Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
Össur vanvirðir sjálfan sig og aðra.
22.2.2008 | 08:44
Já ég tel það vera að vanvirða sjálfan sig
og aðra í leiðinni, ekki síst börnin sín með
slíkum skrifum sem Össur hefur við haft.
Hann talar um að dóttir hans hafi fengið vota hvarma
eftir lestur um hann, en hvað er hann sjálfur að gera?
Hvað ef hún kemst í þessi skrif hans?
Þessi skrif hans eru óafsakanleg og óhafandi,
Hann er ráðherra í ríkisstjórn Íslands
og getur ekki hagað sér, eða skrifum sínum eins og
honum sýnist.
Talað er um að hann eigi sinn tíma sjálfur, það er, er hann
bloggar á nóttunni, að mínu mati ekki, það er sama hvenær
hann notar þennan orðaforða sinn, sem er siðlaus.
Þjóðin á ekki að þurfa að hlusta á svona lagað.
Þegar Ingibjörg Gísladóttir tók formannskjörið fyrir um
þremur árum, vonaði ég að hún mundi dala og hann koma aftur,
þar sem mér hugnast hún ekki, vildi frekar hlusta á hann en hana,
en það gerðist ekki, kannski sem betur fer, finnst hann er þessi
persóna sem hann hefur sýnt, og verið að koma fram undanfarin ár.
Ég hef ekki bloggað neitt um þetta mál,
ég varð svo hvumsa að ég missti nú bara málið.
Ætla ég hreint að vona að menn fari að skapa frið
svo það sé hægt að fara að vinna að viti.
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Hvers eiga lítil saklaus börn að gjalda
22.2.2008 | 07:03
Er ekki í lagi með sumt fólk, það eru engin mistök
þegar maður lemur barn svo að sjái á því.
Það er að mínu mati ásetningur þessa starfsmanns
hann þolir ekki smá leik og gleði, lætur það fara í skapið á sér
og lemur barnið. ófyrirgefanlegt athæfi,
Þetta nefnist ofbeldi, ef að ráðamenn skólans í Borgarnesi
skyldu ekki vita það, þá vita þeir það hér með.
Nei bara að því að skólastjórinn kallar þetta ofbeldi
mistök.
Ég vann í mörg ár við Íþrótta og sund hús,
það skemmtilegasta við starfið var þegar við
fengum þessi litlu í húsið, uppfull af spenning
og með stjörnur í augunum, en oft reyndist það
nú vera þannig að þau sér í lagi pollarnir voru
svolítið óstyrk og báðu um hjálp.
Það komu upp svona tilfelli sem um ræðir,
Þá lét maður eins og manni væri alveg sama
svo þegar fór að fækka í búningsklefanum þá kom
restin úr sturtunni.
Þetta var yndislegur tími.
Það verður að vera starfsfólk í þessum störfum,
sem hefur gaman að börnum, en kann samt að vera ákveðið.
Að mínu mati eru engar reglur um svona mál önnur en
brottrekstur á staðnum.
Þið skuluð athuga það, að mögulegt er að drengurinn
þori ekki í sund í langan tíma á eftir svona ofbeldi.
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrir svefninn.
21.2.2008 | 21:25
Kona kom inn í sölubúð og spurði, hvort þar væru
perur til sölu.
,, Nei " sagði búðarmaðurinn. ,, Við höfum ekki perur,
en við höfum aprikósur".
,, jæja segir konan, ,, ég ætla þá að fá eina 50 kerta".
Konuefnið.
Fyrst voru þeir að finna 'ana,
færa í 'ana og gátta 'ana
Þvæla 'ana og þynna 'ana
þangað til ég átti 'ana.
Fullorðin stúlka giftist manni, sem hafði kvongaður áður.
Um það kvað Jóhann Sveinsson frá Flögu:
Áður henni illa gekk,
en er nú föst við stjóra.
Litla Strúna loksins fékk
leifarnar af Dóra.
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mættu allir taka sér þetta til fyrirmyndar.
21.2.2008 | 17:46
Frábært framtak og yfirmáta hressir krakkar,
þarna er verið að fyrirbyggja vandamál sem eru komin
upp víða um land.
teldi ég það eðlilegt að allir skólar mundu taka sér þetta
til eftirbreytni.
það er þörf á þessu, vegna allra barna sem eru öðruvísi og
liggja vel við höggi, ég vona að engin misskilji mig
taki þessu með jákvæðni og framkvæmi það sem þarf að gera
Og foreldrar þurfa að taka þátt og vera vakandi.
Góðar stundir.
![]() |
Einelti skal ekki þrífast í okkar skóla! |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Er möguleiki á að ?
21.2.2008 | 14:26
Vonum það besta.
![]() |
Merki barst frá neyðarsendi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Börn innan við fermingu.
21.2.2008 | 11:07
Allir hafa gott af því að læra að vinna, en það má ekki
vera of mikið, en þau geta alveg eins unnið 2=3 tíma á dag,
eins og að hanga og gera ekki neitt.
Þau sem vilja standa sig í skólanum gera það þó svo
að þau þurfi að vinna, hin sem ekki vilja standa sig
gera það hvort sem er ekki.
Það var nú þannig í mínum uppvexti að strákarnir fóru í sveit,
á meðan stelpurnar voru að hjálpa til heimafyrir eða voru
í vist og engin hafði illt af því.
Í dag er mér tjáð, að unga fólkið okkar sem sækir um sumarvinnu,
kunni ekki einu sinni að vinda borðklút.
Einu sinni sagði kunnur maður, að við værum að ala upp
kynslóð aumingja, sem nenntu ekki neinu.
Ég er ekki að segja að of ung börn eigi að vinna í verslun,
eða vinna of mikið, en er ekki komin tími til að þau geri eitthvað?
Góðar stundir.
![]() |
Félagsmálaráðherra skoðar vinnu barna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Frábær frétt um minkinn.
21.2.2008 | 06:49
Las í fréttablaðinu í gær.
Síðasti minkurinn fallinn honum var kálað inni í bænum,
og var þar fljótur til Ásmundur Pálsson meindýraeyðir
í Vestmannaeyjum.
Haldið að það sé munur að búa á svona stað þar sem
sést til meindýrana um leið og þau birtast.
Eru nokkrar rottur í eyjunum?.
Bara spyr bara því hér hjá okkur eru engar rottur,
bara hagamýs, svona litlar sætar, þið vitið.
Einhverju sinni kom rotta frá borði Rússadalls
og voru þeir ekki lengi að ná henni.
Nú spyr örugglega einhver: ,, Af hverju þrífast ekki rottur
þar sem ég bý, jú vegna þess að það eru jökulsár sitthvoru megin við",
það er að segja engar rottur frá SKJÁLFANDA fljóti
að jökulsá. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bubbi alltaf jafn flottur, einnig Geir.
21.2.2008 | 06:30
Frábært framtak hjá Bubba hann á heiður skilið fyrir
þessa hugmynd og allir þeir sem tóku þátt í þessu með
honum.
Ekki veitir af af að minna fólk á, og hreinlega kenna því að
það er í lagi að umgangast hvort annað þó við séum öðruvísi.
Íslendingar eru seinir til að kynnast, fljótir til að dæma, og enn þá
fljótari til að haga sér eins og Gróa á leiti, ´
það á ekki bara við um útlendingana, áður en þeir komu til í þetta
skiptið þá voru það landarnir sjálfir.
Þegar herinn kom, nei förum ekki að tala um það .
Í dag er helst talað um fjandans Pólverjana sem eru hið besta fólk eins
og allir aðrir útlendingar.
Ætli ekki sumum bregði þegar þeir fara að fylkjast heim til sín í
batnandi atvinnu og efnahag og taka með sér konur og menn sem þeir hafa
fangað á Íslandi.
Góðir Íslendingar hættum að hugsa okkur sem eitthvað úrval alheimsins.
Við erum mistæk eins og allir menn.
Takk fyrir framlagið Bubbi.
Góðar stundir.
![]() |
Sungið gegn fordómum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fyrir svefninn.
20.2.2008 | 20:38
Beinakerlingavísa eftir Svein lögmann Sölvason
um sr. Magnús á Tjörn, er hann var skrifari hjá
Þórarni sýslumanni á Grund.
Nú hef ég fengið nægju mín,
nær þó eigi gangir.
Sýslumaðurinn sér til þín.
Svona, hættu mangi!
Beinakerlingavísa ort til Björns Ólafssonar Stephensens
á Esjubergi; óvíst hvor orti.
Æ, þú sliga ætlar mig,
er þó von við stautið.
Bilar flest að bera þig,
bölvað þyngslanautið.
Gömul staka, er sýnir, að sitt orð sé haft um hvert berkvikindi.
Drósin þessi dávæn ber
dám af flestum kindum,
yxna, blæsma, álægja er,
óð og lóða í grindum.
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Slæmt að hunsa lögin.
20.2.2008 | 16:38
og til hvers bara til að fá á sig kæru, ekki mjög
skemmtilegt fyrir okkur.
það er aðalsmerki Íslendinga að draga lappirnar
þangað til allt er komið í bál og brand.
![]() |
Íslandi stefnt fyrir EFTA-dómstólinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)