Sunnudagsmorgun.
20.4.2008 | 08:53
Vaknaði kl.6. í morgun eins og venjulega, fékk mér
morgunmat og naut þess að horfa á hinn fagra Skjálfanda
og fjallana handan flóans,
ægifagur fjallgarður sem heimamenn kalla Kinnafjöll einu nafni,
en þau heita að sjálfsögðu ekki öll kinnafjöll, heldur,
Yst við sjóndeildarhringinn sjáum við Hágöng, síðan Hágöng syðri.
Aftan við Hágangana eru Viknafjöll, síðan Skessufjall og
Skálarvíkurhnjúkur, fyrir neðan þessi tvö síðarnefndu eru
Náttfararvíkur, og nefnast þær Rauðavik, Skálavík,Naustavík
og Hellisvík. Mikið lengra af þessum fagra fjallgarði
sé ég ekki frá eldhúsglugganum mínum.
En á korti eru Kinnafjöllin merkt og byrja er maður beygir
inn í köldukinnina frá Ljósavatnsskarði, og harla ólíklegt
er að þau heiti því nafni alla leið út að Víkurhöfða,
en ef einhver veit betur þá endilega látið mig vita.
Jæja nú fór ég aðeins út fyrir efnið sem var til umræðu,
sunnudagsmorguninn, það er sem sagt yndislegt vorveður
með sól í heiði, ég sit hér við áhugamál mitt meðan Gísli er að taka
bílinn í gegn, búin að tjöruþvo, er að sápuþvo, síðan verður spúlað,
þurrkað og bónað.
Um hádegið fara allir fram í Lauga systur ætla að elda saman
Hátíðarmat til heiðurs því að Hróbjartur minn, hennar Írisar,
er hjá mömmu sinni þessa helgi og varð hann 15 ára 14/4.
Allir ætla í sund að Laugum á meðan systur malla ofan í okkur
lambalæri að þeirra sið.
Svo ef einhver var að leggja til að ég mundi slappa af í dag,
þá nei ég ætla að hafa rosalega gaman.
Læt ykkur fylgjast með í kvöld.
Eigið góðan dag.
Milla.
Athugasemdir
Góðan dag elsku Milla mikið áttu gott að búa á þessu fallega stað. Eigðu góðan sunnudag með fólkinu þínu.
Kristín Katla Árnadóttir, 20.4.2008 kl. 09:18
Sömuleiðis Katla mín, já ég er afar lánsöm, líka það að ég bjó á Ísafirði í 9 ár, og skoðaði mig ágætlega um þar, ekki var það lakara,
reyndar finnst mér allsstaðar fallegt, meira að segja Hvalfjörðurinn sem engin þoldi að aka hér áður og fyrr.
Eigðu góðan dag
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.4.2008 kl. 09:41
Skemmtu þér vel Milla mín með þínu fólki
Brynja skordal, 20.4.2008 kl. 10:08
Ummmmmm Íslenska lambið alltaf best. Njóttu dagsins með familíunni.
Ía Jóhannsdóttir, 20.4.2008 kl. 13:42
Eigðu góðan dag með fólkinu þínu Milla mín
Huld S. Ringsted, 20.4.2008 kl. 14:39
Aðeins að stelast í tövluna hjá snúllunum mínum.
Sömuleiðis til ykkar knús Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.4.2008 kl. 17:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.