Fyrir svefninn.

þar sem ég fékk svolítið slæmt hjartakast áðan
og er búin að vera uppi í rúmi meðan pillan var að virka,
þá fáið þið bara smá kveðju frá mér núna.
                    ---- --- ----
Magnús Torfason var að segja sögur í samkvæmi.
Eiríkur frá Hæli og Páll á hjálmstöðum voru þar viðstaddir.
Þá missti Magnús allt í einu þráðinn í sögu þeirri,
er hann var að segja, og bað Eirík að segja sér,
hvar hann hefði verið í sögunni.
Þá kvað Páll á Hjálmstöðum:

                     Brast mér andans bláþráður
                     bara að þessu sinni.
                     Finndu endann, Eiríkur,
                     á andans snældu minni.

                                      Góða nóttSleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Vonandi er í lagi með þig elsku Milla mín!
Eigðu góða nótt

Róslín A. Valdemarsdóttir, 5.6.2008 kl. 21:15

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku besta Millan mín, farðu vel með þig, alltaf vont að fá hjartakast.  Knús og sofðu rótt í alla nótt    bið fyrir þér.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.6.2008 kl. 21:28

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Elsku Milla mín farðu vel með þig og Guð blessi þig inn í góða nótt

Ía Jóhannsdóttir, 5.6.2008 kl. 21:32

4 Smámynd: Tiger

  Komdu hérna í faðminn minn Milla mín - og leyfðu mér að knúsa þig duglega! Farðu vel með þig ljúfust og vertu ekki að æsa þig alltaf svona .. hættu að hamast á fjórhjóli og mótorhjóli um allar tryssur og taktu það rólega skvísust!

Neinei, segi bara svona sko. Viltu gjörrsvovel að hvíla þig vel og vonandi var þetta ekki mjög slæmt kast, þó auðvitað séu hjartaköst alltaf slæm. Hef þig í bænum í kvöld og vona að þú hafir ljúfa og draumfagra nótt mín kæra!

Tiger, 5.6.2008 kl. 21:45

5 Smámynd: Erna

Elsku Milla mín farðu vel með þig, vonast til að hitta þig á morgun ef þú verður hress. Góða nótt ljúfust

Erna, 5.6.2008 kl. 23:10

6 Smámynd: M

Farðu vel með þig Milla mín og eigðu góða nótt xxx

M, 5.6.2008 kl. 23:29

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 6.6.2008 kl. 00:28

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til þess að þið séuð ekki að hafa of miklar áhyggjur þá ætla ég að
blogga um þetta, þá vitið þið það.
                  Elska ykkur öll.
                    Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.6.2008 kl. 07:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband