Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Ók ölvaður á ljósastaur.

Ók ölvaður á ljósastaur. Er það ekki fullyrðing?,
að mínu mati jú. Síðan kemur,
ökumaður var handtekinn vegna gruns um
ölvun við akstur.
Bíllinn er talsvert skemmdur, en ökumaður slapp
ómeiddur. Hann var færður á lögreglustöðina á
Selfossi til yfirheyrslu.
Málið er enn í rannsókn.
Ég skil aldrei svona fréttir, fullyrðing, grunur
og málið enn í rannsókn, tekur það langan tíma að
komast að því hvort maðurinn var undir áhrifum
eður ei? Þegar búið er að komast að því er hægt
að sleppa manninum.
Því ekki er nú ástæða til þess að hafa manninn í
gæslu.
Öðru eins er nú sleppt úr haldi.
Svo er ég nú alveg yfir mig hissa á því að það skuli
ekki hafa komið mynd af vettvangi, kannski ekki
nægilega krassandi frétt.
Að mínu mati er þetta engin frétt.
                           Góðar stundir.


mbl.is Ók ölvaður á ljósastaur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott, vel gefin og hefur þá ákveðni sem þarf.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, sumir hafa kallað hana
gribbuna, en ég hef nú ætíð kallað það kost,
ef við konur erum gribbur, frekjur eða hvað þið viljið kalla það.
Þar sem ég bý er þetta kölluð ákveðni.
Hún verður að mínu mati góður borgarstjóri.
Vona ég að ekkert komi upp á til að hindra að
hún verði það.
Maður veit nefnilega aldrei.
                              Góðar stundir.


mbl.is Flestir vilja Hönnu Birnu sem borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Þingeyingur nokkur, er Helgi hét, féll niður í gjá,
en náðist upp úr henni.
Þá var þessi vísa kveðin:

                              Að slysum enginn gerir gys,
                              guðs er mikill kraftur.
                              Helgi fór til helvítis,
                              en honum skaut upp aftur.

Daníel á Fróðastöðum reið einu sinni hvítá í vexti.
hann fékk hrakninga mikla í ánni og kom alvotur heim.
Kona hans fáraðist mjög um, hvernig maður hennar
væri til reika, er hann kom heim.
Daníel þagði lengi, þangað til hann sagði:
,, Þegjandi hefði hvítá tekið á móti mér".

Ungur maður var að svipast um á ,, rúntinum" í
Reykjavík og gefa stúlkunum auga
Þá ver kveðið:

                           ,, Við skulum ekki hafa hátt",
                           þó hann sé úti að vappa.
                           Það hefur margur allt sitt átt
                           innan gæsalappa.

Engin spurning að mínu mati.

Vonbrigði Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur eru
skiljanleg. Hvað  þarf Ráðherra langan tíma til að mynda
sér skoðun í þessu máli.

Það liggur ljóst fyrir að björgunarþyrla á Akureyri er
nauðsynleg.
Hvað er því til foráttu, eru það peningar, eða vilja þeir halda
öllu í Reykjavík?

Það er alveg nauðsynlegt að ráðamenn þessa lands fari að
gera sér grein fyrir því að það gerist ekki allt í Reykjavík
Þeir halda í alla starfsemi eins og staðar rollur.
Þyrlur norður, byggja upp flugvöll, flugstöð og setja allt á fullt hér
á Eyjafjarðar og norðaustur-svæði.
                    Góðar stundir.


mbl.is Hefur ekki tekið afstöðu til björgunarþyrlu á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er nú öll vitleysan eins.

Taldi maðurinn að hann fengi konuna aftur
ef hann kæmi út til að lumbra á þeim sem hún
býr með í dag,
Og tekur son sinn með sér, hvað er eiginlega
að???
Kemur þeim trúlega í 6 ára fangelsi, gaman fyrir
þá feðga, kannski geta þeir verið í sama klefa.
Eins og ég segi:
,, Ekki er öll vitleysan eins".


mbl.is Feðgar handteknir fyrir líkamsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á brunaútsölu.Það má ekki gerast.

Jón Ásgeir Jóhannesson telur að FL Group
hefði farið á brunaútsölu, hefði ekkert verið að gert,
það er örugglega alveg rétt hjá honum,
og ekki í fyrsta skipti sem þetta félag sem búið er
að heita nokkrum nöfnum, hefur þurft aðstoð
alveg frá því að það hét Loftleiðir, og barðist í
bökkum til að halda sínu.
Þá voru málin erfið, en allir unnu saman að því að gera
sem best þeir máttu fyrir óskabarnið sitt.

Það er það að mínu mati sem vantar í dag,
samvinnu, heiðarleika og að allir vinni vinnuna sína
eins og best verður á kosið, og séu að vinna að sínum
hagsmunum, því það er það sem þarf að gera,
annars er ekkert fyrirtæki til að vinna við.


Eitt er afar mikilvægt, það þarf að senda flesta
starfsmenn þessa félags á námskeið í samvinnu
og mannlegri framkomu.
Eftir því sem er betur komið fram við þig,
því vænna þykir þér um félagið.

Ég treysti Jóni Ásgeir fullkomlega til að snúa þessu dæmi við
hann veit hvað þarf til.
                      Gangi honum og hans starfsfólki vel.
                                   Góðar stundir.


mbl.is Eignir FL Group á brunaútsölu ef ekki hefði verið gripið inn í
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Haraldur Á. Sigurðsson hafði gert manni einum greiða.
maðurinn kom til Haralds og þakkaði honum fyrir
með mörgum vel völdum orðum.
Að lokum sagði hann: ,, Já guð hefur gefið þér stóra
sál, Haraldur minn". ,,Já og ekki hefur hann skorið umbúðirnar
við neglur sé, blessaður", svaraði Haraldur.

Staka eftir Pál prest skálda, er var í Vestmannaeyjum.

                         Grímur Laxdal, góði mann,
                         gaf mér í staupi fullu.
                         Sjálfur fjandinn signi hann
                         sinni upp úr drullu.

Stína


                        Af hverju, Stína, ertu bleik,
                        alllík farðakoppi
                        Ertu þreytt af ástarleik
                        eða fjalahoppi?


Kona skallar aðra konu í andlitið.

Lítið kemur fram um árásargirni kvenna,
svona yfirleitt,
en það þarf að segja frá því eins og öðru.
Hver fjandinn er að þessum konum?
Eiga þær ekki eftir að eignast börn og bú.
þær kannski eiga börn.
hafa þær enga sómatilfinningu og hvað er svo sem gaman
að slíkri skemmtun, spyr sá sem ekki veit.
Þessi 19 ára gamla stúlka hættir kannski að drekka í
fangelsinu og fær hjálp, vonandi.


mbl.is Skallaði konu í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hófleg launahækkun. HALLÓ! HVAÐ ER ÞAÐ???

Er það, það sem er nóg gott fyrir okkur lálaunafólkið?
Klaufalegt orð,
lýsir stéttarskiptingunni sem orðin er í orðum og
framkomu þeirra sem telja sig æðri.

Allavega batnar hagurinn hjá okkur ekki það mikið
að við getum farið að leifa okkur að borða betri mat,
fara í leikhús svona einu sinni á ári eða söngviðburð,
fara með barnabörnin í leikhús og út að borða.
Ég gæti endalaust týnt til það sem við ekki getum
leift okkur.
En Þeir skilja það ekki, ráða og samningamenn þessarar þjóðar.

Hvenær ætlar þjóðin að standa saman, fara í verkfall allir sem einn
og heimta laun sem hægt er að lifa af.
Aldrei því við erum fjandans gungur.
Við hvað erum við hrædd? Munið að við getum bara treyst á okkur sjálf.
                                   Góðar stundir.


mbl.is Hófleg launahækkun og vel tímasettar skattalækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegir. Fyrir hvað?

Ég á nú eftir að sjá þetta á blaði,
fyrr ætla ég ekki alfarið að út tala mig um það.
En hvað er svona merkilegt við það að laun skuli hækka,
en ekki ná upp í  það sem er kallað vísitölulaun.
Það á að hækka ýmislegt og verður maður bara að bíða og sjá
hvað verður á blaðinu.

Merkilegast er að mínu mati að þau skulu sitja þarna saman
Geir og Ingibjörg og tala um óvenjulega samninga og að það
hafi ekki ekki verið gerðir hliðstæðir samningar í langan
tíma, eins og þau séu að gera eitthvað góðverk, og aumingja
aðilar vinnumarkaðarins sem hækka sama og ekki neitt eiga
heiður skilið, hægan! hægan,
það verður örugglega ekki langt í að það verður leiðrétt,
Þeir sátu nefnilega eftir góðmennin.
                     Vona að þeim líði vel.
                         Góðar stundir.

 


mbl.is Geir: Merkilegir og óvenjulegir samningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband