Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Fyrir svefninn.

Jórunn heitir fátæk kona í Vestmannaeyjum og er
kölluð Jóka.
Hún kom í búð Gunnars Ólafssonar á tanganum
og bað um einhverja úttekt fyrir jólin.
Jóhann alþingismaður, félagi Gunnars, sem annars
er greiðamaður, neitaði henni um úttekt,
þar sem hún skuldaði allmikið fyrir.
Gunnar ber þar að, og segir Jóka honum þá frá
erindi sínu og málalokum.
,, Já , já", segir Gunnar, ,, Það eru ekki kosningar núna,
Jóka mín",---færir henni síðan 100 krónur og segir:
,, Hérna eru 50 krónur frá hvorum okkar Jóhanni".

Sumt fólk virðist ganga nokkuð langt í því að knýja út
tryggingarbætur fyrir slys.
Kona nokkur hafði orðið fyrir bíl og var lögð í sjúkrahús.
Maður hennar gerði ýtrustu bótakröfur.
meðal annars lagði hann fram reikning fyrir blóm,
er hann hafði fært konu sinni í sjúkrahúsið.

Þegar Sigurður Sigfússon tók sér ættarnafnið Bjarklind,
var þessi vísa kveðin.

                   það er á því varla von,
                   að við það yndi glaður
                   að vera bara Sigfússon
                   svona tigin maður.
                               
                             Halldór Hallgrímsson.

Hugurinn ber mig---

                  Eina ég hitti um aftanskeið
                  austur í svartaveri.
                  Hugurinn bar mig hálfa leið,
                  --- hitt fór ég á meri.
                                                     K. N.
                  Góða nótt.Sleeping


Er þjóðin að tapa sér í meðvirkni?.

Mætti halda það, ekki er fólk að vakna til lífsins með
að það sé ekki skammarlegt að láta í sér heyra.
það hefur nefnilega lengi loðað við Íslendinga að það sé
niðurlægjandi að mótmæla.
það sé bara verkalýðurinn sem fari í mótmælagöngur.

Einu sinni sagði maður við mig, það var 1 maí, og það var verið
í fréttum að sýna frá 1 maí göngunni í Reykjavík,
hann sagði: ,, þetta er nú meira pakkið". Sýnir bara hugsun manna.

Erum við ekki öll verkalýður ég tel það vera þannig,
þeir sem vinna lægst launuðu störfin hafa yfirmenn
sem telja sig yfir þá hafna, en fyrir hverja þurfa þeir að svara?.

Þeir sem telja sig æðri öðrum, sem margir telja sig vera, eins og læknar,
þingmenn, ráðherrar og lengi mætti telja,
eru bara óvart á launum á launum hjá okkur þegnum þessa lands.


það sannaðist í morgun er bara 100 manns komu á Austurvöll
til að styðja kröfur um betri kjör fyrir alla landsmenn, að menn
eru ennþá í gömlu súpunni að það sé skömm að láta í sér heyra,
bara að taka því þegjandi sem að manni er rétt.

Meðvirknin í fólki er á svo háu stigi að það telur sér trú um
að svona eigi hlutirnir að vera.
                                 Góðar stundir.

 


mbl.is Hrópað af þingpöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuðningur við, já við hvað?.

Stjórn Landsambands ungra frjálslyndra lýsir yfir
fullum stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson.
Það vakna nú margar spurningar við svona stuðning.
En svörin við þeim, munu koma fram síðar.

Sagt er að Karen hafi lítilsvirt og svikið sína kjósendur,
HÆGAN! Vilja þeir sem kusu Karen til að vinna fyrir sig að
hún gerði það ekki af heilindum og af sinni hjartans sannfæringu.
Það held ég ekki

Vilja þeir sem kusu þennan lista vera með mönnum í flokki sem hafa
þessa stefnu í innflytjendamálum?, nei ég tel svo ekki vera.

Veit ég vel eins og víða var að menn kusu þennan lista vegna óánæju  
við sinn flokk, þeir sem gerðu það munu kjósa annað næst.

Allavega var ég sem óánægð, búin að ákveða að í næstu kosningum
til þings mundi ég snúa mér að þessum flokki,
en það mun ekki verða.
                            Eigið góðan dag.
mbl.is Lýsa yfir stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Frú Sigríður, tengdamóðir Skúla Gíslasonar prófasts
á breiðabólsstað, var hjá honum í elli sinni.
Sr. Skúli jarðaði seinni mann hennar, sr. Sigurð Thorarensen,
en hún gat ekki fylgt honum til grafar vegna ellilasleika.
Þegar prófastur kom frá jarðaförinni, spurði Sigríður hann,
hvað hann hefði sagt yfir moldum manns síns.
Sr. Skúli sem var orðhvatur og kerskinn,
hyggst nú stríða tengdamóður sinni og segir:
,,Ég sagði, að allir hefðu verið honum bölvaðir í lífinu,
bæði skyldir og vandalausir".
,, Ekki tek ég það til mín", svaraði Sigríður,
,, því hann var mér hvorki  skyldur né vandalaus".


Verkamaður hjá ,,Kol og Salt" sagði, þegar gengi Hitlers
var sem mest í stríðinu
og Þjóðverjar hernámu hvert landið á fætur öðru:
,, Ekkert skil ég í, hvað hann Hitler vill með öll þessi lönd,
--- barnlaus maðurinn".

Eftirmæli fyrirfram.

                  þegar Pétur þreytir skeið,
                  þannig hermir saga:
                  Ómennskunnar ösnu reið
                  alla sína daga.
                                 Þormóður Ísfeld Pálsson.

Önnur eftirmæli.

                 Hlaut af flestu lítið lof,
                 lasta þræddi götu,
                 bæði drakk og át um of
                 annarra tíðast mötu
                                     Þormóður Ísfeld Pálsson.

                                                Góða nótt.Sleeping


Auðvitað er þetta fagnaðarefni.

Ef að það hefði náð fram að ganga að ekki hefði verið tekið á móti
flóttafólkinu, vegna ummæla Magnúsar Þórs hefði það verið hneisa fyrir
Akranesbæ.

En Karen Jónsdóttir fulltrúi F-lista hefur ákveðið að ganga til liðs við
Sjálfstæðisflokkinn,
og er það skiljanlegt í ljósi þeirra skoðana sem sumir flokksmenn F-listans hafa,
en það vissi að sjálfsögðu Karen er hún gekk til liðs við flokkinn.
Óska ég ykkur alls hins besta í nýrri bæjarstjórn.

Á flokkur sem hefur svona hugsandi menn innanborðs nokkra framtíð fyrir sér?,
Ekki að mínu mati.
Það þarf að hreinsa til fyrir næstu kosningar, engin mun gleyma þessu.


mbl.is Sjálfstæðismenn með hreinan meirihluta á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skildu þeir beita táragasi, eins og 1949?.

Fólki smalað í mótmæli á Austurvelli í fyrramálið,
það verður spennandi að sjá hvað þegnar þessa lands gera,
taka þeir þátt, eða láta þeir vanvirðinguna fótum sér troða
aftur og aftur.
Ég hvet alla að mæta á Austurvöll, það er komin tími á
að menn fari að skilja að við erum ekki greindarskert.

En skildi það fara svo, eins og í mótmælunum 1949, að
þeir finndu sig knúna til að beita táragasinu á fólk,
NEI! kæru landsmenn allir verða að sýna kurteisi.
Er það ekki annars?.


mbl.is Boða fólk á Austurvöll til að mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundað í Dubai.

Til hamingju strákar þið eruð bara flottastir, komnir
alla leið, eftir að sjálfsögðu áralanga vinnu. streð,
puð, en ætíð bara gaman. Er það ekki?.
mbl.is Íslendingur kjörinn heimsforseti matreiðslumeistara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprengjur, flóttafólk og hraðakstur.

FLÓTTAFÓKL.
Undur og stórmerki gerast enn. hef ekki orðið vör við að undrið,
sem heitir að taka til í sínum ranni, mundi fyrirbyggja að hægt væri
að taka á móti fólksaukningu í bæjum landsins,
en  Magnús Þór Hafsteinsson telur það ekki möguleika vegna bágra
stöðu, (eða hvað sem hann er eiginlega að meina)
á skaganum að auka við íbúafjöldann.
Eða er þetta kannski bara af því að nýu íbúarnir eru flóttamenn,
sem það hugnast honum eigi að taka á móti íbúunum.
" Afar neikvætt".

Hvernig væri að leita til bæjarfélaga sem mundu taka við flóttafólki
alla leið, ekki bara segja við komu fólksins: ,,verið velkomin",
Punktur basta.
"Afar neikvætt".

SPRENGJA Í HELGUVÍK.

Sprengjuvörpusprengja fannst í drasli í Helguvík, en löggustrákarnir
okkar komu og lokuðu staðnum, þar til strákarnir okkar í
landhelgisgæslunni komu og tóku ófögnuðinn,
en sprengjan var ekki virk. "Jákvætt".

HRAÐAKSTUR.

Löngum hefur Grindavíkurvegur freystað þá sem vilja kitla pinnann
og of margir, hafa ekki komið vel út úr því og sumir lennt handan við
glæruna, en samt láta þessir menn sér ekki segast.
En löggustrákarnir okkar liggja í leyni og taka þessa brotagikki.

Jákvætt í fréttum var að tveir voru sektaðir fyrir að vera ekki í beltum.
Þarna má gera betur og taka á símanokun fólks við akstur.

Algengt er að sjá fólk tala í símann, jafnvel reykjandi, ekki í belti 
og með börnin í aftursætinu.
"Afar neikvætt".


Fyrir svefninn.

Á leiðinni út í Vík eru hraunhólar nokkrir,
sem nefndir hafa verið Ömpustekkir, en ekki vita
menn lengur af hverju það nafn er dregið. Sagt er
að Vilborgarstaðabræður hafi haft þar stekki,
meðan fráfærur voru tíðkaðar í Vestmannaeyjum,
en það stóð aðein skamma hríð, eftir að konungur
fyrirskipaði fráfærur um miðja 18. öld.
það er haft fyrir satt, að einhverjar verndarvættir
ættu hæli í hraunhólum þessum, því sú var reyndin,
að öll ásókn hætti, er menn komu að ömpustekkjum
á leið sinni utan úr Klauf eða Vík.
Á þeim slóðum hafði jafnan verið reimt, enda þótt það
ágerðist eftir að útlendingarnir voru dysjaðir í
Erlendarkróm á fyrri hluta 19. aldar.
Einhverju sinni voru menn í þangfjöru úti í Vík.
Reiddu þeir heim þang á mörgum hestum,
að þangskurði loknum. Áleiðinni áttu þeir fullt í fangi
með að halda böggunum á hestunum, jafnvel þó að
þeir legðist á baggana, svo þeir færu ekki um þvert bak.
Áttu þeir í þessu stríði með baggana, þangað til þeir komu
að Ömpustekkjum, þá hætti ásókn þessi með öllu, og þurfti
ekki að lagfæra á hestunum úr því. héldu mennirnir,
að vættirnir í Ömpustekkjum hefðu lagt þeim lið.
Svo var trú manna sterk á þessu, að talið var varhugavert,
að vera á ferli eftir dagsetur fyrir sunnan Ömpustekki.
( Sögn Sigfúsar Jhonsen).
Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.

                    Góða nótt.Sleeping


Ýmislegt sem vert er að vita.

Þið getið nú rétt ímyndað ykkur, verðum að vita allt,
eins og þetta sem hér fer á eftir.GetLost

Cindy Crawford er komin með gráa fiðringinn, getur það verið,
er hann til hjá konum?, allavega er það einhver vöntun hjá henni
því hún er farin að dansa upp á borðum fyrir manninn sinn og vini
hans, en tekur fram að hún dansi ekki nakin.Heart

Hún er nú bara eins og fyrri kona langalangafa míns, sem skemmti
gestum í vertshúsi sem hann átti á Ísafirði, og sagt er að hún hafi
dillað pilsum ört og haft dóttur sína sér til hjálpar í dansinum,
eins gott að hún var ekki langalangamma mín, þá hefði ég kannski,
NEI nei aldrei.W00t Ekki ég.Blush

Og hvað eru nú foreldrar að hugsa, er þeim alveg sama þó elsku
litlu börnin þeirra séu blindfull  á afskektum stað án eftirlits, en
sem betur fer kom löggan og ók öllum á stöðina, svo komu foreldrarnir
að ná í elskurnar.Tounge

Nú vitum við það með vissu, ef við lendum í gini hákarls, þá bara borum
við í augu hans þá sleppir hann takinu, en þá er hann auðvitað búin að
klippa smá í mannCrying

Núna vitum við að það er alveg bannað að stríða rauðhausum, það segir
allavega söngvarinn Mick Huchall, hann telur það vera einelti eða jafnvel
rasisma, ja hérna! en hvað með alla aðra stríðni, einelti eða rasisma?.Angry

Gott er að vera umhverfisvænn, eins og allir vita hefur Paul McCartney
verið að vekja athygli á svokölluðum grænum bílum.
Þeir voru svo stórmannlegir að gefa honum eina Lexus Limósínu með
tvinnvél, enn þeir gerðu þann feil að senda bílinn með flugvél frá
Japan, sem að sjálfsögðu mengaði andrúmsloftið á leiðinni.
Eigi var Aðalsmaðurinn  Paul ánægður með það.Angry
það er nú bara ekki í lagi með svona fólk, er hann kannski hættur
að fljúga á milli landa?.W00t
                                                Góðar stundir.Heart




« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.