Hjálparbeiðni, lesið núna.

3.9.2008 | 13:05

Soffía

 Veikindi og erfiðleikar gera sjaldnast boð á undan sér, það fær hún Soffía sem er kona á fertugsaldri að reyna þessa dagana,  hún þarf á hjálp okkar og fyrirbænum að halda

 Soffía greindist með æxli í höfði í byrjun Ágústmánaðar, Soffía og börn hennar þrjú voru í sumarbústað austur á landi. Og þá fór meinið að gera vart við sig með sjónsviðsskerðingu á vinstra auga, svima og ljósfælni. Þrátt fyrir öll þessi einkenni tókst henni til allrar guðs lukku að koma sér og börnunum heim í Hafnarfjörðinn heilu og höldnu. Þegar heim var komið fóru einkennin versnandi og á endanum fór Soffía uppá bráðavakt, þar sem gerðar voru rannsóknir og höfuðmynd tekin. Á þeirri mynd sáu læknarnir eitthvað sem krafðist frekari athugunar.  Daginn eftir var hún send í segulóm myndatöku, og þá kom í ljós að um æxli væri að ræða.  Aðeins viku eftir greiningu gekkst Soffía undir stóra aðgerð sem tók 7 tíma, aðgerðin gekk vel en einungis var hægt að fjarlægja helminginn af æxlinu.  Sýni sem tekin voru sýndu að næsta skref yrði geislameðferð og hefst hún að viku liðinni.  Soffía er enn með skert sjónsvið og ljós og minnsti hávaði fara illa í hana.  Soffía á 3 börn, 21 árs gamla dóttur og 2 syni 6 ára og 9 mánaða. Maður hennar og faðir barna hennar lést fyrir ári síðan í bílslysi og hét hann Jóhannes Örn.

Soffía dvelst enn á sjúkrahúsi og óvíst hvenær hún fær að fara heim, hún verður óvinnufær um óákveðinn tíma, hún hefur starfað sem húsvörður í blokk og búið í húsvarðaríbúðinni. Það er því ljóst að hún mun verða húsnæðislaus og atvinnulaus með börnin sín þrjú.

Stofnaður hefur verið reikningur til styrktar fjölskyldunni og er hann sem hér segir Reikningsnúmer: 0140-05-14321 kennitala: 161069-3619

ath: kennitalan var röng en núna er hún komin í lag

 

Ég hvet fólk að setja þessa færslu inn  hjá sér því hver veit hver er næstur????

Tók þessa sorgar sögu af síðunni hennar Elísabetu
og hvet alla til að bregðast við eins og hægt er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Þetta er sorglegt, svona ung kona með litíl börn, vonandi verður hægt að hjálpa henni. Guð veri með þessari littlu fjöldskildu.Milla mín, það er mail til þín

Kristín Gunnarsdóttir, 4.9.2008 kl. 06:54

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Sorglegt að heyra, sendi hlýjar hugsanir.

Ía Jóhannsdóttir, 4.9.2008 kl. 08:35

3 identicon

Það má nú segja að oft er þörf en nú er nauðsyn. Ég má vonandi setja þetta inn á mína síðu líka. Sendi henni kærleiksljós blessaðri konunni.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 09:17

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já auðvitað máttu það Jónína mín því fleiri því betra.

Ía þetta er afar sorglegt,
elsku börnin vona bara að þau eigi góða að.

Fer í að opna póstinn, gerði það reyndar í morgunn

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.9.2008 kl. 10:15

5 Smámynd: Brynja skordal

Var búinn að sjá þetta svo sorglegt sendi ljós og kærleik og mun ég svo sannarlega setja eitthvað inn á þennan reikning

Brynja skordal, 4.9.2008 kl. 11:29

6 Smámynd: Elísabet Sigmarsdóttir

Sæl , þannig er að ég þekki Soffíu ekki, fékk þetta sent og var beðin að setja á síðuna mína. Ég reikna með að ég geti komist að þessu nú fljótlega þá set ég þetta á mína síðu og þína. Vonandi eru fleiri sem vilja á þennan hátt

Elísabet Sigmarsdóttir, 4.9.2008 kl. 11:58

7 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Milla.

Guðrún Sæmundsdóttir er með pistilinn um Soffíu. Ef fólk þarf að fá einhverjar upplýsingar þá endilega hafið samband við Guðrúnu.

Slóðin: http://alit.blog.is/blog/alit/entry/632662/#comments

Guð veri með þér.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 4.9.2008 kl. 12:08

8 Smámynd: Elísabet Sigmarsdóttir

Ég vona að fólk fari inn á síðuna hjá Guðrúnu og afli sér frekari upplýsinga

Elísabet Sigmarsdóttir, 4.9.2008 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband