Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
Til bráðabirgða. Á ekki til orð.
13.3.2008 | 10:08
Skúrarnir á Reykjavíkurflugvelli hafa held ég
næstum alltaf verið til bráðabirgða, að ég held.
Ég man nú eftir skúrunum sem byggðir voru þegar
Loftleiðir hófu sitt flug,
held næstum að þeir hafi verið flottaði en flugstöðin
er nú á Reykjavíkurflugvelli.
Ekki vantaði að hún væri flott þegar hún var byggð upphaflega,
en síðan er búið að bæta við hana endalaust og er hún vægast sagt
afar fráhrindandi og Íslandi til skammar.
Er ekki nokkur leið til að taka þá ákvörðun sem þarf til að eyða
þeirri óvissu og ófremdarástandi sem nú ríkir.
Í mínum huga á flugvöllurinn að vera á þessu svæði, setja brautir út í sjó
og halda víðsýni yfir miðju þessa svæðis, ekki að kaffæra þennan
yndislega reit í hjarta borgarinnar með einhverjum steinblokkum.
Góðar stundir.
![]() |
Vandræðaástand í Vatnsmýri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Er verið að koma út úr moldarkofunum?
13.3.2008 | 06:59
Það er mikið, að misrétti við konur sé að breytast.
Hef aldrei getað skilið það að allar konur megi ekki
fara í tæknifrjóvgun, og þó þær megi í dag ættleiða barn þá
var það nú ekki hér fyrir svo margt löngu síðan.
Hver er munurinn að mega ættleiða barn, eða fara í
tæknifrjóvgun og hver er munurinn á því að konur fái
tæknifrjóvgun og eignist sitt yndislega langþráða barn
sem konan hugsar um af mikilli ástúð, og gefur barninu
allt sem það þarf,
eða manninum sem setur niður afkvæmi sín
út um allt og sinnir þeim sama og ekki neitt eða ekki neitt.
Þær konur sem lenda í því að eignast börn á þennan hátt,
þurfa að hugsa um þau oft á tíðum einar.
Það er sama hvernig blessuð börnin koma þau eru ætíð mikill
ljósgeisli.
Allar konur eiga sama rétt.
Góðar stundir.
![]() |
Einhleypar konur í tæknifrjóvgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fyrir svefninn.
12.3.2008 | 20:04
Lögregluþjónn var á gangi og sá drukkinn mann
vera að stríða við að koma lykli í skráargatið á
útidyrahurðinni að húsi sínu.
,, get ég hjálpað þér?" spyr lögregluþjónninn.
,, Já", segir maðurinn. ,, Gerðu svo vel og styddu
húsið, meðan ég kem lyklinum í".
Þorleifur ríki á Háeyri blótaði aldrei.
Einu sinni segir maður við hann:
,, Heldurðu að það sé synd að blóta?"
,, Ekki veit ég það", segir Þorleifur,
,, en mér þykir vissara að gera það ekki".
SR. Oddgeir í Vestmannaeyjum var mjög barngóður.
Hann ól upp dótturson sinn og sá ekki sólina fyrir honum.
SR. Oddgeiri þótti gott í staupinu, og gaf hann stundum
dóttursyni sýnum að bragða áfengi, þegar hann fór með það,
en drengurinn var þá sex ára.
Sigurður slembir sagði útgefanda þessa rits eftirfarandi sögu.
SR. Oddgeir sat að drykkju heima hjá Sigurði
og var orðin þéttkenndur.
hann fer þá að tala um dótturson sinn og hælir honum mjög.
Að endingu segir hann:
,, Svo er hann svo góður við vín".
Góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ja hérna hundar og kynlíf, í sama garði.
12.3.2008 | 15:22
um svæðisskiptingu í Garðinum, hva þetta er nú bara á kvöldin
og nóttinni, sem má gera do do,
Engin er með hundinn úti á nóttunni, nema að það sé líka verið
að dúlla sér, þá er bara hægt að binda hundinn við næsta tré.
hann stendur bara vaktina.
Annars er þetta mjög huggulegt, hundarnir á kvöldin að gera þarfir sínar.
Sumir þrífa ekki vel eftir þá. "Geðslegt".
Síðan koma náttúruunnendurnir og dúlla sér við sitt áhugamál,
sem sagt að stunda kynlíf úti í guðs grænni náttúrunni.
kannski þeir hafi með sér teppi, nei varla,
þá er þetta ekki náttúruvænt kynlíf.
það væri nú ansi sneddý að drífa sig til Ams. næsta haust.
![]() |
Kynlíf leyft, ekki hundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Kalka!? nei ég er ekki farin að kalka.
12.3.2008 | 10:01
Það var nefnilega þannig að í gær sagði ég í kommenti
frá því að Ljósálfarnir mínir hér á Húsavík ættu afmæli,
sú eldri 10 mars en sú yngri 11 mars.
Síðan fór sú gamla (Unga) á flug í frásagnargleðinni.
Fór að segja að ég hefði verið viðstödd þegar þær fæddust
Milla dætur. Einnig þegar tvíburarnir mínir fæddust,
dætur Dóru minnar, og þegar Hróbjartur minn fæddist
sonur Írisar.
Hætti svo bara að segja frá eins og ég ætti bara þessi
fimm barnabörn.
Kviknaði á perunni í morgun, ég á fjögur í viðbót.
Ákvað að bæta við, svo engum sárnaði við ömmu sína.
Fúsi og Solla eiga Kamillu sól sem er 11 ára og ég get alveg
sagt ykkur án þess að blikna að hún hefur alla góða kosti
frá mér, T.d. stjórnsemi, allt á sínum stað, þarf að vita um allt sem gerist
og hvað er í matinn hverju sinni, og hvort að allt sé til í þann rétt
sem á að elda, frábært segir amman.
Síðan eiga þau Viktor Mána sem er bara flottastur.
Sölvi Steinn er yngstur og yngsta barnabarnið mitt, algjör knúsbolti.
Ekki var ég viðstödd fæðingu þeirra, en fór fljótlega suður eftir að þau fæddust.
Íris mín á svo Báru Dísina og ég ætlaði að vera viðstödd þá fæðingu, en henni
datt í hug að koma í heiminn á gamlársdag, afmælisdaginn hennar mömmu minnar
og varð hún 75 ára þennan dag og var veisla um daginn í sal úti í bæ.
Um kvöldið vorum við búin að bjóða fullt af fólki heim til Írisar í Kalkún og var
ekki hægt að hætta við það, því maturinn var tilbúin er við komum frá
mömmu, bara eftir að brúna og laga sósuna.
Það var nú eins gott að til var matur því Íris var svo svöng að farið var með
mat handa þeim suður í Keflavík. Hún kom svo heim á nýársdag með
prinsessuna sína.
Takk fyrir mig englarnir mínir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Fyrir svefninn.
11.3.2008 | 20:10
Guðmundur Kíkir var Skaftfellingur að uppruna.
Hann var kunnur fyrir orðkynngi og talaði kjarnmikið
mál. Einhvern tíman sagði hann svo frá:
,, Einu sinni réðst ég hjá þeim mikla manni, Hákoni
ríka á Stafnesi. Svo þegar róðrar hófust,
þá tók hann grjótharðan leðurbambara, fékk mér og sagði
við einn norðlenskan bolta mikinn: ,, Hjálpaðu manninum", --
og hann gerði það rækilega.
Svo þegar á miðin kom og rennt var færum, dró óvinurinn fyrstur
fisk,-- ég meina Hákon-- lagði hann á bitann og sagði:
þekkir þú þennan, Guðmundur?"-- Kvað ég svo vera,
því hann var einsýnn eins og ég, en sá var munurinn,
að ég var blindur borinn, en fiskurinn hafði orðið blindur að áfalli.
En þegar í land kom, tók ég pjönkur mínar og vildi ekki lengur sitja
undir háðglósum þess meinrætna manns".
Guðmundur Kíkir var sjóhræddur. einu sinni fór hann
Eyrarbakka til Reykjavíkur á opnu skipi.
þegar skipið nálgast reykjanesröst, fer Guðmundur að ókyrrast
og segir: ,, Ég á óvin á leið minni".
,, Hver er það spyr einn hásetinn.
,, Það er Reykjanesröst, sú heljarpussa",
Svaraði Guðmundur.
Guðmundur Kíkir var oft langdvölum hjá Jóni á Ægisíðu.
Jón skrifaði ættartölubækur, en Guðmundur var fróður um ættir,
sérstaklega í Skaftafellssýslu, en þaðan var einn ættliður Jóns.
Einu sinni hafði Guðmundur dvalist mánaðar tíma á Ægisíðu.
þegar hann svo kemur á næsta bæ, segir hann:
,, Ég er orðin hundleiður á karlaumingjanum, honum Jóni.--
Hann er alltaf að spyrja mig".
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Afmælisdagar. Gaman, gaman!!!
11.3.2008 | 16:56
Það er nú svo yndislegt að ljósálfurinn minn hún
Viktoría Ósk varð 9 ára í gær, en það á ekki að
halda upp á það fyrr en um næstu helgi, þá verður
hinn Ljósálfurinn minn fluttur hingað og hún heitir
Bára Dís þær eru miklar vinkonur.
Þær mæðgur Íris mín og Bára Dís eru að koma alkomnar
hingað á föstudaginn kemur, og ég hlakka afar mikið til.
En í dag á litla ljósið hún Aþena Marey mín afmæli,
hún er 4 ára í dag og eru leikskólabörnin í afmæli hjá henni núna.
síðan um helgina verður svona ömmur og afar og svoleiðis öldungar.
En þessu litla ljósi mínu finnst amma ekki gömul þegar hún á að dansa
með henni eftir Latabæjar myndböndunum, ó Guð það getur tekið á,
því ég verð að gera allt, nema slepp við spíkat, eins gott
en ekki sé ég eftir því að hafa flutt hingað,
þær eru búnar að gefa mér ómælda gleði þessir englar
ásamt elsku tvíburunum mínum, og svo kemur Íris með Báru Dís.
Ég er afar lánsöm kona, þakka ég Guði fyrir að gefa mér þann
þroska að kunna að njóta fjölskyldu minnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ekkert er nú yndislegra en að hafa barn á brjósti, EN.
11.3.2008 | 12:50
hvað er hóf hjá þeim sem lokar á að það hafi drukkið fyrsta
og annað glasið?.
Hef nú ekki heyrt vitlausara, veit ekki betur en að þegar maður
var með börnin á brjósti og borðaði eitthvað óæskilegt, fengu
þau litlu skinnin niðurgang.
það á kannski annað við um alkóhól, ekki veit ég,
en til hvers þarf að vera að drekka er þessi litlu skinn eru
þurfandi fyrir 100% athygli frá móðurinni?.
![]() |
Í lagi að drekka vín með barn á brjósti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Bloggið nýasta vopnið.
11.3.2008 | 08:58
engin spurning, síðan ég byrjaði að blogga fyrir vel
rúmu ári síðan hef ég komist að því að þetta er stórkostlegur
miðill til að miðla, hjálpa, styrkja, og losa um hnúta og leita
eftir hjálp þó maður sé ekki þunglyndur, þá eiga mennirnir mörg
önnur böl að bera.
Tek hjartanlega undir það sem Jens Gud. segir.
Höldum áfram á sömu braut.
Góðar stundir.

![]() |
Blogg gegn þunglyndi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Viðurstyggilegir aumingjar.
11.3.2008 | 07:05
Já viðurstyggilegir, aumingjar, ræflar, karlrembu-egóista,
sem troða niður í svaðið alla virðingu fyrir konum.
Hvað er hægt að segja annað um svona menn?
Það sem ég mundi vilja segja er ekki prenthæft, "fjandinn hafi það"
Það er ekki í lagi!!! Fimm karlar á tippinu, notfærandi sér unga stúlku,
sem er ósjálfbjarga, jafnvel vegna byrlunar á einhverri ólyfjan.
Hún getur ekki verið lífleg í gjörningnum aumingja stúlkan.
Eru þeir þá eins og kanínurnar, hoppa og búið.
Minnir mig á bíómynd sem ég sá fyrir mörgum árum,
hún gerðist í stríðinu þar sem stúlka var tekin úr fangabúðunum
síðan biðu hermennirnir í röðum, þarf ekki að lýsa því nánar.
Eitt er víst að búið er að eyðileggja líf einnar mannveru enn.
![]() |
Fimm grunaðir um að hafa nauðgað stúlku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)