Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Fyrir svefninn.

Brynjólfur Kúld var gáfumaður, en ofdrykkjumaður
seinni hluta ævinnar.
Þegar hann var á túr, smakkaði hann stundum ekki
mat dögum og jafnvel vikum saman.
Einu sinni náði kunningi hans honum inn til sín og rak
hann til borðs með sér.
Þegar Brynjólfur var farinn að borða, segir hann:
,, Andskoti skal það nú annars gera manni gott að
smakka mat, svona einstöku sinnum."

              Í Hnappadal.

       
Hnappadal ég horfi á
        hann mér arma rétti.
        Þar ég heimasætur sá
        sex á einu bretti.

            Kveðið um kunningjana

        Þú hefur illa ekkert gert
        öðlast hylli að vonum,
        sízt mun spilla að þú ert
        einn af snillingonum.

                               Góða nótt.Sleeping


Einkaþota Saxo Bank.

Ja hérna á nú ekki til orð geta þeir verið þekktir fyrir
að koma til Íslands?.
Búnir að móðga okkur opinberlega, koma svo og segja að
þeir beri ekki kala til Íslendinga.
Það er nú hreinlega ekki í lagi með suma.

Getur það verið að þeir séu hræddir greyin,
eða að þeir geti haft gott af okkur á einhvern hátt?.


mbl.is Berum ekki kala til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna, Útlán of lítil.

Útlán séu of lítil, hefði haldið að maður þyrfti að biðja um lán
til þess að bankarnir veittu manni það.

þarf ekki að borga lánin sem maður tekur tekur?
Jú þess vegna biður maður ekki um lán,
maður hefur ekki efni á að borga af þeim.
Enda verða gjaldþrotin mikil og stór núna.


mbl.is Útlán of lítil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta list?

En þetta er ekki nektardans þó þetta sé ekki list í mínum augum.
Datt í hug að þetta væri smellin hugmynd af nýju skemmtiatriði
á herrakvöld hestamanna í framtíðinni.
Koma inn ríðandi á hesti, fara nokkra hringi
þá væri bara hægt að kalla það listgjörning.
Vona að þið lesið þetta kæru hestamenn.
mbl.is Andstæður í Hafnarhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vikið frá störfum / v óviðeigandi hegðunar.

Kennara vikið frá störfum vegna óviðeigandi hegðunar
gagnvart stúlkum í 9. og 10. bekk.


Málið kom á borð umsjónakennarans 11 janúar þá höfðu
komið kvartanir frá nemendum vegna hegðunar kennarans,
hafði hann meðal annars verið með mynd af einni stúlkunni
sem hann kenndi á skjáhvílu í tölvunni sinni.

                          Takið eftir!
Talað var við kennarann og hann beðin um að breyta hegðun sinni.

Mánuði seinna kom móðir með dóttir sinni til umsjónakennara
vegna atviks í lok kennslustundar vikunni áður
.

Að mínu mati átti að víkja þessum kennara strax frá störfum.
Héldu menn að hann mundi láta af sínum hvötum út á eitt tiltal?.
Héldu menn að það væri ekki siðlaust að bjóða stúlkunum upp
á kennslu frá þessum manni oftar?.
það hlýtur að hafa verið komið nóg er þær klaga stúlkurnar.

þarna er í raun sagt við alla aðila verið bara góð og lagið þetta
eins og um smábörn sé að ræða.


Þarna átti sér stað mikil lítilsvirðing gagnvart stúlkunum.

Merkilegt er, að það þurfi fordæmi í menntasviðið til að taka á svona málum
og engin ferill þil að fara eftir, Skondið, það er nefnilega hægt að hringja
í barnaverndarnefnd Reykjavíkur, svona til dæmis.

Nú á að setja af stað nefnd manna til að móta feril  hjá menntasviðinu
ef mál af þessum toga koma upp aftur.
Það munu þau gera og hafa ætíð gert.

Hélt annars er koma upp mál sem varða ofbeldi, hvort sem það er
andlegt, líkamlegt eða að særa blygðunarkennd barna þá þyrfti
ekki nema almenna skynsemi til að vita hvað ætti að gera
.

Þetta er allavega mín skoðun.


mbl.is Kennara vikið frá störfum í Borgaskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fyrir svefninn.

Guðmundur læknir var greiðamaður á áfengisseðla,
ekki síður en annað.
Einu sinni kemur maður úr Dölunum til Guðmundar
og biður hann um lyfseðla fyrir sig og nokkra kunningja
sína. Meðal þeirra var Hildiþór á Harrastöðum, sem raunar
var nýlega dáinn, en hafði þótt gott í staupinu í lifanda lífi.
Guðmundur sem fylgdist manna best með öllum tíðindum
og hafði frétt lát Hildiþórs, lætur að vísu lyfseðil út á nafn hans,
en segir um leið: ,, Og drekkur hann enn."

                    Kvennagull.

             
Meyjaflokkur bæ frá bæ
              brunar nokkuð villtur.
              telpur lokkar til sín æ
              traustur þokkapiltur.

                          Bogga.

              
Bogga mörgum blíðu gaf,
              brosti allavega.
              því er lítið eftir af
              ylnum meyjarlega.

                   Daginn eftir

             
Öls af völdum ýmsir menn,
              illa tíðum fóru.
              Sést í gegnum suma enn,
              sem að fyllstir vóru.
                                                    Góða nótt.Sleeping


Þau eru æðisleg.

Óska þeim alls hins besta, Eurobandinu,
ásamt Friðrik Ómari og Regínu Ósk, þau eru
glæsilegir kandídatar fyrir Ísland.

þetta hlýtur að vera mikil vinna en jafnframt afar
skemmtileg og faglega unnin af þeim báðum.

Ekki vantar neitt upp á glæsilegan aðbúnað þeim til handa.
                    


mbl.is Konunglegar móttökur í Serbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elisabeth segir söguna frá sinni hlið.

Ég kalla hana bara góða að koma fram og segja sína
sögu, það getur ekki verið auðvelt.

En þessi óhugnaður gerðist og munu þau aldrei ná sér
eftir þetta.
Þau fá að sjálfsögðu alla þá hjálp sem þau þurfa og
framfærslu í einhvern tíma, hlýtur að vera.

Allavega vona ég að hún selji þessa sögu sína dýrt
hún á það skilið fyrir sig og börnin.
                          Guð veri með þeim.
mbl.is Elisabeth Fritzl ætlar að veita sjónvarpsviðtal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er nú ekki hissa.

Fyrir allmörgum árum síðan var talað um að Suðurnesin
væru með hæðstu tíðni veikinda í landinu,
það meira að segja alvarleg veikindi eins og krabbamein.
Talið var þá að um væri að kenna öllu sem þar í jörðu lægi,
rafkaplar og allskonar tengingar, svo ég tali nú ekki um
alla mengunina í jarðveginum.
Ekki tel ég þetta vera fjarstæðu.

Í dag er ekki verandi í miðbæ Keflavíkur um helgar fyrir
leiðindauppákomum, árásum á fólk bæði á götum úti
og inni á heimilum fólks.

Gæti þetta verið rafmagninu að kenna, ef svo er mundi ég
í þeirra sporum ekkert vera að hafa fyrir því að bæta við
rafmagni í jörð.
Nei þetta eru nú bara svona hugleiðingar, mér er nú vel við
staðinn, bjó þarna í 27 ár.
                                Góðar stundir.
mbl.is Slagsmál og ólæti í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir vissu af, en gerðu ekkert.

Þessar náttúruhamfarir eru ólýsanlegar fyrir okkur
sem ekki höfum lent í svona nokkru.
Að vera á staðnum sem einu sinni var heimili þitt
jafnvel án barna og annarra ættingja,
bíðandi eftir því að jafnvel barnið sitt finnist.

Ég get sett mig í þau spor, það er það sorglegasta
sem til er að missa barnið sitt.
það er líka það að í kína áttu hjón yfirleitt bara eitt barn.

Sagt er að ráðamenn í Kína hafi vitað af verðandi skjálftum,
en ekkert hafst við í málunum, og svo eru þeir að tala um
að láta rannsaka af hverju skólabyggingar voru ekki traustari.
það er allt í rúst þarna.
Ætli það megi ekki rannsaka eitthvað meira en það?.

Það hefur gerst á fleiri stöðum víða um heim, að yfirvöld hafa
verið látin vita um yfirvofandi hættu, en ekkert gert.
Hverju sætir?, trúa menn því ekki að hamfarir geti orðið svona slæmar
eða er þessi hugsun, hver sem hún er, algjört sinnuleysi?.

Sem betur fer eigum við topp menn til eftirlits og fáum við að vita
um leið og eitthvað er að gerast,
og rýmingaráætlanir eru til á þeim stöðum sem jafnvel þarf að
rýma og það fljótt.
                                Guð veri með öllu fólki.


mbl.is Óveður á jarðskjálftasvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband