Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Hef hingað til ekki út talað mig um þessi mál Hannesar, EN!
31.3.2008 | 08:10
Þetta nýasta, að það þurfi að safna fyrir Hannes Hólmstein,
það keyrir nú alveg um þverbak.
Mér finnst það forkastanlegt, að safna fyrir mann sem ætíð
hefur haft nóg fyrir sig.
Ég spyr vill hann það, og mun hann taka á móti söfnunarfé?.
Talað er um að auðmaður sæki að honum fyrir að nota
málfrelsi sitt á Íslandi.
Er það ekki dómsstólana að dæma um það
hvort hann er sekur eða saklaus
í því að hafa nýtt niður þann mann sem sækir að honum.
Oft á tíðum hafa mér fundist ummæli Hannesar Hólmsteins,
óvægin í garð fólks og málefna.
Hann er afar vel máli farinn, en má aðeins passa sig í
orðavali svona á stundum.
Góðar stundir.
Söfnun fyrir Hannes Hólmstein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM:
- Úr munni hestsins
- Erfiðið út í buskann
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
- Það gýs á tveimur stöðum af ólíkum ástæðum
- Flokkur fólksins
- Að tapa sigrinum
- Namibía: hvenær koma Íslendingarnir aftur?
- Húsnæðisáætlanir sem gleyma fólkinu
- Bæn dagsins...
Athugasemdir
Verð að vera sammála þér þarna..En sá að þú hafir verið að vinna í stórum stelpum þá hefur þú væntanlega verið að vinna með ná frænku minni henni ósk eða hvað? smá forvitni í mér hafðu ljúfan dag
Brynja skordal, 31.3.2008 kl. 08:52
Ég held það nú, hún Ósk er yndisleg kona og það var svo gaman hjá okkur öllum við unnum svo vel saman. Ég væri örugglega ennþá að vinna þar hefði ég ekki kynnst manninum sem ég kalla engilinn,
en hann á náttúrlega nafn og heitir Gísli og fluttist ég til Ísafjarðar til hans, svo ákvað ég að elta hluta af börnunum mínum til Húsavíkur.
Nú búa allar dætur mínar hérna, bara sonurinn fyrir sunnan.
Kveðja til þín Brynja mín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 09:14
já hafði oft heyrt hana dásama Guðrúnu og þá varst það þú gaman að þessu Hitti einmitt ósk í gær...já trúi því að þú viljir vera nálægt börnunum þínum á Húsavík enda fallegt þar
Brynja skordal, 31.3.2008 kl. 09:40
Málfrelsi eða meiðyrði???
Hvað sem því líður..........ER ÞETTA EKKI DJÓK???
Fjandinn fjarri mér að ég taki þátt í svona vitleysu.
Solla Guðjóns, 31.3.2008 kl. 10:07
Ég mundi nú vilja heyra eitthvað um þetta mál frá honum sjálfum. Sennilega er þetta allt satt og rétt, þögn er sama og samþykki. Mig grunaði nú ekki að maðurinn væri svo illa staddur að hann þyrfti á svona söfnun að halda, en það er víða pottur brotinn..Bestu kveðjur til þín Milla mín
Erna, 31.3.2008 kl. 10:24
Ég er sammála þér en mér langar að heyra hvað hann mun segja.Kveðja Milla mín
Kristín Katla Árnadóttir, 31.3.2008 kl. 10:54
Allir þekkja alla á þessu landi voru Brynja mín og ef þú hittir Ósk þá mátt þú bera henni kveðju mína.
Ekki ætla ég að taka þátt í því að styrkja hann, en ég spyr eins og Solla er þetta ekki grín???
Stelpur, ef þessi maður er í kröggum , þá er það hans mál ekki okkar.
en gjarnan vildi ég heyra hvað hann hefur að segja um þetta mál.
Knús á ykkur.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 11:43
Já já örugglega, þeir eru svo góðir við okkur blessaðir bankarnir.
Knús til þín Sigga mín.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 12:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.