Velkominn, velkominn.
15.10.2010 | 08:23
Lalit Modi.
Sagður vilja fara til Íslands
Indverskir fjölmiðlar segja í dag, að orðrómur sé á kreiki um að Lalit Modi, fyrrum framkvæmdastjóri indversku úrvalsdeildarinnar í krikket, sem sakaður er um lagabrot í tengslum við viðskipti, muni reyna að fá hæli á Íslandi.
Tökum við honum, já auðvitað okkur vantar fjárglæframenn, okkar eru nefnilega flúnir land.
Ef marka má fréttavefinn India Today má rekja þennan orðróm til þess að eiginkona Modi sé góð vinkona íslensku forsetafrúarinnar, Dorritar Moussaieff.
Ég tala nú ekki um, en ætli Dorit hætti nú ekki að vera vinkona hennar núna er komið er í loftið að Lalit sé ekki alveg heiðarlegur
Indversk stjórnvöld hafa innkallað vegabréf Modi á þeim grundvelli að hann hafi ekki sinnt fimm dómkvaðningum í rannsókn á máli sem snýr að viðskiptum hans á alþjóðamarkaði.
Lögmaður Modi segir, í samtali við India Today, að Modi sé í lífshættu á Indlandi og geti því ekki sinnt kvaðningunni
Er það svo slæmt, okkar útrásarvíkingar eru nú ekki í lífshættu eða eru þeir það kannski ?
Sagður vilja fara til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ljós í daginn
14.10.2010 | 06:23
Megi góður guð hjálpa þessum mönnum og fólkinu þeirra til að ná sér eftir þennan ótta sem grípur alla sem í þessu lenda.
Til hamingju Síle
Öllum bjargað upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Segi nú ekki annað, en guð blessi þetta fólk.
12.10.2010 | 17:29
Já ég meina sko Jóhönnu og Steingrím, get nú eigi orða bundist, lagði mig aðeins og er ég vaknaði fór ég fram í eldhús, en í leiðinni var mér litið að tölvunni, blasti þá ekki við þessi frétt sem bar yfirskriftina Okkur hefur ekki mistekist.
Svo hrapalega hefur þeim mistekist að ég verð að biðja góðan guð að hjálpa þeim, það eru ár og dagar síðan átti að gera róttækar aðgerðir fyrir heimilin, ekkert hefur gerst, það átti einnig að hjálpa þeim sem minna mega sín, ekkert hefur gerst, á meðan hefur tíminn liðið og skuldirnar orðnar það miklar að fólk sér ekki fram á að geta nokkurn tímann borgað öðruvísi en að lifa sultarlífi og ekki hef ég orðið vör við að þau gerðu neitt fyrir þá sem minna mega sín, sultarólina herða þau á lífeyrisþegum með hækkunum á öllu sem við þurfum á að halda og eigi hækka bæturnar neitt.
Ætla nú ekki að fara að tala um atvinnuvegina sem hefði verið nauðsynlegt að hrinda í framkvæmd, en var ekki gert, hefðum við verið ver stödd ef allt hefði verið sett á fullt, nei ekki aldeilis.
Svo sitja þau og eru óbangin við að lepja í okkur fjandans vitleysuna og þessu fólki verður guð að hjálpa því við erum hætt að taka við sorpi.
Okkur hefur ekki mistekist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vonbrigði
12.10.2010 | 10:07
Já ég hef orðið fyrir vonbrigðum og það svo oft að ég er alveg búin að fá upp í kok af ógeði, fólk kemur fram eins og ég veit ekki hvað, jú auðvitað veit ég það, það er talað um jafnrétti á Íslandi hvar í fjandanum er það, maður er kúgaður niður í skítinn í það óendanlega, maður getur tekið á hinum ýmsu málum, en í nær hring á maður að geta treyst, það er hrunið traustið sem ég taldi að mundi halda.
Ég geri mér fulla grein fyrir því hvaða væntingar ég geri til annarra og hef ákveðið að ef þær ekki standast þá bara þurrka ég út þá sem halda að þeir geti leikið sér með traust mitt í það óendanlega, nú orðið á ég afar auðvelt með að þurka út þá sem hanga á öxlunum á mér og halda að ég trúi endalaust.
Ég er svo lánsöm að eiga heilsteypta fjölskyldu sem talar við mig af hreinskilni og takk fyrir það elskurnar mínar, nær og fjær.
Þetta er frábær setning: " Láttu þér standa á sama um fáfræði annarra"
Svo sannarlega ætla ég að reina það, oft nær þessi fáfræði tökum á manni og maður fer að ræða það sem fáfræðin er að segja við mann í staðinn fyrir að hlusta ekki og svara ekki.
Þeir sem eru fáfróðir halda að aðrir séu það líka og þess vegna sé þeim óhætt að mjaka til sannleikanum svo vel fari í eyrum annarra.
Stjörnuspáin mín í dag passar afar vel
Sporðdreki: Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum og þarft því að gera þér grein fyrir hvaða væntingar þú gerir til annarra. Láttu þér standa á sama um fáfræði annarra.
Kærleik og visku til ykkar allra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Smá samantekt
10.10.2010 | 22:28
Það er víst ekki til neins að vera óánægður með þó maður komist ekki allt sem maður vill, ekki komst ég í skjaldborgina í kringum sjúkrahúsið okkar í dag, var nefnilega hálf slöpp, svaf til 10 í morgun sofnaði svo aftur um 2 leitið og svaf til 5 svo ekki er nú orkan mikil, en það eru margir sem bíða eftir að komast á sjúkrahús veikari en ég.
Sölvi Steinn litli vinnumanninn minn á Kópab. varð 3 ára 6/10 og var haldið upp á það í dag, hér kemur mynd af honum.
Hann er sko vinnumann
Nú eins og allir vita þá var ég að flytja í aðra íbúð, og það hefur verið smá höfuðverkur að finna réttar gardínur fyrir eldhúsið, datt allt í einu í hug í fyrradag að hafa þetta svona sveitalegt og hér koma myndir af fyrstu tveim gluggunum, en þeir eru fjórir í röð.
Smá haustlitir í leiðinni
Litla ljósið mitt og Neró
Það koma svo fleiri myndir eftir því sem ég geri fínt hjá mér.
Knús og aftur knús til allra minna vina
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tilfinningalaus ómenni
9.10.2010 | 07:48
Datt mér ekki í hug, það kom að því að þeir mundu koma öldruðum fyrir bara einhversstaðar hola þeim niður eins og einhverjum þurfalingum sem engin kærir sig um.
Hvernig væri að þið þessir tilfinningalausu ómenni á alþingi Íslendinga mynduð koma öllum sem þurfa á legurími að halda, ja bara í einhverja skemmu eða annað stórhýsi sem engin notar lengur þá væru þið lausir við þetta fólk innan tíðar. MUNDI ALVEG TRÚA YKKUR TIL ÞESS.
Þessir skollar vita ekki hvað tilfinningar eru og hvaða áhrif svona flutningar hafa á gamalt fólk og þau fá ekki einu sinni að vera saman, en skollum er alveg sama: - þetta eru bara þroskahamlaðar kennitölur -
Ekki þýðir að segja skollum að skammast sín
þeir skilja það ekki
Hættu við eftir mótmæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Það má fara að taka grafir
8.10.2010 | 16:41
Rétt að spyrja: " Hvernig í ósköpunum eiga sjúkrahúsin í Reykjavík og Akureyri að sinna þessu öllu, þau eru þegar orðin yfirfull og undirmönnuð .
Lífsspursmál fyrir Selfoss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
VAR SVO SORGMÆDD Í GÆR
8.10.2010 | 10:13
Jú vegna alls þessa sem er að gerast ekki að aðdragandinn hafi ekki verið til staðar, en einhvernvegin er það svo að þegar punkturinn yfir i-ið kemur þá brestur múrinn, var samt afar stolt yfir því að búa á Húsavík því þar er kraftmikið og gott fólk, komst reyndar ekki á fundinn fann samt fyrir samstöðunni og frétti af hvað okkar fólk stóð sig með afbrygðum vel eigi kom það mér á óvart ég þekki vinnubrögð og hæfileika þessa vina minna.
Það voru haldnir fundir víðar til dæmis í Reykjanesbæ, ég bjó í Sandgerði í 27 ár svo mér er ekki sama um þetta bæjarfélag. Þar hótuðu menn aðgerðum ef ekkert yrði að gert innan þriggja vikna, hugnast mér það afar vel og það væri alveg frábært ef við hér norðan heiða mundum gera það einnig, en hvernig verða þeir að ákveða sem vit hafa á.
Mér hefur aldrei hugnast óheiðarleiki, ef menn segja eitt þá eiga þeir að standa við það, en það vantar svo óendanlega mikið upp á að þeir sem lofuðu þessu og hinu hafi staðið við það.
Þó ég sé sorgmædd þá ætla ég ekki að láta sorgina ná yfirhöndinni, ekki gera neinum það til þægðar, endilega kæru vinir, verið glöð og brosið.
85% niðurskurður á sjúkrasviði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ekki hægt að þvo það sem innandyra er
6.10.2010 | 10:22
Það er gott að það skuli vera hægt að þvo og laga þetta yndislega hús okkar, nokkuð er mér sama um hvað það kostar mig það er búið að demba svo miklu á mig hvort sem er.
Málið er að aldrei verður hægt að þvo þá drullu sem innandyra er, nema að moka öllum út sem þarna eru, því ekki eru það veggir og gólf sem eru drullugir, nei það er fólkið sem þar er, haldið er áfram að plottast og segja nei við öllu sem gæti jafnvel bjargað einhverju, eins og að fólk fengi vinnu og svo margt annað sem ég nenni ekki að telja upp, það eru svo margir færari um það en ég.
Eitt veit ég bara að afar illa fer ef ekkert verður gert og það núna ekki er einhver nefnd er búin að vinna að málum í ár eða svo.
Morðvopnin heita aðgerðarleysi, virðingarleysi, atvinnuleysi og svo væri hægt lengi að telja, mig verkjar í hjartað mitt.
Góðar stundir
Þinghúsið þvegið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sorglegt
5.10.2010 | 08:01
Það er sorglegt að við almenningur skulum þurfa að haga okkur svona, að ríkisstjórnin skuli ekki hafa gert nokkuð skapaðan hlut til að bjarga málum því það hefur hún ekki gert, sleikja rassgatið á auðvaldinu brosa og segja já og amen, þetta eru bara trúðar sem hafa verið í valdaleik.
Var að hlusta á viðtal við fólk á Austurvelli síðan í gærkveldi þar sagði ein kona að hún og vinkonur hennar væru að missa húsin sín, það væru ekki bara öryrkjar og fátækir heldu bara hin almenni borgari, sem sagt við sem erum öryrkjar, ellilífeyrisþegar og fátækir erum ekki almennur borgari svolítið óheppilega til orða tekið. Fólk verður að passa orðin sem koma frá þeim
Mér finnst það einnig afar sorglegt að horfa upp á þessi gömlu fallegu hús eins og Alþingishúsið og Dómkirkjuna verða fyrir svona árásum, en í hita leiksins er fólk ekkert að hugsa um það og ég skil það afar vel.
Vonandi hefur þetta haft einhver áhrif svo við getum hætt áður en einhver stórslasast eða jafnvel deyr.
Við viljum getað lifað mannsæmandi lífi og það verður ekki nema að atvinnuvegurinn komist á fullt og eitthvað róttækt verði gert fyrir þá sem eru að missa allt , svo er það afar merkilegt að lítið sem ekkert er talað um þá sem ekkert eiga lifa á ölmusu, já ég segi ölmusu því fólk upplifir það þannig er það þarf að fá matargjafir og peninga til að framfleyta sér og sínum, er hætt þessu þetta er nefnilega efni í heila bók.
Yfir 30 rúður brotnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Alveg makalaust hvað þetta stemmir
4.10.2010 | 14:23
Hólmdís Hjartardóttir
FRUMEFNIÐ KARL: Efnið finnst: Í sófum, börum, bjórkrám, á öðrum endanumá vindli, riffli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum. Eðlisþyngd :
70-140kg. og er breiðast um miðjuna. Eðliseiginleikar: Þenst út í
nálægðpeninga og valds, skreppur saman í grennd við ryksugu og
gólfskrúbba, fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður
umjafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna!
Nappaði þessu frá vinkonu minni henni Hólmdísi Hjartardóttur.
Þetta er nú náttúrlega alveg rétt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sér er nú hver vitleysan
4.10.2010 | 07:28
Já ég segi nú ekki annað ég hef nú ekki í neinu að snúast, auðvitað þarf ég að koma mér fyrir, en það er ekkert sem liggur á, kannski er spáin að meina allt vesenið sem ég lenti í fyrir helgi átti nefnilega samkvæmt bankanum ( ekki mínum banka) að borga eitthvað sem ég var löngu búin að borga, reddaði því með vel völdum orðum og út úr kerfinu hvarf sú innheimtan eins og dogg fyrir sólu. Þjónustufulltrúinn minn bað mig að athuga hjá orkufyrirtækinu sko var nefnilega að borga tvöfalda reikninga, varð frekar pirruð hringdi og var sagt að þessu yrði kippt í lag, nú svo ég lét bara borga mína reikninga og ef það verður lokað á fólkið sem er í húsinu sem ég var í er það ekki mitt mál.
Var að fá sendan penna frá bróður mínum nú ég náði í hann á pósthúsið og borgaði 19oo kr fyrir fluttning á pennanum, Reykjavík-Húsavík sem er eðlilegt því þetta var hraðsending, haldið ekki að ég hafi fengið rukkun í heimabankann minn frá flutningsfyrirtækinu upp á rúmar 10,000 ég hringi og var svo óheppin að deginum var að ljúka og allir farnir heim svo ég á þetta eftir í dag og vona svo mikið að ég fái frið fyrir svona uppákomum sem ég á bara enga sök á.
Sporðdreki:
Það er í mörgu að snúast þessa dagana og væri
óvitlaust að skrifa tossalista svo ekkert verði nú útundan.
Þú vinnur of mikið, reyndu að finna tíma til að hvíla þig.
Tossalista, get nú ekki annað en hlegið, er búin að hafa svona tossablokk á borðinu hjá mér í mörg ár og það verður oft eitthvað útundan og það gerir bara ekkert til því ef það verður útundan þá er það ekki mikilvægt.
Hlálegt, en ég er í því að hvíla mig hef eigi heilsu í annað og er að bíða eftir að komast í þessa yndislegu aðgerð sem heldur mér gangandi.
Þannig að spáin mín passar bara ekki
Kærleik á línuna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hver er munurinn?
3.10.2010 | 18:35
Flestir landsmenn fengu alveg frábært blað frá Heilsuhúsinu með heilsufréttum, ég er aðdáandi Heilsuhússins og versla þar mikið, þetta blað féll í kramið hjá mér, en það er eitt sem ég mundi vilja fá útskýringu á ef einhver gæti svarað mér með það.
HVER ER MUNURINN Á HVEITIKÍMI OG CHIA FRÆJUM?
Set hér inn smá lýsingu af hveitikími, margir vita ekki hvað það er í raun, en fólk getur lesið sér til um Chia fræin í blaðinu.
Hvað er hveitikím?
Hveitikím er hjarta" hveitikjarnans, fóstur hveitifræsins, og verður oftast til sem aukaafurð við mölun hveitis. Kímið er fjarlægt úr hveitikorninu vegna þess að olíur í kíminu oxast og stytta geymsluþol hveitisins verulega. Hveitikím er einstaklega prótínríkt og inniheldur meira prótein en er að finna í flestum kjötvörum, það er því sérstaklega gott fyrir þá sem borða lítið eða ekkert af kjöti.
Magn næringarefna í hveitikíminu virðist endalaust; það inniheldur meira magn kalíums og járns en nokkur önnur fæðutegund ásamt því að innihalda mikilvægar Omega-3 fitusýrur, ríbóflavín, kalsíum, sink, magnesíum og A-, B1- og B3-vítamín í miklu magni. B1- og B3-vítamín eru mjög mikilvæg til að viðhalda jafnri orku og heilbrigði vöðva, innri líffæra, hárs og húðar.
Hveitikímið er einstaklega ríkt af E-vítamíni. E-vítamín er eitt magnaðasta fituleysanlega andoxunarefnið í líkamanum. Það er einstaklega öflugt til varnar hættulegum sindurefnum (Free radicals) sem jafnframt er öflug forvörn gegn krabbameini, það styrkir ónæmiskerfið og talið koma í veg fyrir hjartasjúkdóma. E-vítamínið er einstaklega styrkjandi fyrir húð og hár og talið hægja verulega á öldrun líkamanns ásamt því að styrkja lungu, blóð og hafa jákvæð áhrif á sjón og augu.
Fyrir hverja er Hveitikím?
Fólk á öllum aldri! Hvort sem þú hefur áhuga á að bæta við hollri og næringarríkri afurð við fæðu þína, byggja upp vöðva, stuðla að betri meltingu, auka inntöku steinefna og fitusýra, í eldamennskuna eða sem fæðubót. Hveitikímið inniheldur hvorki meira né minna en 28% gæða prótein og er einstaklega trefjaríkt. Hveitikímið er frábær fæðubót fyrir ófrískar konur - bæði vegna mikils magns fólínsýru og vegna þess hversu góð áhrif það hefur á teygjanleika húðarinnar. Í hveitikíminu er meðal annars aminosýran Tryptófan sem talin er hafa róandi áhrif á heilann og því mjög gott fyrir börn sem þjást af athyglisbrest og/eða ofvirkni.Það má taka til ýmislegt annað, en læt þetta duga, enda hægt að googla á Hveitikím
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Skyldulesning
2.10.2010 | 17:45
Fjármálaráðherra og aðstoðarmanns forsætisráðherra.
2.10.2010 | 13:23
Ágæta ríkisstjórn
Almennt - laugardagur 02.október 2010 - Hafþór Hreiðarsson - Athugasemdir (3)Ég er Íslendingur. Ég er líka háskólamenntuð kona með fjölskyldu sem hef kosið að búa á landsbyggðinni, án þess að átta mig á hversu hættulegt það gæti verið. Nú heyrast fréttir af því að hér á Húsavík skuli heilbrigðisþjónusta sundurtætt á einu bretti, en lítið rætt um afleiðingarnar. Gera menn sér ekki grein fyrir alvarleika málsins?
Afleiðingarnar eru nefnilega ekki aðeins þær að við sem hér búum þurfum að leita lengra eftir heilbrigðisþjónustu, með tilheyrandi tíma, kostnaði, umstangi og áhættu. Leiðin til Akureyrar er kannski bara rúmir níutíu kílómetrar en það getur verið ansi mikið í vondum veðrum.
Nei, alvarlegasta afleiðingin er sú að tugir fólks missa vinnu sína og þar með lífsviðurværi sitt. Tugir einstaklinga sem fæstir hafa nokkra von um að finna önnur störf í sinni heimabyggð. Og hvað á þetta fólk að gera? Margir velja eflaust að leita sér nýrra heimkynna og flytja með sér maka sína og börn en aðrir standa eftir í vonleysi - því sumum reynist erfitt að fara. Hvernig á þetta fólk til dæmis að geta selt húsin sín? Og hvernig á það að geta komið undir sig fótunum annars staðar ef það selur þau ekki? Trúlega hafa fréttir af fyrirhuguðum niðurskurði á einu bretti fryst fasteignamarkaðinn hér. Kannast ríkisstjórnin ef til vill ekki við hugtakið átthagafjötrar? Þeir geta jú verið efnahagslegir ekki síður en huglægir.
Og við sem ekki viljum fara og enn höfum vinnu, hvernig verður okkar samfélag ef grunnþjónustan en jöfnuð við jörðu? Fólksfækkun leiðir af sér minni tekjur sveitarfélagsins og þar með óhjákvæmilega niðurskurð, sem aftur leiðir af sér lakari búsetuskilyrði. Hvernig framtíð bíður þá barnanna okkar? Hvar endar þetta?
Við sem búum hér tókum lítinn þátt í góðærinu svokallaða, við fengum engin kúlulán og engar afskriftir. Við hins vegar erum sek um þá yfirsjón að hafa talið öruggt að búa utan höfuðborgarsvæðisins og fyrir það munum við gjalda. Við erum nógu góð til að taka þátt í björgun bankamanna og stjórnmálaelítunnar; skattahækkanir og niðurskurður talin hæfa okkur allra best, en þegar kemur að atvinnu og mannsæmandi lífsskilyrðum komum við ríkisstjórninni ekki við.
Ágæta ríkisstjórn: Þar sem það er nú orðið ljóst að velferð okkar skiptir ykkur engu vil ég tilkynna ykkur að það er gagnkvæmt. Það er því einlæg ósk mín að þið segið starfi ykkar lausu svo fljótt sem auðið er og gefið öðrum tækifæri til leiða þjóðina út úr þessum erfiðleikum.
Eyrún Ýr Tryggvadóttir
Bréf þetta sendi Eyrún Ýr fjármálaráðherra og aðstoðarmanni forsætisráðherra.
Segja niðurskurðinn árás á byggðina |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Verð að halda ró minni
2.10.2010 | 09:57
Þetta er til dæmis stjörnuspáin mín fyrir daginn.
Sporðdreki:
Einhver vandræði kunna að verða á vegi þínum í dag.
Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en
þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
Vandræði hvað með það ég leysi þau bara og læt þau eigi hafa áhrif á mitt góða skap, gæti orðið döpur, en er maður ekki alltaf að verða fyrir dapurleika í lífinu hann er líka til að vinna úr.
Það er nú ætíð gaman er freistingar eru bornar fyrir mann ef þær sem ég fæ í dag eru slæmar þá læt ég þær eiga sig og vön er ég að vinna þannig að helst á allt að vera búið í gær, svo þetta mun ganga upp hjá mér.
Í gær fór ég ekki út úr húsi nema með Neró minn út í garð, hann var nefnilega veikur með gubbupest en ældi bara einu sinni þessi elska, en svo var hann svo lítill í sér í allan gærdag og er eiginlega enn samt búin að borða í morgun.
Ég var að dúlla mér að taka upp úr kössum og koma því fyrir sem við átti, henda smá sem mér yfirsást í úthreinsuninni hér í sumar, ég nýt þess í botn að henda út gamalli orku.
Milla mín kom og færði mér Rasberrý ilm fyrir húsið æðislegur og kemur mér í jólaskap, talaði náttúrlega við englana mína sem voru að fara í Bowling og skauta í R með vinum sínum.
Í þá daga er ég var ung fór maður á skauta á tjörninni og guð hvað það var gaman, en í dag er farið í skautahallir og betra er það þá þarf maður aldrei að hafa áhyggjur af veðri eða vindum.
Fékk mér Parísarskinku, steikar kartöflur og sveppi að borða í gærkveldi á meðan ég horfði á fréttirnar sem voru afar sorglegar, að það skuli vera búið að fara svona með okkur íbúa þessa lands að til svona aðgerða þurfi að grípa og svo vilja þeir borga Icesave og henda út um gluggann miljarða skuldum hjá hinum og þessum svo þeir geti bara haldið áfram að slá um sig, nei nú þarf ég að róa mig, nei eitt enn kæru landsmenn áfram með smjörið.
Horfði svo á Útsvar og skreið upp í rúm og sofnaði eins og engill.
Kærleik á línuna
Milla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Völdin liggja hjá AGS
1.10.2010 | 07:32
Það er ekki verið að hlúa að venjulegu fólki eða litlum fyrirtækjum. Ég veit ekki lengur hvar völdin liggja í þessu þjóðfélagi. Ég studdi Vinstri græna, kaus þá," segir Inga Lóa Baldvinsdóttir, einn mótmælenda á Austurvelli í nótt.
Völdin liggja að mínu mati hjá AGS, það er búið að selja landið okkar og ríkisstjórnin segir bara já og amen við öllu, enda hafa þeir ekkert val, þeir tóku þessa stefnu og af hverju jú að því að þeir kunnu enga aðra leið, en að viðurkenna það og leita eftir hjálp, hjálp sem dygði til, það var nú af og frá og enn er hún stjórnin að rembast við að halda andlitinu í staðin fyrir að viðurkenna sína glötun í öllum málum.
Ef ríkisstjórnin fer ekki frá þá verður uppreisn í landinu og mun lögreglan eigi fá rönd við reist, bara eins gott fyrir hana að taka þátt sko lögregluna.
Vildi að ég væri ung og hraust þá kæmi ég í uppreisnina með fólkinu.
Ekki hlúð að venjulegu fólki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Maður veit þá hvar þær eru
30.9.2010 | 06:07
Hvað skyldu líða mörg ár þangað til við getum haft samband við fólk frá öðrum hnöttum, ég tala um fólk því við teljum okkur vera fólk, en örugglega taldar geimverur af þeim sem aðrar reikistjörnur búa, en svo er spurning er ekki til leið þá meina ég sem þeir hafa þróað, en vilja bara ekki hafa samband við okkur þessar vanþróuðu þjóðir sem búa þessa jörð.
Mikið hefði ég gaman að hitta fólk frá öðrum hnöttum það mundi þroska okkur til muna
Góðar stundir
Lífvænleg reikistjarna fundin? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tilgangslaust að svara þessu
29.9.2010 | 17:00
Stendur ekki á að taka við þessu óláni upp á 19 miljarða og hvað svo, veit að þessi efnahagsáætlun mun ekki standast er bara hlægileg, það nefnilega gerist aldrei neitt
Þessi setning er afar antiklimas.
Efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar byggir á fjórum meginþáttum. Í fyrsta lagi er unnið að því að byggja upp traust fjármálakerfi sem getur sinnt þörfum heimila og fyrirtækja.
Heimilin munu aldrei geta tekið lán því þau eiga enga peninga til að borga af þeim og mundu aldrei komast í gegnum greiðslumat.
Þoli ekki að við skulum þurfa að lúta svo lágt að taka við lánum frá AGS
Þriðja endurskoðunin samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gott hjá þér ungi maður
29.9.2010 | 14:45
Sagði sig úr Samfylkingunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það fær mig engin ofan af minni trú
29.9.2010 | 06:43
Mátti til að láta myndina fylgja með
maðurinn er jú svo myndarlegur
Eru vættir og álfar ímyndun ein
Raunvísindin álíta ómögulegt að til séu persónugerð náttúruöfl er sinni efnisheiminum og hinum ýmsu fyrirbærum hans.Trúna á náttúruvættir og goð kalla þau í besta falli barnalega tilraun mannkynsins til að skýra umheiminn þegar vísindin voru á frumbernsku.
Það er ætíð skemmtilegt að fara á fyrirlestra þar sem fólk telur sig vita hið sanna í hinum ýmsu málum, eins og Christopher Vasey ætlar að flytja fólki á morgun á Radisson Blue hótel sögu annað kvöld, sem sagt flytja fólki vísindalega rannsókn á því hvort til séu persónugerð náttúruöfl, ég mundi kalla þetta verur.
Þætti gaman að vita hvernig þessar vísinda-rannsóknir fara fram, fara þá menn yfir í aðra vídd eða sitja þeir úti í náttúrunni og bíða eftir að sjá álfa og aðrar þær verur sem margir telja að séu til, það væri fróðlegt að skoða þetta, hlýtur að vera á google.
Ég fyrir mína parta trúi á álfa og margt annað sem er hér með okkur því ég hef séð þessar yndislegu verur og er afar sátt við að búa með þeim.
Kærleik á línuna
Eru vættir og álfar ímyndun ein? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)