Kannski ég geti hlegið í ár

Það hefur nefnilega verið þannig undanfarin ár að ég hef ekki haft húmor fyrir skaupinu. Oftast hefur mér fundist að menn séu ekki að gefa allt sitt, sleppa fram af sér beislinu, frekar að margir hefti sig í sérgæskunni, mín skoðun.

Eina ástæðan fyrir áhorfi mínu á skaupið er að það er venja að setjast niður með börnum og barnabörnum, borðið hlaðið kræsingum svo engin þurfi nú að standa upp til að ná sér í gúmmiladet, horfa og reyna að kreista fram bros, kannski get ég hlegið í ár, það er jú kreppa, og eru kröfurnar ekki minni er svo er.

Vona að engin móðgis
tWhistling
mbl.is Algjört leyndó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg er ég sammála þér mér finnst fara of mikið í skrautumgjörðina og minna í það að hafa efnið skemmtilegt. Það er líka verið að vitna í efni sem er á stöðvum sem fólk hefur ekki aðgang að úti á landi eins og Skjáinn og Ínn þannig að það er ekkert skrítið að maður nái ekki sumum atriðunum.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 18:10

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já við vorum einmitt að rifja upp um daginn, suma skemmtiþætti sem voru drepfyndnir, stelpurnar mundu þetta allt og það rifjaðist upp fyrir mér eitthvað með pabbana sem voru heimavinnandi og allt í kringum það, mæyyi sýna þá þætti aftur.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.11.2009 kl. 19:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.