Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
Samvinna í fyrirrúmi.
10.12.2007 | 08:37
um bæði góðar og miður góðar framkvæmdir,
og ég sem er búin að hrósa ykkur þvílíkt
bæði á blogginu og út á við.
Ég var nú svo grunn, að ég taldi að allir þarna suðurfrá
væru að vinna saman að góðri uppbyggingu,og
sér í lagi hef ég talað um Keili, fannst það verk
hratt og vel unnið eins og það varð að gerast.
Eihver segir eða gerir eitthvað, sem öðrum
hugnast ekki, af hverju er þá ekki farið strax í málið
það krufið niður í kjölinn, og afgreitt.
Er það kannski svo að valdataflið sé orðið svo
ofurvaxið, hverjum og einum að það glitti ekki
í siðferðið, hjá ráðamönnum öllum í þessu landi?
Það er nákvæmlega alveg sama hvar maður ber niður,
það er verið að þrasa um, ja, hreint út sagt alla hluti.
Þar sem mér er nú ekki sama um Suðurnesin, (bjó þar í 28 ár)
þá segi ég: ,,Sættist nú á lendingu í þessu máli sem og
öðrum.
Góðar stundir.
![]() |
Árni sagður kasta steini úr glerhúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fyrir svefninn.
9.12.2007 | 20:29
Guðmundur var vinnumaður hjá Sigurjóni lækni Jónssyni,
þegar hann var héraðslæknir í Mýrasýslu og bjó í Fíflholtum.
Það bar oft við, ef Sigurjón var að finna að verkum Guðmundar
að vinnukona þar á bænum tók í sama streng og
húsbóndi þeirra og atyrti þá einatt Guðmund.
Einu sinni er hún að skamma Guðmund í viðurvist
húsbóndans, segir Guðmundur: ,, Það vildi ég,
að ég gæti eignast hvolp undan henni Tótu,
sá mundi þó verða geltinn".
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dulræn fyrirbæri.
9.12.2007 | 10:08
Auðvitað breytist ekki viðhorf fólks
á því sem það hefur séð eða upplifað,
ef maður hefur einu sinni upplifað eitthvað,
þá hættir það ekki, nema maður vanvirði þessa góðu
vöggugjöf sem okkur var færð við fæðingu yfir í
þetta tilverustig.
Ég segi vanvirði, jú við förum flest okkar, einhverntímann,
inn í tímabil sem er ekki gott fyrir hvorki einn eða neinn,
en ætla ég ekki að lasta það, því
sjálfur hefur maður ekki ætíð gert alt rétt,
og fyrir utan það þá erum við ekki dómarar.
Mér langar aðeins til að senda fólkinu sem varð
fyrir því óláni að aka saman á Reykjanesbraut,
ljós og orkukveðjur, og kæra vina þú sem ókst bílnum,
það ert þú sem veist hvað gerðist, en ekki einhverjir bloggarar.
Mundu kærleikann og kveðjur til allra þeirra sem
að ykkur standa.
![]() |
Trú á dulræn fyrirbæri liggur djúpt í þjóðarsálinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Efla þarf stuðning við nýbúabörn.
9.12.2007 | 09:42
Kemur það eitthvað á óvart, við erum nú búin
að hafa nokkuð mörg ár til að átta okkur á því,
og hefðum allar götur átt að vita það,
nema við séum eitthvað treg, getur það verið?
Nei, Nei, en við gerum aldrei neitt í málunum
fyrr heldur en vandinn er orðinn frekar stór.
Mesta vandamálið er, sem allir loka augunum fyrir,
að það þarf að skylda foreldra í skóla til að læra Íslensku
og undirstöðu atriðin í hvernig maður þarf að bjarga sér
í nýu landi sjálfum sér og börnunum til góðs.
það gengur td. ekki að fólk sem er búið að vera
í landinu í mörg ár þurfi túlk er það sækir til læknis.
Það þarf líka aukinn stuðning við Íslensk börn,
þau eru mörg sem þurfa stuðning og verða hreinlega útundan
vegna manneklu eða hreint út sagt vegna áhugaleysis,
og eða vankunnáttu á því hvernig höndla beri slík mál.
Með fullri virðingu fyrir kennarastétt landsins,
og eigi eru þeir allir með þessu marki brendir.
Þá kenni ég dæmi um alt þar að lútandi.
Ég ætlaði nú að vitna í grein eftir Þorgerði Katrínu,
en mín sjónarmið tóku yfirhöndina,
ekki það að þau séu svo ólík hennar,
en auðvitað orða ég þetta öðruvísi. Ég ætla bara að
tala um eitt, þetta með lesturinn heimafyrir, mér
hugnast það að börnin séu skylduð til að lesa
bækur heima, og segja svo frá þeim er í skólann
kemur, það mundi kannski hvetja þau til frekari lesturs,
en það þurfa að vera bækur sem höfða til þeirra,
eins og td. að þau velji þær sjálf.
Þorgerður Katrín og allir þeir sem eiga að koma að þessum
málum. Byrjum á grunninum, sem eru litlu ungarnir okkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frábært framlag.
9.12.2007 | 08:48
vona ég að þessir peningar verði allir
notaðir beint í þágu þeirra barna
sem mest þurfa á þeim að halda.
FL Group eiga hjartans þakkir fyrir
sitt framlag, til þessa brýna málaflokks.
![]() |
BUGL fékk 6 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrir svefninn.
8.12.2007 | 21:09
Það þótti sjálfsagt áður, að menn hefðu hvíta hanska,
er þeir voru í hátíðarbúningi á dansleikjum.
Ólafur Haukur Benediktsson tók þetta ekki
hátíðlega; hann kom eitt sinn hanskalaus á dansleik
og bauð upp stúlku. Stúlkan sneri upp á sig,
skoraðist undan að dansa við hann og bar það fyrir sig,
að hann væri hanskalaus. Það gerir ekkert til,
sagði Ólafur, jeg þvæ mér bara á eftir.
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Öllum er bara sama.
8.12.2007 | 11:39
það er ekkert gert í því að borga mannsæmandi laun,
svo það fáist gott fólk í þau störf sem þarf að leysa af hendi.
Þetta er bara látið rúlla einhvernveginn.
Það er sama vandamálið hvar sem þú berð að.
Ég tek það fram að ég er ekki að álasa starsfólki
þessara staða því ég kenni það ekki, en veit ég bara
að móðir mín var í íbúð á Lindargötunni,
og það var komið inn til hennar á hverri nóttu til að
vita hvernig henni leið, fyrir utan það
sem var litið til með henni á daginn, núna er hún í Skóarbæ
og þar er yndislegt starfsfólk.
Þetta er afar sorglegur atburður, en svona á ekki að eiga sér stað.
Hvar er kærleikurinn sem á að vera í fyrir rúmi,
þegar um fólk er að ræða sem þarf hjálp frá öðrum?
![]() |
Var ekki vitjað í rúma viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hættir þetta aldrei ?
8.12.2007 | 11:18
Ætlar þessu aldrei að ljúka?
Bera þau þessi ungmenni enga virðingu fyrir sjálfum sér
eða öðrum, og ein stúlka tekin 16 ára,
og ég sem var svo trúgjörn, að fyrir nokkrum dögum
taldi ég þær ekki gera svona.
Meinloka í mér að sjálfsögðu, verð eiginlega að beiðast
velvirðingar á orðum mínum, þar sem ég taldi bara
karlmenn aka of hratt.
Satt best að segja, taldi ég konur vera þroskaðri en það
að iðka svona gjörninga.
Konur og menn, farið nú að komast að því að það er
ekki inn að aka of hratt, eða undir áhrifum áfengis.
Og krakkar engin telur ykkur vera cool,
þótt þið látið svona.
![]() |
Ölvaðir bílstjórar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fyrir svefninn.
7.12.2007 | 21:03
Þessar auglýsingar úr bókinni Íslenskri fyndni,
gefin út 1935. eru alveg frábærar mun ég halda áframm að
birta ykkur þær.
Lífstykkjabúðin
Hafnarstræti 11
saumar eftir máli og við hverrar konu hæfi:
lífstykki, mjaðmabelti, sjúkrabelti,
brjósthöld, korselet.
50 mismunandi snið að velja á milli og myndabækur,
er sýna hinar ýmsu gerðir.
Allar viðgerðir og breytingar
fljótt og vel af hendi leystar.
Lífstykkjabúðin
Sími: 4473--Pósthólf: 154
Sent gegn póstkröfu um land alt.
BRANDARI.
A: Það hefur verið efnt til happadrættis til þess að
hjálpa honum Jóni gamla. Hefur þú fengið þér miða?
B: Nei, enda veit ég ekki hvað ég ætti að gera við
karlugluna ef ég hrepti hann.
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Öðruvísi jólabjór.
7.12.2007 | 17:41
Það er kannski ráð að spurja Tuborg eftir því
hvort um bætiefni sé að ræða, nei bara smá djók.
Þetta er örugglega afar sérstakt í bjór, eða er þetta
kannski eins og með, hveitið, grænmetið og ávextina
hafa ekki funndist allskonar kvikindi í þessum vörum?
Fyrir margt löngu síðan fékk ég hveiti,
sem í voru maðkar, hringdi ég í heilbrygðiseftirlit
eða eitthvað svoleiðis bara vegna þess að ég hafði
sett hveitið inn í skáp og var hrædd um að þetta væri komið víðar,
hvað haldið þið að hann hafi sagt:
,, Eru þeir í heimsókn hjá þér núna".
Hann sagði að við værum að borða allskonar pöddur
og maðka allatíð við bara vissum ekki af því.
Það er nú samt frekar ógeðslegt að horfa á
þetta í vökvanum sínum. hann kaupir örugglega
ekki meira af Tuborg bjór þessi maður.
![]() |
Fann skordýr í jólabjórnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)