Myndir frá mærudögum

Gísli minn fór á rúntinn til að taka myndir,
hér koma nokkrar.

100_8837.jpg

100_8836_884337.jpg

100_8838.jpg100_8777.jpg

Myndirnar hér að ofan eru frá skreytingum hjá Millu minni.
Hún smíðaði þetta úr brettum og málaði, sleikjóarnir eru netabelgir
á kústskafti.

Kem ekki fleirum myndum inn, eitthvað tæknivandamál. koma seinna.

Allir fóru í bæinn í dag nema gamla settið, síðan komu þær með mat
handa okkur um 6 leitið auðvitar var það fiskur og franskar.

Nú svo komu þær systur Erla og Mæja með Heiðar litla hennar Mæju
virkilega varð kátt í koti við þá heimsókn á eftir þeim komu Stebbi,
Smári og Maggi hennar Þorgerðar sem er í heimsókn á Íslandi, en
býr á Bretlandi, mjög skemmtilegt hjá okkur.
Núna er allt liðið farið í bæinn á ball sem mun standa til 3 í nótt.
Englarnir mínir eiga að vinna á morgun, svo afi mun aka þeim heim
í fyrramálið.

Kærleik á línuna
Milla
Heart



 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

um hvað eru eiginlega mærudagar ? :D

Hættþþ (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 20:43

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir flottar myndir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2009 kl. 20:46

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar eðjur inní helgina.............:O)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 25.7.2009 kl. 21:37

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gaman að þessu...flottar skreytingar hjá dóttur þinni

Sigrún Jónsdóttir, 26.7.2009 kl. 00:38

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Smart gert hjá Millu þinni!  Skemmtilega rest!

Ía Jóhannsdóttir, 26.7.2009 kl. 11:51

6 identicon

Flottar skreytingar hjá henni Millu þinni. Það þarf nú hugmyndaflug til þess að hafa þetta ódýrt en samt flott.

Knús og kveðjur.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2009 kl. 12:20

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æðislegar myndir og mikið er orðið gróið og fallegt við Baughólinn, verð að fara að skjótast norður, það eru miklar líkur á því eftir verslm.helgi.  Njóttu dagsins og kær kveðja til allra sem þekkja mig ennþá.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.7.2009 kl. 13:59

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Eva mín orðið Mæra þýðir sælgæti, einnig smákorn eins og mæra í skyri, flasa í hári.
Hér á Húsavík urðu til Mærudagar fyrir margt löngu sem undið hafa upp á sig og orðið af yndislegum dögum þar sem allur bærinn er skreyttur með heimatilbúnum karamellum og sleikjóum, bænum er skipt upp í litahverfi og er ég í bleika hverfinu.
Knús til þín

Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.7.2009 kl. 15:38

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk allar fyrir innlitin og já það er ýmislegt í gangi hvað skreytingar varðar, ekki eru nú karlmennirnir bestir.
Knús til allra

Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.7.2009 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.