Fyrir svefninn.
14.5.2008 | 20:07
Frú Sigríður, tengdamóðir Skúla Gíslasonar prófasts
á breiðabólsstað, var hjá honum í elli sinni.
Sr. Skúli jarðaði seinni mann hennar, sr. Sigurð Thorarensen,
en hún gat ekki fylgt honum til grafar vegna ellilasleika.
Þegar prófastur kom frá jarðaförinni, spurði Sigríður hann,
hvað hann hefði sagt yfir moldum manns síns.
Sr. Skúli sem var orðhvatur og kerskinn,
hyggst nú stríða tengdamóður sinni og segir:
,,Ég sagði, að allir hefðu verið honum bölvaðir í lífinu,
bæði skyldir og vandalausir".
,, Ekki tek ég það til mín", svaraði Sigríður,
,, því hann var mér hvorki skyldur né vandalaus".
Verkamaður hjá ,,Kol og Salt" sagði, þegar gengi Hitlers
var sem mest í stríðinu
og Þjóðverjar hernámu hvert landið á fætur öðru:
,, Ekkert skil ég í, hvað hann Hitler vill með öll þessi lönd,
--- barnlaus maðurinn".
Eftirmæli fyrirfram.
þegar Pétur þreytir skeið,
þannig hermir saga:
Ómennskunnar ösnu reið
alla sína daga.
Þormóður Ísfeld Pálsson.
Önnur eftirmæli.
Hlaut af flestu lítið lof,
lasta þræddi götu,
bæði drakk og át um of
annarra tíðast mötu
Þormóður Ísfeld Pálsson.
Góða nótt.
Athugasemdir
Alltaf jafn gaman að kíkja á þig á kvöldin. Hafðu það gott og GN
Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 20:15
Knús og yndislegar kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 14.5.2008 kl. 20:42
Já þetta var gott hjá preasi .Og skondið með öll löndin hans Hitlers,Heheheheeeee.
Jón ReynirSvavarsson (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 21:40
Góða nótt
Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.5.2008 kl. 22:59
Hehehe já hér er nauðsyn að koma við fyrir svefninn, bregst ekki að maður brosir fram í draumalandið hehe
Ragnheiður , 14.5.2008 kl. 23:04
Tek undir með þeim hérna að ofan. Alltaf gott að kíkja hér inn fyrir svefninn. Góða nótt ljúfa kona
Sigrún Jónsdóttir, 14.5.2008 kl. 23:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.