Get nú ekki orða bundist,

Nýtt upphaf af hverju, ekki er búið að laga stöðu heimila í landinu, það er nefnilega ekki nóg að lengja og færa til, fólk verður í endalausum skuldum, á meðan á fólk ekkert nýtt upphaf.

Veit vel að það þarf að laga og byggja  sjúkrahús, en var þetta rétti tíminn, þarf ekki að jafna fjármagninu út um allt land, svo allir hafi vinnu. maður er nú svo oft búin að heyra að það sé verið að vinna og það vel og á fullu í öllum málum, en því miður verð ég ekki vör við það.

Eina sem ég verð vör við er hnúturinn í maganum er ESB og AGS ber á góma, siðlausari skrípaleik hef ég ekki heyrt um áður, en þetta eiga allt að vera svo góðir menn í ESB og AGS að þeir veita okkur mun betri skilmála en öðrum, Fjandans kjaftæði er þetta eiginlega.


mbl.is Nýtt upphaf markað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þeir eru ekki að gera neitt fyrir okkur.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.11.2009 kl. 16:53

2 identicon

Það verður fróðlegt að vita hvenær þessi mikla vinna sem alltaf er verið að vinna fer að skila sér. Það verða örugglega allir mjög hamingjusamir þegar það kemur nýtt sjúkrahús sem við höfum ekki efni á að reka. Jæja en hvað er þetta Milla mín ertu ekki búin að fatta að þetta er borgarríki. Annars virðast allar búðir alltaf vera fullar á höfuðborgarsvæðinu, ég er alveg hætta að skilja þetta fólk virðist alltaf vera að versla, það hlýtur að minnsta kosti að vera hagnaður þar.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 4.11.2009 kl. 23:10

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eina sem ég verð vör við er hnúturinn í maganum er ESB og AGS ber á góma, siðlausari skrípaleik hef ég ekki heyrt um áður, en þetta eiga allt að vera svo góðir menn í ESB og AGS að þeir veita okkur mun betri skilmála en öðrum, Fjandans kjaftæði er þetta eiginlega.

Algjörlega sammála þessu Milla mín.  Því lík þjóðarskömm sem þetta fólk er.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.11.2009 kl. 23:26

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásdís mín satt og rétt, ekkert að gerast af viti

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.11.2009 kl. 08:31

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Jú löngu búin að fatta það, þoli það bara ekki.
Auðvitað verður ekki hægt að reka þetta fína sjúkrahús frekar en þau sem fyrir eru, en kannski verða betri tímar þegar það verður tekið í notkun, á ekki bara að vera ein álma fyrst.
Það liggur nú við að maður fái krampahlátur við að hugsa um þessa vitleysinga alla, ÆI þeir eiga nú svolítið bágt, ræflarnir.

Knús knús

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.11.2009 kl. 08:35

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásthildur mín, við sjáum í gegnum þessa vitleysu

Kærleik í daginn þinn ljúfust
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.11.2009 kl. 08:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband