Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Fyrir svefninn.

Siggi litli sat í kennslustund í skólanum og hélt
hendinni laumulega fyrir munninum.
Kennslukonan kallaði höstuglega til hans og sagði:
,, Hvað ertu með upp í þér, Siggi? komdu strax með það!"
,, Það er tannpína", svaraði Siggi.

Jón kennari spurði Pétur litla, 7 ára gamlan strák,
hvað hann langaði mest til að gera,
þegar hann væri orðin stór.
,, Að þvo henni mömmu bak við eyrun", svaraði Pétur.

 

Faðir Gústa sagði við hann:
,, Skelfing ertu heimskur, Gústi!
Ekki var ég nærri því jafn heimskur á þínum aldri".
,, Jæja svaraði Gústi. ,, Hvað varstu orðin gamall þá?"

                                               Góða nóttSleeping


Flott mynd eða þannig.

Hvernig stendur á því að lyf eru ódýrari í Færeyjum
en á Íslandi?
Af hverju er ekki hægt að gera jafngóða samninga fyrir
vora þjóð?, eins og Færeyingar gera fyrir sína þjóð.
Er nú alveg hætt að skilja þetta rugl, svo ég tali nú ekki
um lyfjaleysið sem hrjáð hefur landið, ja síðan síðast-liðið haust.
Hvað veldur? starfsfólki í Apótekum er sagt að segja,
að þetta sé vegna þess að við séum svo fámenn þjóð,
HALLÓ!. Við erum ekki hálfvitar!!! 
Hvað með frændur okkar Færeyingana,
Fá þeir svona góða samninga út á fólksfjöldann,?
eða eru okkar menn svona lélegir?.
Verð að segja: ,, Til hamingju Færeyingar með allt sem þið hafið
áorkað í gegnum árin, þið eruð frábær og glæsileg þjóð,
og afar skemmtileg heim að sækja".
Ingibjörg mætti hafa meir reisn yfir sér,
á þessari mynd er eins og hún sé að detta út á hlið.
Hún er nú einu sinni utanríkisráðherra.
mbl.is Lyf flutt inn frá Færeyjum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samþykktir með 88% greiddra atkvæða.

Var svo vitlaus eina ferðina enn að halda að menn
mundu nú fara að rísa upp á afturlappirnar og segja nei.
En áfram vill fólk láta níðast á sér.
Launahækkunin er löngu horfin í hækkunarhítina svo minna
en ekkert er eftir og þetta hefur ætíð verið svona.
Síðan byrjar vælið og skælið yfir þessu og hinu, en hverjum
var að kenna að ekki fór betur?,
jú launafólkinu sjálfu, það trúir öllu endalaust og trúir á
alla nema sjálfan sig.
Ég hef nú bara skömm á þessu.


mbl.is SA samþykkja kjarasamninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlakka til að sjá frá þessu í sjónvarpinu.

Svona mót sem er lagt mikið í eru augnayndi.
hlakka ég mikið til er verður sýnt frá þessu móti.


mbl.is Sannkallaðir íshestar í Berlín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég missi, hökuna á hverjum degi.

Ja hérna það þykir víst fréttnæmt, að samlokurnar
"Croque Monsieur," með skinku og osti,
held þær séu einnig með frönsku sinnepi, finnst þær
eru að frönskum hætti, séu góðar,
brauðið er ótrúlegt segir leikkonan Jessica Alba.
Hún er í París og er ólétt.
Hvað kemur okkur þetta við?.

Sumir mundu nú segja: ,, Þú þarft ekki að lesa fréttina,
en ég meina það, hún er á forsíðu Morgunblaðsins,
Er ekki eitthvað bitastæðara sem getur komið þar."

Það er heldur engin frétt að þessi samloka sé góð,
veit ekki betur en maður sé búin að útbúa sér franskar 
samlokur í mörg ár.
                                          Góðar stundir.


mbl.is Hakkar í sig skinkusamlokur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Pálmi Pálsson menntaskólakennari var fjárhaldsmaður
minn á skólaárum, og þurfti ég oft að kvabba á honum
og fékk ávallt úrlausn.
Ég bað hann oftar en einu sinni um peninga fyrir buxum
sama veturinn. En þegar ég tilfærði sömu ástæðu í
þriðja sinn, sagði Pálmi:
,, Væri ekki heppilegra fyrir þig að breyta eitthvað til?
þetta er í þriðja sinn sem þú færð peninga hjá mér
fyrir buxum, en ég sé, að þú gengur alltaf í þeim sömu".

Um dótturson Bólu Hjálmars.

                              Sé ég nú að satt er það,
                              sem að forðum skáldið kvað:
                              það gefur ei dvergnum gildi manns,
                              þótt Golíat sé afi hans.
                                                    Þorsteinn Sölvason.

Sr. Magnús BL. Jónsson byggði upp
prestssetrið í Vallarnesi.
Þá kvað Jóhannes á Skjögrastöðum:

                             vellríkur er sagt að sé
                             sá, sem byggir þarna.
                             Honum verður flest að fé,
                             fjandanum þeim arna.

Tilkynningaskyldan segir frá.

Er ekki annars tilkynningaskylda?, hélt það.
Við gamla settið erum að fara að Laugum,
Í gærkveldi vorum við í pepparóní pasta og hvítlauksbrauði
að sjálfsögðu frá bakaríinu við brúnna á Akureyri,
Það er besta brauð norðan heiða, það buðu þau upp á
Milla mín og Ingimar.
í kvöld verðum við öll saman í svínakjöts, einhverju hjá
Dóru og snúllunum og ef ég þekki það rétt verður það
ekki af verri endanum.

Annars var ég að vakna sofnaði smá eftir matinn og var
ekki einu sinni búin að fara í sturtu, en varð aðeins að sinna
uppáhaldinu mínu blogginu og vinum mínum þar.
Elska ykkur öll kærleikskveðjur Milla.InLove


Foreldrum kennt -- ekki kennt um.

Las Ágæta upplýsinga grein um fjölskylduráðgjöf, 
barnauppeldi og foreldrakennslu í Fréttablaðinu í gær.
Þar er talað um meðal annars að það sé búið að bjóða
á Vesturlöndum, leiðsögn í listinni að vera gott foreldri
í eitt hundrað ár í dag.

Íslendingar voru nú trúlega ekki komnir út úr moldarkofunum
er ég átti mitt fyrsta barn, því eigi man ég eftir því að manni 
væri boðið upp á slíka þjónustu er maður var að ala upp börnin sín,
enda datt manni ekki í hug að það væri eitthvað sem væri
nauðsynlegt, það gekk bara vel að ala upp börnin, maður
notaðist við það sem maður var sjálfur alin upp í og hrærði
fullt af kærleika og þolinmæði í pottinn.
Ekki segi ég að maður hafi verið fullkomin, en gert var eins og
maður kunni í hvert skipti fyrir sig.

Þessi námskeið sem umræðir eru að mínu mati frábær og er það
Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu-ráðgjafi hjá ÓB ráðgjöf ehf.
sem deilir með okkur fróðleik þessum.
Hjartanlega er ég sammála honum um nauðsyn þess að betra sé
fyrir foreldra að vera í stakk búin til að takast á við hlutverkið
"Foreldri". Í Keflavík þekki ég til þessara mála og hefur þetta gefið
góða raun.

Svo er það önnur saga að margir foreldrar vilja ekki fara á svona
námskeið, halda að það sé verið að tala um að þau séu vanhæf,
en það er alls ekki raunin. Allir þurfa að fá fræðslu.

Vona ég að allir sjái sér fært að halda svona starfi áfram,
því hér fyrir nokkrum árum var þetta ekki í boði.
hvorki fyrir börn eða foreldra þó brýn nauðsyn væri á,
og víða er pottur brotinn í velferðar og samvinnumálum
að betra lífi fyrir fólk og börn.
                                                      Góðar stundir.


Löngu tímabært.

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari telur
að dómarar megi tjá sig meira um dómarastörf þeirra.
Gamla hugmyndin um þögn dómara og fjarlægð
skapi traust og virðingu sé misskilningur.

Sammála er ég þessu og löngu tímabært er að opna
þessa þögn.
Hef samt áhyggjur, "mjög svo miklar", af þeim dómurum,
sem helst vilja segja allan sannleikann og hafa allt opið,
því að á stundum geta þeir það ekki, þeim er meinað það,
eða að það er ógnun tilhanda þeim, ef þeir segja
sannleikann og eru heiðarlegi.
Eru þeir ekki aumkunarverðir, eða eru heilasellurnar í mínum
flotta heila ekki að virka í dag?.
                                                          Góðar stundir.


mbl.is Dómarar tjái sig opinberlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Pálmi hafði gaman af því, eftir að knennfólk fór að sækja skólann,
að færa talið í kenslustundunum að klámkendum orðum,
þó hann gætti að vísu alls hófs í því.
Einu sinni var hann að láta stúlku beygja orðið tittur.
Loks segir Pálmi: ,, Þekkið þér nokkuð smækkunarorð af því?"
,, Já," segir stúlkan, ,,tittlingur. Það er heiti á algengum spörfugli".
,, rétt", segir Pálmi, ,,og svo er það líka til í ennþá algengari
merkingu, sem allir þekkja".
Stúlkan roðnaði og svaraði engu.
,, Jæja", segir þá Pálmi. ,, Við sleppum því þá núna.
Þér kannist betur við það seinna".

Gústaf A Jónasson frá Sólheimatungu sendi Helga Jónassyni,
lækni á Stórólfshvoli, þessa vísu á sextugsafmæli hans í vor,
sem leið:
                               
                                 Sextíu ár er ekki hár
                                 aldur á voru landi.
                                 Helgi er klár í hundrað ár,
                                 ef hann fær tár af Brandi.

Eitthvað má að öllu finna.

                                 Málgar konur, brekótt börn
                                 bændur gera feiga.
                                 þó er nóttin þrautagjörn
                                 þeim sem hvorugt eiga.
                                                 Guðm. Friðjónsson.

                                                            Góða nótt.Sleeping


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband