvaða fisk ertu þarna með?" spyr konan.
,, Það er ýsa á dönskum búning", svaraði strákur.


Gamall maður gekk niður að höfn og sá tvær stúlkur
sitja á viðarbunka.
Hann spurði stúlkurnar hvað þær væru að gera.
Þær snéru upp á sig og sögðust vera að veiða.
,, Já og sitjið á beitunni!" sagði karl.

                                           Góða nóttSleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Nei nei þær sátu á beitunni, þú skilur
þú mátt vaka eins og þú vilt snótin mín er bara að klára fyrir kvöldið
svo snúllurnar mínar komist í tölvuna Kisses
                      Knús inn í nóttina
                              Milla. 





Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.3.2008 kl. 20:51

2 Smámynd: M

Sæta drauma

M, 13.3.2008 kl. 22:24

3 Smámynd: Ragnheiður

Takk fyrir þetta, sátu á beitunni já hehehe

Ragnheiður , 13.3.2008 kl. 22:43

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir þetta Milla mín. Góða nótt.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.3.2008 kl. 23:04

5 Smámynd: Erna

Góða nótt

Erna, 13.3.2008 kl. 23:15

6 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Góða nótt Milla mín

Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.3.2008 kl. 00:29

7 Smámynd: Tiger

  Óhmæææ ... ungar bryggjusnótir sem sitja á beit-unni eru eins ljúfar og ungir sveinar sem mæta á bryggjuna með spariveiðistöngina sína í leit af fallegri beitu til að stinga í ... *roðn*. Úpps.... og fiskisagan flýgur.

Knús á þig elskulegust og góða nótt..

Tiger, 14.3.2008 kl. 02:49

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Guð nei sko Tiger míó, sátu þær ekki á síldartunnum sem beita var í?
eða var það eigi svo, Æ,æ.
voru þær kannski að? Nei! nei.
 Dolled Up  Dolled Up  Baby níu mán. síðar. UPPS.


Stelpur mínar takk fyrir innlitin Kisses ykkur allar.


Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.3.2008 kl. 06:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband