Sorglegt.

Alfie Patten búin að vera svo glaður yfir því að eiga þetta
litla barn, svo er því kippt í burtu, hann er ekki faðirinn.
Rannsókn leiddi í ljós að 15 ára gamall unglingspiltur gerði
Chantelle Stedman ólétta.

 Sagt er að Alfie sé í sorg yfir þessum úrskurði, hvað hefur
verið að í uppeldi þessa drengs finnst hann 12 ára á
kærustu sem er 15 ára og er hamingjusamur yfir því að fá
lítið barn til að hugsa um, eða þannig.

Fallegir eru þeir á mynd, ekki feðgar, en mikið held ég að það
þurfi að hjálpa hinum unga Alfie, þó ég telji nú að það verði
ekki gert neitt í því.

Fræðið börnin ykkar í tíma.


mbl.is Tólf ára piltur er ekki faðirinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það virðist fara eitthvað lítið fyrir skoðunum barnsmóðurinnar á þessu öllu.

Er hún ekki meðvituð um hjá hverjum hún sefur, telur hún sig vera í föstu sambandi eða ekki?

Jón Þórhallsson (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 10:36

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það eru margar stórar spurningar í þessu máli Jón, vonandi taka þeir á þeim þarna úti.

Kveðja

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.5.2009 kl. 11:36

3 identicon

Hæ bara smá leiðréttin Chantelle Steadman er stúlkan

Bjössi (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 13:33

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk Bjössi minn var ekki búin að taka eftir þessari vitleysu hjá mér.
Kveðja
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.5.2009 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband