Fyrir svefninn.

Sumir dagar eru svo óvæntir, maður gerir eitthvað,
allt lýður áfram eins og í mjúkri þoku, við sátum hér í
tölvuverinu sem kallast svo ( í gríni) ég var að mála
andlit fyrir köngla engla, englarnir mínir sko ekki úr
könglum voru í tölvunni og  svo ræddum við um allt
milli himins og jarðar eins og vant er.
friður var mikill í herberginu.
Borðuðum síðan kvöldmat um sex leitið og ég ók
þeim svo heim.
Sérkennileg skýjalög voru á himni og haustlitina
teigaði ég í mig með góðu gróðurlyktinni sem kemur
inn um gluggann á bílnum.
Er búin að vera í tölvunni síðan ég kom heim.

Ein góð úr Íslenskri fyndni.

Stefán Jónsson fréttamaður átti tík, sem hann sagði
sjálfur að að væri vel hagmælt.
Stefán segist eitt sinn hafa verið að strauja lín, en
tíkin hefði viljað fá hann út með sér.
Þegar Stefán hélt áfram að strauja settist tíkin á
afturlappirnar og orti:

             Orðin feitur eins og svín
             afskaplega ljótur.
             Stirður við að strauja lín
              Stefán spýtufótur.

                      Góða nótt HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða nótt Milla mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.9.2008 kl. 21:45

2 Smámynd: egvania

Sæl Milla mín hvað ertu að rausa hér um haust þegar ég er búin að telja henni ladyVally trú um að hér hausti ekki.

Hvernig í ósköpunum kemurðu þessum haus í tölvuna ég er búin að brasa við það í marga mánuði.

Kærleiks kveðja Ásgerður

egvania, 21.9.2008 kl. 22:49

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús á þig Milla mín og góða nótt

Sigrún Jónsdóttir, 21.9.2008 kl. 23:16

4 identicon

Thí hí þessi var góð og nú get ég farið að sofa... og þá meina ég beint að sofa.. Kv Hindin.

Ps. Eigðu góða viku framundan.

hindin (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 00:05

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn skjóðurnar mínar.

Engin þreyta í mér Sigga mín.

ja hérna beint að sofa Hindin mín?

Katla og Silla kveðjur að norðan

Ásgerður mín held að ég geti hjálpað þér við þetta en best er að einhver sé þér við hlið er þetta er gert.
Allavega hafði ég það. skal senda þér leiðbeiningar í skilaboðum.

Sigrún mín knús

Auður mín þú veist ævinlega, knús

Lady Vallý það er ekki komið haust kjáni.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.9.2008 kl. 06:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.