Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
Ljótan er nú bara að fara svolítið illa með mig.
16.3.2008 | 20:36
Hósti, andarteppa (ekki reyki ég) hausverkur,
beinverkir og alles, þetta er ekkert sniðugt,
ég hef allt annað að gera en að vera veik.
Fór á fætur 8 í morgun til að borða smá og taka déskotans
meðulin sem halda hjartanu mínu í gangi, það er svo
erfitt að hósta svona þegar maður er ekki alveg heill,
sko eða þannig.
Fór aðeins í tölvuna, datt inn í rúm aftur svaf til 12.
Fór í bað og gerði mig fína og sæta til að fara í
afmælið, og það var svo gaman, er búin að borða yfir mig að vanda
ekki hægt annað hjá þeim Millu Jr. og Ingimar.
Ætla snemma að sofa í kvöld, þurfum að klára að versla á morgun
yfirfara allt á þriðjudag, síðan koma þau á miðvikudaginn.
Knús á ykkur öll.
Milla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Allt sem Mummi segir er satt.
16.3.2008 | 08:48
Það er svo yndislegt að lesa svona viðtal,
eins og þetta við hann Mumma í Götusmiðjunni.
Það sem hann er að berjast fyrir núna, er samstarf
á milli bæjarfélaga á suðurlandi um eftirmeðferðarheimili
fyrir börn sem eru komin í vítahring glæpa og vímuefnaneyslu.
Þetta er það sem er búið að vanta, alla tíð.
Að vita að hann er ekki að gefast upp, er frábært.
Það sem mér finnst svo frábært að lesa í viðtalinu í 24 stundum.
Er það sem ég er búin að vera að hamra á við fáa vini, eða þannig.
það er alveg sama hvað hver segir, það þarf að byrja forvarnirnar
strax í leikskóla, ef við ekki hjálpum þeim þá,
fer fyrsta höfnunin fram sem barnið fær.
og það er ekki af hinu góða.
Fólki er afar tamt að skrifa allt sem er ekki línuhegðun á t.d.
frekju, athyglissýki, fyrstu gelgjuna, mótþróaaldurinn
og síðan á gelgjuna. þoli ekki þetta orð gelgjan.
Eins og Mummi segir er fullt af fólki sem er allt að vilja gert til
að vinna þessum málum vel, en það vantar skilning ráðamanna
fyrir nauðsyn þess að koma að þessum málum.
Við erum ekki velferðarþjóðfélag, segir Mummi.
Það er sko alveg rétt.
Einnig er það rétt að þegar börn fara úr meðferð þá er
ábyrgðin þeirra eða foreldrana, ef þau fara heim
og hvernig eiga þau að höndla stuðning við elsku barnið sitt.
Þó þau geri allt sem þau kunna og geta í það skiptið,
þá kunna þau það ekki.
Góðar stundir.
![]() |
Götusmiðjan vill samstarf við sveitarfélögin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Fyrir svefninn.
15.3.2008 | 21:13
Verslunarmaður einn eignaðist fimm börn
á sama árinu, eitt barn og þríbura með konu sinni
og auk þess eitt fram hjá.
Þegar einn af kunningjum hans frétti þetta,
varð honum að orði: ,, Ja, mikið er að heyra!
Fyrr má nú gera að gamni sínu!"
Sigurður skáld hitti kunningja sinn á götu og sagði:
,, Hvað heldurðu, að hafi komið fyrir mig?-- þegar ég
kom heim í gærkveldi, var litli strákurinn minn að enda
við að rífa í tætlur handritið að ljóðasafni mínu".
,, Hvað er þetta!" svaraði kunningi hans.
,, Er hann orðin læs?"
Jóhann bóndi var mjög hræddur um konu sína.
Eitt sinn er þau hjónin voru að rífast, sagði hann :
,, Ég skal segja þér það í eitt skipti fyrir öll,
að ef þú hættir ekki að dufla við hvern karlmann
sem þú sérð, þá getur þú farið að líta í kringum
þig eftir nýjum eiginmanni".
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Dagurinn í dag.
15.3.2008 | 20:56
Dóra vaknaði um 9 leitið, síðan voru Þær vaktar
ætluðu að hjálpa Millu Jr. að undirbúa veisluna fyrir
morgundaginn.
Fórum fyrst að versla og Íris kom með gaman fyrir hana að versla
það sem henni vantaði svona til að byrja með.
Síðan fórum við í Húsasmiðjuna, hún keypti málningu og allt
mögulegt sem vantaði til standsetningar á íbúðinni.
Allir fóru eitthvað að vesenast svo ég notaði tímann til að hvíla mig.
Borðuðum öll saman hjá gamla settinu í kvöld.
Ég var með kjúlla með frönskum, grjónum, salati og köldum sósum.
Kaffi og ís á eftir.
Dóra og Íris fóru síðan að mála hjá henni og Milla og Ingimar
heim að klára að útbúa veisluna á morgun,
þetta er alltaf eins og fermingarveisla hjá þeim.
Hlakka til nammý namm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Með gleði og trú í hjarta.
15.3.2008 | 08:59
Það er að koma helgi, og síðan koma Páskar.
Og allt verður iðandi í lífi, gleði og kærleika,
allavega á mínu heimili.
Í gærkveldi fékk ég staðfest, það sem ég reyndar
vissi, þegar Bára Dís kom þá féll hún strax inn í barnahópinn
eins og þau hefðu aldrei skilið.
Þetta hefur alltaf verið svona með ljósálfana mína alla saman
þegar þau hittast, verða þau ein heild, þau falla saman inn í eitt munstur
og leika, tala og gera saman hvað sem þeim dettur í hug.´
Veit ég vel að það er viðkvæmni í mér þessa dagana,
en ég leyfi mér það bara.
Hér fáið þið eitt ljóð
sem fer vel að huga mér í dag.
RÓMANTÍK.
Skal ég líkja þér við sumardag?
Eða saklaust blómálfalag?
Eða vonina og vorsins myndir?
Eða viskuna og tærar lindir?
Þú sem berð birtu hlýja
bón um framtíð nýja,
ert miklu fallegri en sú helga mynd
er af miskunn bræðir frosna lind.
Lokkar þínir sem niðdimm nótt
niður rífa mína elju sótt.
Andlit sem engli hæfir
andar blítt og svæfir.
Fingur þínir fjaður léttir
fætur þínir ógnar nettir
prýða heimsins ljúfu hljóð
og hann er semur nætur ljóð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Fyrir svefninn.
14.3.2008 | 22:47
Ljóð úr bókinni Rómantík, eftir Arnodd Magnús Valdimarsson.
Höfundur gaf út ljóðabókina 1994.
LÍFSHLAUP.
Kertaljós og litrík klæði
leiðast hönd í hönd.
Ástin og ástarkvæði
engin halda bönd.
Rósir og rósavín
rita ástarsögu beggja.
Dúkar og látlaust lín
leynast á milli veggja.
Hringur og hjónaband
heilög athöfn er.
Barn og bleyjustand
bæta mannsins kver.
Það eflir dygð og dáð
að dvelja barni sínu hjá.
Það er bæði skrifað og skráð
að sundurleysi myndar gjá.
Svo verðum við gömul og þreytt
viljum hvorki sofa né vaka.
Allt er farið og allt er breytt,
allt nema dauðans aftaka.
Síðan syrgja synir og dætur,
sársaukans tár sem höf.
En þeir dauðu þegja og bíða nætur,
þegar hátíð verður í hverri gröf.
Góða nótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Dagurinn í dag.
14.3.2008 | 22:30
Ætlaði í þjálfun í morgun, en nei í fyrsta skipti var
bara ófært allir bílar fastir, svo ég sló þessu bara af.
um hádegið fóru allir sem gátu að losa bílinn sem kom
með dótið hennar Írisar og setja það inn í hús.
þá fór ég og lagði mig, þar sem ég er búin að vera
með ljótuna þá hef ég ekki verið upp á marga fiska.
Svaf í allan dag. Fórum síðan til Millu Jr.þar borðuðum
við saman Íris kom um átta leitið, kalla það bara gott,
hún fór um eitt leitið úr Reykjavík.
Boðuðum pissu og kaffi og tertu á eftir.
Við gamla settið erum komin heim meðan hinir eru að
fylgja Írisi og Báru Dís eftir inn í nýja heimilið þeirra.
Núna verða annasamir dagar framundan þannig að
þið fyrirgefið mér ef ég kommenta ekki mikið hjá ykkur.
Sendi ykkur öllum kærleik og ljós.
Kveðjur Milla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Svona á að vinna, láta það gerast.
14.3.2008 | 10:34
Til hamingju Suðurnesjamenn,
það er ekki frá því að maður finni til stolts þó
maður sé brottflutt, þetta eru vinnubrögð að mínu
sem höfða til mín, láta bara verkin tala og það eins
fljótt og hægt er.
Gangi ykkur vel og megi allt styðja við að þetta verk
vinnist stórslysalaust.
Góðar stundir.
![]() |
Framkvæmdir hafnar í Helguvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fóðraða hundaól! Leðursvipu! Ó MY.
14.3.2008 | 06:39
Greyin ef þeim leiðist svona mikið í USA þá er
þetta nú skiljanlegt, þurfa að bæta sér þetta upp í
kynlífinu.Og ætlar bara að fara að læra eldamennsku
ástarlífsins, ekki amalegt, getur nú verið kynæsandi
að nota eldhúsið til salíbunuferðar
Ekki spurning, þegar ég hugsa um það.
Við gætum kannski fengið svona fréttir af frægu fólki
hér heima, ekki alltaf þessi Beckham liði, fer nú að verða
svolítið þreytandi að lesa um hvernig þau,
eða hann greyið reynir að koma sér til við ísklumpinn.
Og ég sem ætlaði ekki að blogga um svona lið,
Það er bara ekkert í blöðunum nema BECKHAM.
![]() |
Heimsóttu kynlífsbúð í Hollywood |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fyrir svefninn.
13.3.2008 | 20:28
Strákur einn vann að því að snúa við brauðum í
Bernhöftsbakaríi hér í Reykjavík.
Ekki var hann neinn vitsmunamaður, en gat þó oft
komizt hnyttilega að orði.
þetta var í þá daga, þegar efnaðar konur voru að
taka upp danskan búning í stað hins Íslenska.
Eitt sinn var strákur þessi niðri á bryggju,
og var honum þá gefin hlýri.
Hélt hann nú heimleiðis með fiskinn og dró hann
á eftir sér. hann mætir þá skipstjórakonu,
sem hann þekkir, og er nýkomin á danskan búning.
,, Hvaða fisk ertu þarna með?" spyr konan.
,, Það er ýsa á dönskum búning", svaraði strákur.
Gamall maður gekk niður að höfn og sá tvær stúlkur
sitja á viðarbunka.
Hann spurði stúlkurnar hvað þær væru að gera.
Þær snéru upp á sig og sögðust vera að veiða.
,, Já og sitjið á beitunni!" sagði karl.
Góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)