Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
Fyrir svefninn.
17.5.2008 | 22:03
SR, Árni Þórarinsson og sr, Halldór Bjarnason frá
Presthólum voru góðir vinir.
þeim var báðum meinilla við Jón biskup Helgason.
Á síðustu æviárum var sr. Halldór orðin elliær og hálfruglaður.
Sr. Árni var eitt sinn að koma úr heimsókn frá sr. Halldóri.
Hann hittir þá kunningja sinn, minnist á komu sína til sr. Halldórs
og segir síðan: ,, Hann er orðin ósköp ruglaður, aumingja karlinn.
til dæmis sagði hann mér, að nú ætti að hengja Jón biskup næsta
sunnudag á Þingvöllum. það rennur svona út í fyrir honum.
Annars var hugmyndin ágæt," bætti sr. Árni við.
Úr Íslenskri fyndni.
Konan.
Sjáið hvað líður falleg framhjá,
í fylgd með vorinu hún brosir,
og varir hennar varpa þýðum söng til fuglanna,
á meðan vindurinn leikur mjúklega við hár hennar,
ljóst, brúnt, rautt, svart,
fegurðin er andartakið og andartakið er fegurðin.
Augun geisla af dulúð og visku,
undir fölbleikum kjólnum dansa brjóst hennar af lífi,
bogalínur líkama hennar ljóma af mýkt og hlýju.
Hljóðlega nettum skrefum fagrir fótleggir tígurlega líða um,
líkt og hörputónar engils á rósrauðu skýi.
Hún er ástin, hún er dóttirin, hún er móðirin,
hún er lífið,- - HÚN ER KONAN.
Tileinkað kvenþjóðinni á ári konunnar.
Arnoddur Magnús Valdimarsson.
Góða nótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Ekki tala um, ekki hafa skoðun.
17.5.2008 | 17:05
Nokkrir voru að tala saman á dögunum, aðallega um pólitík,
ég var að hæla og lasta gjörðir fólks í öllum flokkum,
og taldi upp ýmislegt sem betur mætti fara.
Sumir voru frekar undrandi á því, ég sagðist hafa tamið mér það
fyrir margt löngu síðan að tala jafnt um alla menn, ef ég er ekki
sammála þessum eða hinum sama hver það væri þá mundi ég
tjá mig um það þó það væri fólk úr mínum flokki.
Sagði síðan að ég teldi mig ekki eiga neitt sérstakt fólk á þingi,
ég hefði kosið X-D en þar sem hann hefði farið í samstarf með
X-S þá teldi ég að þessir tveir flokkar ættu að vinna saman
að velfarnaði þjóðarinnar.
Sérkennilegt er það að aldrei í mínu lífi hef ég þurft að setja eins
út á þeirra störf eins og á þessu kjörtímabili.
Það dettur af manni andlitið trekk í trekk, á aldrei til orð yfir
það sem ekki er gert og gert, sem er harla lítið sem ekki neitt.
Ekki vantar stóru orðin og upphæðirnar sem látnar eru af hendi
rakna til að bæta hag okkar landsmanna.
Ég hef bara orðið vör við minnkandi kaupgetu hjá mér.
Ég fæ áfall í hvert skipti sem ég fer í Kaskó að versla.
Núna er ég búin að ákveða að trúa ekki í einlægni minni á
þessa menn meir, ég hélt ætíð að þetta mundi lagast,
en nei það lagast ekki.
Það lagast ekki meðan engin þorir að segja sína meiningu.
ljótt hvað ég var trúgjörn í mörg ár,
eða var þetta kannski bara vani?, já trúlega.
Hvað á maður svo að kjósa næst?.
Ætli ég geri ekki bara eins og afi gamli gerði hér um árið,
hann fór bara út úr bænum með allt sitt fólk.
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Kemur þetta á óvart. NEI!
17.5.2008 | 13:39
Það kemur mér ekki á óvart. Börnin horfa upp á,
Klám, blöð, myndir og fréttir af klám óhugnaði allstaðar,
ekki veit ég með þessa tilteknu drengi, en eitthvað stórkostlegt
hlýtur að vera að í uppeldi þeirra og ekkert eftirlit með hvað
þeir taka sér fyrir hendur.
Höfðu nýlega horft á klámmynd með vini sínum og systur hans,
halló!!! það er náttúrlega ekki í lagi heldur með systurina.
Ekki veit ég hvar þetta tekur enda þessi viðbjóður,
en eitt veit ég að aldrei verður hægt að uppræta hann alveg.
Reynum eins og við getum.
![]() |
Nauðguðu 10 ára stúlku og mynduðu árásina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Skoðun Geirs aftan úr fornöld.
17.5.2008 | 11:53
er það nú ekki í fyrsta skipti, hef nú varla heyrt nokkuð
frá honum sem að notum kemur,
en lokksins er heyrist eitthvað í manninum þá segir hann:
,, Ég vill ekki ganga í Evrópusambandið".
Ja há! hélt að það væri nú í lagi að skoða það mál.
Þorgerður Katrín kemur þó fram af einlægni og segir:
,, Það er í lagi að skoða málið, það er þá búið að ræða það".
Flott hjá henni, enda að mínu mati á hún að verða næsti
formaður flokksins.
Hún hefur kjarkinn, víðsýnina og þorir að tala.
![]() |
Geir: Ég vil ekki ganga í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Kraftaverk gerast.
17.5.2008 | 10:02
Maður gleðst yfir fréttum sem lúta að björgun fólks
úr rústunum. Maður er orðin úrkulna vonar, og þá
gerist kraftaverk, fólk finnst og börnin elsku börnin
vonandi á þeim eftir að farnast vel í lífinu.
Mikið vildi ég að það væri möguleiki að senda þúsundir
manna til allra svæða sem svona verða úti, en
einhverra hluta vegna þá er allt svo seint í vöfum
eða það er ekki tekið á móti hjálpinni.
Hvernig stendur á því?.
Kínverjar eru reindar búnir að þyggja hjálpina
sem betur fer,
en þarf ekki meira til?.
![]() |
Börn fundust á lífi í rústunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað er það sem skiptir máli.
17.5.2008 | 08:35
og hjálpar og uppbyggingarstarfi.
Að mínu mati skiptir ekki máli hver bjargast heldur hvað margir.
Tilkynning um að refsa mönnum fyrir hitt og þetta er seinni tíma mál
Auðvitað á að rannsaka uppbyggingu allra húsa í þessu landi,
það hljóta að vera vankantar þar á.
Þessar náttúruhamfarir eru óhugnaður eins og alstaðar þar sem fólk deyr,
og manni verður bara mikið sorgmæddur yfir svona fréttum.
Guð veri með öllu mannkyni.
![]() |
Ferðamanni bjargað úr rústum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrir svefninn.
16.5.2008 | 20:33
Hugleiðingar mínar um karma og hvert
hugsunin leiðir, til einhvers sem gerist
Ég Guðrún Emilía Guðnadóttir eignaðist bloggvinu um
daginn sem heitir Ásdís Emilía hún er frá Akranesi, en býr
í Vestmannaeyjum.
Ég fór einhverra hluta vegna að segja henni frá heimsóknum
mínum á Skagann er ég var barn, kom ég þá iðulega til vinafólks
foreldra minna, sem hétu Gísli Vill og Karen, sagði Ásdísi Emilíu
jafnframt að hún væri svo ung að hún myndi trúlega ekki eftir þeim,
en þau fluttust til Sauðárkróks, og komum við líka þangað.
Man ég afar vel eftir þeim ferðum því leiðin þangað var svo falleg,
og ekki var nú krókurinn síðri með lækinn liðandi í gegnum bæinn.
Ásdís Emilía kommentaði á mig til baka og hafði þá innt mömmu
sína eftir þessu fólki og kom þá í ljós að þau voru tengt.
og sagði hún mér jafnframt að þau mektarhjón Gísli og Karen,
hefðu flutt aftur til Akranes, og Karen hefði opnaðHannyrðabúð Karenar.
þessu var ég búin að gleyma.
þessar gömlu æsku minningar létu mig ekki í friði,
það er svo gaman að rifja upp æskuna sína og hvað var í raun gaman að lifa.
Hringdi síðan í mömmu til að skerpa þetta betur var hún sem betur fer í
stuði og mundi þetta alveg. kannski hringdi pabbi heim og sagði:
,, Hann Gísli Vill, aldrei var hann kallaður annað, kemur með mér
heim í mat", þá gall í mér, ,,þá fáum við síld"
Því mér fannst víst ný síld með kartöflum herramannsmatur.
og ætíð kom hann með síld, ef síldarveiðitími var.
Fyrir nokkrum dögum kom í fréttum að sjálfstæðisflokkurinn mundi mynda nýjan
meirihluta þar sem Karen og Gísli ekki Gísli Vill.
hefðu gengið til liðs við flokkinn.
Ekki ætla ég að tala um það hér, er búin að segja mitt í því máli.
Ég hugsaði strax, hún Karen er örugglega barnabarn Gísla og Karenar.
Daginn eftir kommentaði Ásdís Emilía og staðfesti það sem ég hafði hugsað.
Er ég fletti fréttablaðinu daginn þar á eftir er sagt frá, og þar er hún nefnd
Karen Emilía.
Hvað kallið þið þetta?.
ÉG kalla þetta hugsun sem sækir á, hugsun sem leiðir til einhvers.
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Selur þroskahefta konu sína.
16.5.2008 | 11:47
eitt skrímslið í viðbót.
Selur öðrum karlmönnum þroskahefta konu sína, hann er líka
ákærður fyrir misnotkun á börnum kynferðislega,
hótanir og misþyrmingar.
Sem sagt algjört skrímsli. Hvað með alla þá menn sem
keyptu þessa þjónustu sem hann bauð upp á,
þeir eru að sjálfsögðu sömu skrímslin.
Allstaðar er þessi óhugnaður hvað verður næst?.
![]() |
Svíi hélt konu sinni í kynlífsþrælkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Kallast svona bitlingar ekki mútur?.
16.5.2008 | 09:43
Hugsa sér hættir við að bjóða fjölda manns í veiði,
hverjum er boðið í veiði, eru það þeim sem mesta peningana
eiga inni í bankanum, kannski stórum hluthöfum og öðru
mektarfólki, að þeirra mati.
Í eina tíð og ennþá held ég, eru svona boðsferðir kallaðar mútur.
Þeir sem minna eiga inni fá húfur, handklæði og allskonar dót,
og allt er þetta merkt Glitni:
"Sem sagt gangandi auglýsing fyrir bankann".
Síðan verður örugglega farið í flestar þessar ferðir,
því það var allavega svo, hér á árum áður að maður þurfti að borga
veiðiferðirnar snemma vors, en það hefur kannski breyst.
En ég tel að svona yfirlýsingar séu bara til þess að slá
ryki í augun á fólki,
Og eru þeir ekki einir um það.
Mín skoðun og góðar stundir.
![]() |
Stórlaxar Glitnis hætta við laxveiðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þeir hljóta að sjónvarpa þessum gjörningi.
16.5.2008 | 05:56
landsbyggðarpúkunum upp á þennan gjörning í TV.
Því ekki vitum við hvað svona sýning inniber,
svo við þurfum ekki að nota ímyndunaraflið,
að við fáum að sjá, herlegheitin.
![]() |
Kynlífsgjörningar Dr. Ruth |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)