Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009
Fyrir svefninn
4.2.2009 | 19:36
Góð minning.
Sumarið 1998 fórum við með mömmu mína í ferðalag.
Henni langaði að koma til Eskifjarðar, nú við tókum
Sumarhús á leigu rétt fyrir utan Egilsstaði.
Dóra mín kom með og að sjálfsögðu tvíburarnir okkar.
Við ákváðum að það væri best að mamma mundi fljúga
til Egilsstaða.
Við fórum frá Ísafirði á miðvikudegi og ókum til Húsavíkur
Gistum eina nótt hjá Millu og Ingimar, síðan kom Milla á
sínum bíl með okkur á föstudeginum tókum við bústaðnum
komum okkur fyrir og fórum að versla.
Daginn eftir kom mamma og það var mikil gleði því tvíburarnir
elska langömmu sína og það er gagnkvæmt.
Mamma hafði ekki komið til Eskifjarðar síðan hún flutti þaðan með
sinni fjölskyldu að mig minnir 1933. svo það voru 66 ár.
Jæja við fórum með hana í Landsbankann þar sem pabbi hennar
var útibústjóri og því miður var búið að rífa gamla húsið, en vel var
tekið á móti henni í nýja bankanum farið með okkur upp á loft og
þar fékk hún að sjá myndir og við fengum kaffi.
En svo fór í verra daginn eftir þá fórum við til Seyðisfjarðar og hún
var stíf alla leiðina niður, hún er nefnilega mikið bílhrædd, eða bara
óhemja í bíl. Við borðuðum og skoðuðum okkur um síðan á uppleið
ákváðum við að skoða fossana og ókum út af veginum og á bílaplan
sem þar var, en er maður er að aka inn þá er svona kantur þannig
að þú sérð bara upp í himininn smá-stund.
Guð minn góður, mamma trylltist af hræðslu og gargaði á Gísla minn
tvíburarnir 8 ára, fóru að gráta úr hræðslu, það þarf ekki að taka það
fram að hún fór ekki út úr bílnum og ætluðu tvíburarnir ekki heldur
mamma þeirra tók þær bara út úr bílnum og léku þær sér þarna
góða stund, það var yndislegt þarna uppi.
Ég var ekki á hækju þá bara eldhress.
Við ætluðum á Borgarfjörð eystri, en hjálpi mér allir heilagir, nei!
svo það sem eftir var af tímanum vorum við í söfnum, kaffihúsum
og öllu því gramseríi sem við fundum.
Síðan var spilað, litað og gerðar hannyrðir á kvöldin.
Skildum mömmu síðan eftir á Akureyri hjá frænku minni þar
síðan flaug sú gamla þaðan til Ísafjarðar og var hún hjá okkur í
vikutíma.
Það var ekki farið með hana í neinar fjallaferðir þar.
Nú er hún elsku mamma mín ekki fær um að fara út úr sínum bæ
sem er Skógarbær í mjódd.
Hún klæðist í stól og horfir á sjónvarpið allan daginn.
hún er með allar rásir sem hægt er að hafa og elskar að skipta
um rásir. Við erum oft á tíðum fyrir henni ef við stoppum of lengi.
Svona er þetta, en ef hún hringir þá er mín í stuði og það kjaftar á
henni hver tuska.
Takk elsku mamma mín fyrir allt sem þú kenndir mér og gafst mér
í veganesti út í lífið.
Góða nótt kæru vinir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Sterkar hugleiðingar.
4.2.2009 | 08:20
Sporðdreki: Það er svo sem gott og blessað að æfa skrokkinn
og reyna að halda honum í sem bestu formi. Dragðu djúpt
andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
Yes Yes!!! Auðveldara getur það ekki verið, bara að draga
djúpt andann og velta því fyrir sér hvað maður vill gera.
Ekki lengi að því:,, Koma landinu á réttan kjöl, allir hafi
atvinnu, komið því þannig fyrir að sem fæstir þurfi aðstoð,
ekkert einelti sé í gangi í þjóðfélaginu, allir séu jafnir,
sem sagt engin stéttarskipting."
Mundi vilja að allir myndu það að það er ekki sjálfgefið
að eiga peninga og að allir mundu fara vel með.
Mér er hugsað til Gámafólksins,
það á ekki að þurfa að vera þannig hér á landi.
Nú veit ég vel að mér verður ekki að ósk minni því spáin
á bara við mig, þess vegna segi ég.
það verður að kippa fjármálum Samhjálpar í lag og ég skal
ekki trúa því fyrr en á reynir að það verði ekki gert og það
helst í gær.
52% styðja ríkisstjórnina, ekkert einkennilegt við það, flestir
vilja gefa henni tækifæri, humm bíðum og sjáum til.
Eitt sem ég urlast hreinlega yfir það eru uppsagnir þúsunda
manna og þetta fólk þarf að ganga í gegnum andstyggðar ástand
áður en það getur farið á bætur, ekki nenni ég að telja það upp hér
hvaða afleyðingar þetta allt hefur á líf fólks, það vita það allir.
Ráðamenn þessara þjóðar sem eru á traustum grunni fjárhagslega,
sem sagt er alla veganna skulu fjandast til að setja vinnu í gang
landið um kring, vegavinnu brúarvinnu og bara allt það sem tilbúið er
í útboð því það er margt, bara fátt eitt talið upp hér.
Má til með að nefna Obama hann er flottur, viðurkennir mistök
og lofar að þetta komi ekki fyrir aftur.
Það mættu allir taka sér þessi orð til fyrirmyndar.
Hætt þessu tuði í bili, það er hvort sem er engin sem á að hlusta
sem hlustar, enda er ég að þessu til að létta á sjálfri mér.
Eigið góðan dag í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fyrir svefninn.
3.2.2009 | 19:45
Það væri nú hægt að lesa margt fram til að tala um,
en hjó eftir því að það hnykkir í stoðum.
Framsókn ætlar ekki að styðja við það ef afturkallað
verður veiðileyfið á hvalinn blessaðan, þeir kannski sækja
sér einhver atkvæði út á það hver veit?
Kolbrún Umhverfisráðherra strax komin upp á kannt við
Össur, segist ráða því hvort komi Álver komi á bakka eða
ekki, en forsætisráðherra segir Össur lesa rétt í þessi
mál.
Ætla bara rétt að segja að það er komin tími til að standa
við eitthvað af því sem getur skapað okkur vinnu.
Var nú að hugsa um hvaða atvinnuuppbyggingu Kolbrún
hefur í huga til handa Norðurþing.
Hún segir það eigi verða orkufrekur iðnaður, ef hún byrjar
að tala um Ferðamanna-iðnað þá held ég að allir gargi.
Það er verið að vinna hann upp og hann skapar ekki vinnu
á vetratíma.
Landslagið í dag er nú þannig að mínu mati að nauðsynlegt
er að sinna bara því sem kemur öllum til góða,en ekki að vera
að rífast út af málunum.
Nú á að fara að setja næstum allt í gang í brúar og gatnagerðum
og þá í guðana bænum gerið jafnt fyrir alla landshluta.
Góða nótt kæru vinir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Glannaskapur.
3.2.2009 | 15:18
Ekki hefur ísinn verið þykkur finnst hann brast þarna megin
við tjörnina.
En hvaða fíflagangur er þetta eiginlega var ekki hægt að
kanna ísinn því það er ekki búið að vera það mikið frost
að hægt væri að treysta ísnum, hver átti að bera ábyrgð
á að allt væri í lagi?
Vonandi veikjast ekki hestarnir.
![]() |
Ís brotnaði undan hestum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Háalvarlegt mál.
3.2.2009 | 07:57
Að sjálfsögðu fara allir að leita er svona tilkynning berst.
Það er háalvarlegt mál ef einhverjir vanhugsandi bjánar
eru að leika sér, geta þetta hafa verið skemmti-blys?
Já að öllum líkindum, allavega vonum við að engin hafi
verið í vanda.
Það hefur ekki verið neinn kajakræðari á ferð, bara spyr,
en kannski eru engir kajakar í Hvammsfirði.
Svo er annað, þetta geta hafa verið geimskip, gervitungl,
njósnaskip þá önnur en geimskip og hvað annað sem
fyrirfinnst á himninum.
Ég var nú eitthvað að tala um stjörnur um daginn við
barnabörnin mín, þær eru að verða 19 ára, þá sögðu þær:
,, Amma ert þú að meina gervitungl?, nei ég er að meina
stjörnur, amma, við erum oft að skoða himininn og stjörnur
er nú oftast ekki hægt að skoða fyrir gervitunglum þau
gefa frá sér svo mikla birtu að þau skyggja á stjörnurnar."
Já þetta var ég ekki að skilja, en þá vissi ég eigi hvað
voru mörg gerfitungt á lofti og man það heldur ekki núna.
En ég hallast að því að þetta hafi verið geimskip.
Bara mín skoðun.
Eigið góðan dag í dag.
Milla
![]() |
Leitað í Hvammsfirði í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Fyrir svefninn.
2.2.2009 | 20:54
Mundi allt í einu eftir ferðasögu nokkri er ég las komment
hjá vinkonu minni hér áðan.
Það þurfti samt ekki að hjálpa mér sagan er á þessa leið.
Mamma mín var afar veik og var mér tjáð að líklega mundi hún
eigi lifa helgina af. Þar sem ég átti heima á Ísafirði þá var um
tvennt að velja, fara á bílnum suður eða fljúga.
Gísli gat ekki komið með mér svo ég hringdi í Dóru mína sem
þá bjó á Ísafirði, hún var til í að koma með mér í bílnum.
Við lögðum af stað í bítið morguninn eftir í fallegu veðri,og
horfur góðar mig minnir að þetta hafi verið í apríl.
Snjórinn lék sér í sólinni í fjöllunum og stoppuðum við oft til að
teiga úr okkur og fá okkur að borða.
Nú ég lagði á Steingrímsfjarðarheiðina á fullu gasi, en svo var
eitthvað að fyrir framan mig og við ókum inn í snjódrífu sá
lítinn bíl stopp taldi hann vera í vandræðum og ætlaði að stoppa
fyrir framan hann, en nei nei hann var bara stopp vegna
sendiferðabíls sem var stopp á miðjum veginum aðeins ofar.
Ekki vorum við komin upp á hæsta punkt á heiðinni, en svona
næstum.
Ég stoppaði jeppann og lét hann ganga, þarna var komin svo
mikil hríð að maður sá ekki út úr augum hvað þá að maður gæti
snúið við til að bíða aðeins neðar.
Það er bankað í rúðuna hjá mér, maður spyr hvort ég eigi skóreim
eða mjótt band, það átti ég ekki var bara á mínum klossum,
spurði samt manninn hvað hann ætlaði að gera við skóreim?
jú hann ætlaði að reyna að opna bílinn með henni hann nefnilega
læsti sig út úr bílnum.
Ég konan missti hökuna í undrun fyrst að læsa sig út úr bílnum og
svo að halda að skóreim gæti losað upp læsinguna, fyrir utan það að
maðurinn átti aldrei að stoppa á miðjum veginum, átti að aka til hliðar.
Eftir langa mæðu kom vegagerðin ýtti sendibílnum út af veginum
svo við kæmust leiðar okkar.
Hefði kona lent í þessu þá vitum við alveg hvað hefði verið sagt.
Er til Hólmavíkur kom fengu allir sér að borða og smáhvíld eftir þetta.
Annar þurrkumótorinn hjá mér var farinn og það var ekki hægt að laga
það á Hólmavík, en sem betur fór var það farþega-megin.
Við hittum svo Millu mína á Brú hún ætlaði einnig að kveðja ömmu sína
svo alvarlegt var þetta talið.
Við komum inn á boggann um 9 leitið um kvöldið þá var ég margbúin
að hringja og fylgjast með.
Mamma var ósköp slöpp er við komum, en hresstist öll við og spjallaði
heilmikið við okkur.Daginn eftir er við komum var mín komin í föt og
fór með okkur fram á setustofu, læknirinn kom þangað sem við Dóra
þekktum frá Ísafirði og spurði þá mamma hvort hún gæti ekki bara farið
heim? nei það var nú ekki leyft fyrst þurfti ýmislegt að stilla af.
Það var nefnilega svoleiðis að hún einhvera-hluta vegna var að taka 34
pillur á dag, allt vegna athugunarleysis læknanna.
það var hægt að minka töflurnar um helming til að byrja með og mín
fór að borða og bað endalaust um roost beef samlokur.
þetta gerðist árið 2003 og mamma mín er ennþá lifandi.
Góða nótt kæru vinir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Alvel frábært og bráðnauðsynlegt.
2.2.2009 | 09:56

Kristján Sturluson , framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands.
//Rauði krossinn opnar miðstöð fyrir fólk í erfiðleikum.
Miðstöð, þar sem aðstoð verður veitt í samræmi við neyðarvarnaskipulag Rauða krossins, verður sett á laggirnar á næstu vikum af Rauða krossinum á Íslandi til að bregðast við þörf sem hefur skapast í samfélaginu í kjölfar efnahagsástandsins.
Boðið verður upp á sálrænan stuðning, ráðgjöf og námskeið til að takast á við breyttar aðstæður fólks í landinu. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi Rauða krossins í gærkvöldi.
Rauði krossinn flýtti einnig árlegum formannafundi sínum um tvo mánuði til að sameina viðbrögð allra 50 deilda félagsins vegna efnahagsástandsins. Á fundinum sem lauk fyrir stundu var samþykkt eftirfarandi yfirlýsing:
Yfir samfélaginu hvílir skuggi alvarlegustu efnahagskreppu sem þjóðin hefur staðið frammi fyrir um áratugaskeið eða í meira en hálfa öld . Afleiðingar hennar eru ekki með öllu fyrirséðar en þó er ljóst að fjöldi einstaklinga og fjölskyldna standa á tímamótum, horfa fram á atvinnumissi og erfiðleika. Þörfin fyrir framlag Rauða kross Íslands hefur sjaldan verið meiri
Það er rétt og þykir mér frábært að lesa hvað þeir ætli
að gera fyrir fólkið okkar sem býr við neyð og það eru margir
og þeim á eftir að fjölga.
Rauði krossinn er viðbragðsaðili í neyð og hefur byggt upp kerfi þar að lútandi, veitt fjöldahjálp og sálrænan stuðning. Félagið mun við þessar aðstæður stíga fram og veita fólki aðstoð til að takast á við breyttar aðstæður í samfélaginu.
Ætla ég bara að vona að allir þeir sem þurfa á þessari
hjálp að halda, nýti sér hana og telji sér ekki trú um
að það sé skömm að þiggja hjálp.
Ég hef nefnilega heyrt það hjá fólki og einnig heyrt fólk tala
neikvætt um þá sem þiggja hjálp svoleiðis hugsunarháttur
er til skammar.
Fólk veit aldrei hvenær kemur að því.
Mikilvægi þeirrar starfsemi sem nú þegar er sinnt í deildum félagsins á eftir að aukast verulega á næstunni. Starfið er víðfeðmt og fjölbreytt og nær nú þegar til margra hópa sem standa höllum fæti. Sjálfboðaliðar Rauða krossins búa yfir mikilli reynslu sem mikilvægt er að nýta til hins ítrasta við núverandi aðstæður. Deildir félagsins um allt land eru tilbúnar til samstarfs við stjórnvöld og félagasamtök í þessu sambandi og hefur fjórðungur deildanna þegar hafið slíka samvinnu," að því er segir í tilkynningu
Takk fyrir Rauða krossinn og þá sem vinna þar.
Eigið góðan dag og verið bjartsýn.

![]() |
Miðstöð fyrir fólk í erfiðleikum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bara auðvelt!
2.2.2009 | 08:53
Hraðbanka.
Þetta er nú ekki í fyrsta sinn.
En væri ekki snjallt að tengja þá við Seqúritas?
![]() |
Grunaðir hraðbankaþjófar handteknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fyrir svefninn.
1.2.2009 | 20:39
Spennufall eða hvað á maður að kalla það, þó ég hafi
ekki þóst fylgjast með því sem var að gerast í landi voru
eða ekki svo mikið, þá er ég bara alveg tóm núna, af hverju?
Auðvitað fylgist ég með og hafði skoðanir á öllum málum.
Hvort þær voru viturlegar eða ekki þá sakna ég þeirra því
nú þarf ég að skipta um gír ef þið skiljið hvað ég meina?
Jæja skítt með það maður er nú ekki svo lengi að koma sér
í annan gír, eða hvað?
Nú gef ég þessari ríkisstjórn tækifæri, en ég mun að sjálfsögðu
fylgjast með, ekki það að ég hafi eitthvað að segja, nei nei,
en þið vitið að ekkert má koma manni á óvart þegar maður
tekur ákvörðun um að treysta.
Kannski er ég að taka ranga ákvörðun, bara veit það ekki strax.
**********************************
Þorravísur
Mörgum reynist þráin þung
að þorrans njóta kosta.
Sæðisfullan súran pung
sjúga menn af losta.
Bringukolla á borðið set
brosir þá minn kviður.
Reykt og saltað rolluket
rennur þangað niður.
þessi er eftir hana Ósk
Góða nótt kæru vinir vona að þið séuð
ekki eins tóm og ég er



Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það verður að gefa tækifæri.
1.2.2009 | 17:12
Er það ekki annars? Ég er bara ánægð með hana Jóhönnu
sem Forsætisráðherra þó ég sé ekki hrifin að þessari stjórn
er ég staðráðin í því að gefa þeim tækifæri, sko ég meina
tækifæri. Ráðherraskipan, hvað getur maður svo sem sagt,
það verður að koma í ljós hversu fólk er megnugt.
Óska Katrínu til hamingju með afmælið og menntamálin,
treysti henni bara vel fyrir þeim, af hverju, jú ég tel að hún
muni leita sér aðstoðar um það sem hún ekki veit, hún
ganar ekki að hlutunum.
Nenni ekki að telja upp meira núna, læt bara heyra í mér eftir
hendinni.
Svo er bara að treyst, vona og vera bjartsýnn því ef við erum
neikvæð þá gerist ekkert gott.
Gangi okkur öllum vel.
![]() |
Slá skjaldborg um heimilin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)