Afsökunnarbeiðni! Eigið þið annan?
27.11.2008 | 07:30
Ung vinstri græn gagnrýna framgöngu Páls Magnússonar, útvarpsstjóra, gagnvart G. Pétri Matthíassyni, fyrrum fréttamanni Ríkisútvarpsins, og krefjast þess að Ríkisútvarpið fari að fordæmi G. Péturs og biðji þjóðina afsökunar á að halda að sér upplýsingum um ráðamenn.
Viðbrögð útvarpsstjóra í þessu máli bera merki ritskoðunar á fréttaefni sem kemur almenningi mjög við, og er grafalvarleg árás á málfrelsi fréttamanna. Ung vinstri græn skora á Pál Magnússon að biðjast afsökunar á að hafa hótað G. Pétri með lögfræðingum fyrir að hafa sýnt þjóðinni það sem RÚV hefur leynt hana, algerlega óviðeigandi framkomu forsætisráðherra gagnvart fjölmiðlamanni sem hafði í sér dug til að spyrja stjórnvöld erfiðra spurninga," segir m.a. í ályktun samtakanna.
Hvað er eiginlega að? eins og segir í góðu myndbandi.
Hvað er RÚV gamalt? nei bara spyr til að minna fólk á að allar götur
hefur það verið ritskoðað af þeim flokkum sem setið hafa í stjórn
hverju sinni.
Það er með ólíkindum hvað blessaðir Útvarpsstjórarnir hafa þurft að
taka á sig í gegnum árin, fela gögn, reka menn, ritskoða og hvað veit
ég svo sem hvað meira af skítverkum þeir þurfa að inna af hendi fyrir
yfirvaldið.
Verð nú bara að segja fyrir mína parta að veldi ég nú frekar að hætta
heldur en að vinna svona gjörninga.
Og ef fólk er svo bjartsýnt að halda að RÚV stjórinn biðji afsökunar
þá er það hinn mesti misskilningur, því finnst hann velur eigi að hætta
yrði hann rekinn ef hann bæðist afsökunar á þessum sem öðrum málum,
hann er undir handajaðrinum á veldinu.
Eigið góðan dag í dag.
Milla.
Vilja að RÚV biðji þjóðina afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góðan daginn Milla mín
Kristín Gunnarsdóttir, 27.11.2008 kl. 08:56
Góður pistill. Takk fyrir skilaboðin
Og mundu að eiga góðan dag Milla mín.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 27.11.2008 kl. 09:04
Er í skólanum kveðja Óla
Óla rugla (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 09:05
Eigðu góðan dag......afsökunarbeiðni...hahaha
Hólmdís Hjartardóttir, 27.11.2008 kl. 09:53
Knús á þig mín
Guðborg Eyjólfsdóttir, 27.11.2008 kl. 09:54
Ía Jóhannsdóttir, 27.11.2008 kl. 10:49
Ásdís Sigurðardóttir, 27.11.2008 kl. 11:35
Mér þætti gaman að fá að vita hver réttindi og skyldur fréttamanna og blaðamanna eru í svona málum. Hver virkilega á upptökur á viðtölum sem fréttamenn Ruv, jafn og annarra fjölmiðla hafa tekið. Í fljótu bragði sýnist mér að viðtöl fastráðinna fréttamanna Ruv séu eign Ruv og því hefur fréttamaðurinn ekkert leyfi til að taka með sér efni út af stöðinni. En blaðamenn eru trúlega fleiri sjálfstæðir og því er þá efnið þeirra sjálfra oftar.
Það er svo allt annað mál hvort sanngjarnt er fyrir þjóðina að þessi viðtöl séu ekki gerð upinber. Þannig að í mínum augum eru þetta tvö aðskilin mál.
Annars bara hafðu það gott Milla min
Anna Guðný , 27.11.2008 kl. 13:37
Hvort sem hann á þessar spólur eður ei, tek ég upp hanskann fyrir
G Pétri.
Knús til ykkar allra
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.11.2008 kl. 14:28
Já ég held einmitt að það sé málið eins og Anna Guðný segir að sennilega á Ruv þetta efni þar sem fréttamaðurinn er í vinnu hjá þeim. Það er örugglega allt efnið hjá Ruv ritskoðað og líka í blöðunum Milla mín það er nú bara þannig og hefur eflaust alltaf verið.
Ljós inn í daginn þinn.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 14:40
Brynja skordal, 27.11.2008 kl. 16:49
Kristín Katla Árnadóttir, 27.11.2008 kl. 17:03
Já eins og ég segi í pistlinum þá er það ritskoðað og hefur ætíð verið.
Trúlega á RÚV efnið en gott hjá honum að samt.
Knús kveðjur á ykkur skjóðurnar mínar
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.11.2008 kl. 20:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.