Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

GETUR ÞETTA VERIÐ; ,,SATT":

Hef nú ekki lesið siðlausara. hélt að sambýli væru
byggð og gerð úr garði þannig að fólk gæti bara flutt
inn, og notið þess  lokksins að vera komin í sitt eigið
húsnæði, það ætti ekki að þurfa að byrja á því að kaupa
heimilistæki sem það hefur ekki efni á.

120 þúsund krónur á mánuði, af því þarf að borga húsaleigu,
lyf, föt og mat svo eitthvað sé nefnt.
Það segir sig sjálft að það er ekkert eftir.

Talið er að einstaklingur þurfi að hafa 260 þúsund á mánuði
til að lifa mannsæmandi lífi, það vantar mikið upp á það.

Það er til skammar hvernig farið er með aumingja-stéttirnar
eins og við höfum verið sögð tilheyra,
af mörgum ráðamönnum þessa lands, Þ.e.a.s.
allir sem þiggja lífeyrir.


mbl.is Fötluðum á sambýli gert að borga heimilistækin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

                      TÖFRAMÁTTUR  RÚNANNA.

Orðið rún merkir leyndardómur og hefur alltaf staðið í
tengslum við eitthvað dularfullt, óþekkt eða jafnvel
yfirnáttúrulegt.
Samkvæmt norrænni goðafræði þyrsti Óðinn, æðsti guðinn,
alltaf í meiri þekkingu og visku.
Þekkt er hvernig hann fórnaði öðru auganu fyrir sopa úr
Mímisbrunni, en vatnið í honum átti að veita mikla visku.

Önnur saga segir frá því að Óðinn hafi látið hengja sig í
heimstréð Yggdrasil, þar sem hann hékk í níu daga og
níu nætur. Í staðin öðlaðist hann þekkingu á rúnunum.

Síðan var það Heimdallur, vörður Ásanna,
sem átti að hafa kennt mönnunum rúnirnar.
Þar sem fólk trúði því að rúnirnar væru frá Óðni komnar
bar það mikla virðingu fyrir þeim og töldu að þær væru
guðlegar. Margir vilja því meina að rúnirnar hafi ekki aðeins
verið notaðar sem ritmál heldur einnig til að spá inn í framtíðina,
sem verndartákn eða til að kasta göldrum.

Í fornsögum er að finna óljósar lýsingar af slíkum gjörningum
þar sem fjölkunnugt fólk notar einhver tákn við spádóma og galdra.

Í Egils sögu Skallagrímssonar segir t.d. af því er stúlka veikist
vegna þess að ristar voru rangar rúnir og Egill kveður þá:
,,Skalat maður  rúnir rista nema ráða vel kunni.
Það verður mörgum manni er um myrkvan staf villist".

Í þessum sögum er sagt ég hef ykkur frá undanfarin tvö kvöld,
er hinsvegar ekki ljóst hvort um sé að ræða Fuþark rúnirnar eða
annarskonar rúnir t.d. bandrúnir.

                                        Góða nótt.Sleeping


Það er svo gaman að vera saman.

Er það ekki annars?, bara að segja ykkur smá,
vaknaði kl 6 í morgun, fékk mér morgunmat sem er
nú hjá mér bara tekex/osti til hliðar, meðulin, og síðan
hvað haldið þið?,
Jú rétt svar hjá ykkur enda kom ekkert annað til greina
en fara í tölvuna, á meðan fjandans meðulin
(sem ég kaupi fyrir stórpening) eru að virka, ekki get ég
lifað án þeirra, segja þeir.
Allt gekk sinn vanagang, sturta, blástur, snyrting ekki fer
maður í  sjúkraþjálfun á þessTounge maður gæti nú hitt einhverja
sæta strákaBlush og gjóað augunum svo engillinn sæi ekki til.Whistling

þegar þjálfun lauk fór ég í blóðprufu sem er nú
ekki í frásögu færandi nema að því að ég var að gera þetta fyrir
Kára Stefáns og hjartalækninn minn hann Davíð Arnar,
sko hefði viljað hafa þá þarna bara flottir strákar þeir tveir,
en þeir hafa nú bara áhuga á blóði mínu til rannsóknar,
í sambandi við sjúkdóm minn, og ef ég get orðið að liði í þessum
rannsóknum þá er það hið besta mál, geri allt fyrir þessar elskur.

Komum heim fengum okkur kaffi og brauð, síðan í búðina að versla
skellti í fullann ofn af rúgbrauði, (fékk hjálp frá englinum)
var búin í gær að undirbúa appelsínu og engifer marmilaði og
sauð það í morgun, krukkurnar bíða eftir því að fá í sig
eitthvað gummilade, á morgun ætla ég að búa til samskonar
bara með chilli.
fengum okkur áðan salatdisk með hreindýrabollum út í, æði.

Og núna var afi að fara til að sækja ljósið á leikskólann,
Milla mín verður eitthvað upptekin frameftir degi.
Eins og ég segi það er svo gaman að vera saman,
hefði sungið þetta fyrir ykkur, en hætti við er ég mundi eftir
fréttinni af Borgarstjóranum sem ætlaði að syngja var það ekki í
einhverju partíi, Æ, las þetta einhversstaðar.
Hafið það gott elskurnar mínar. InLoveMilla.


Bendi ykkur á að lesa þetta.

Þeir sem vilja vita sannleikann um lítilmótlega
hegðun fólks gagnvart börnum í áratugi, farið
endilega inn á síðuna hans Sveins Inga Lýðssonar.
og lesið um drengin sem barnaverndarnefnd þeirra
tíma eyðilagði, að mínu mati.
Slóðin er http://sveinni.blog.is

Þau hefðu getað bjargað þessu lífi.

Fyrirgefðu Sveinn Ingi ég tók mér bessaleyfi og gaf
linkin inn á síðuna þína.

Ég tel að sem flestir eigi að lesa um svona mál
sérlega þeir sem eru ennþá með fordóma.

                 Góðar stundir.


Ekkert nýtt að heyra um þetta, EN!

Nýtt er það ekki að heyra um þetta, en hver jók umferð
bílana á vegum landsins?, það voru flutningafélögin.
Eins og til dæmis Eimskip og Samskip, þeir eiga þetta allt.
Allavega núorðið að undanskildum nokkrum bílum.

Hvað er fólk að loka líka eyrunum fyrir því að vegir landsins
eru ekki byggðir upp fyrir þessa umferð og var það vitað mál
og talað um áður en þessi mikla umferð hófst.

Umferð þessi er nauðsynleg, hvernig á annars landsbyggðin
að fá til sín vörur.
Ég tel að ráðamenn ættu að skammast til að leysa úr þessum
vandamálum, bæði með vegina og að bílstjórum sé gert
kleift að aka um landið án þess að fara á hausinn,
allavega þeir fáu sem eiga bílana sína sjálfir.

Eimskip og Samskip hækka bara flutningskostnaðinn sem
skiljanlegt er ekki geta þeir rekið fyrirtæki með undirballans.
                                     Góðar stundir.
mbl.is Flutningabíll slítur vegum á við 9 þúsund fólksbíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Held áfram með samantekt þeirra systra á Laugum.
Þessar stelpur eru nefnilega tvennir tvíburar, gaman að því.

                                Galdra Loftur.

það ættu flest allir að kannast við Galdra-loft enda er hann víðfrægur
í þjóðsögum og bókmenntum. Hann var sá sem reyndi að særa
Gottskálk hins grimma upp úr kirkjugólfinu til að eignast Rauðskinnu
hans. Loftur Þorsteinsson hét drengur sem átti eftir að verða frægur
um gervalt Ísland fyrir galdrakunnáttu sína.
Ungur að árum dvaldist hann hjá galdramanninum Þormóði
í Gvendseyjum á Breiðafirði.
Árið 1720 þá hóf hann nám í Lærðaskólanum að Hólum þar sem hann
og nokkrir aðrir nemendur stunduðu kukl í laumi.

Hann fór eitt sinn heim um jólin til fjölskyldu sinnar og hitti þá mann
sem hét Þorleifur Skaftason og átti hann galdrabókina Gráskinnu.
Fór Loftur ekki frá honum fyrr en hann hafði lært allt sem stóð í
Gráskinnu. leitaði hann til allra þá fjölkunnugu manna sem hann fann
og lærði af þeim þar til hann var orðin lærðastur þeirra allra.

Er hann snéri aftur til Hóla þá var hann orðin all forn í skapi og ill
svo flest allir skólabræður hans voru hræddir við hann.
Tók hann sig á tal við dreng nokkurn sem hann vissi að væri
hugaður og tók hann með sér í kirkjuna um kvöldið og lét hann
standa uppi  í kirkjuturninum og vera tilbúin að hringja kirkjuklukkunum
þegar hann gæfi honum merki.
Særði Loftur hvern biskup og prest á fætur öðrum þangað til að
Gottskálk sjálfur kom upp úr kirkjugólfinu með rauða bók undir hendinni.
Særði hann nú sem mest hann mætti svo að Gottskálk mundi ekki
hverfa niður í gólfið aftur vegna þess að hann var sérstaklega
kraftmikill. Brátt rétti Gottskálk honum bókina þótt að það væri honum
þvert um geð og bjóst Loftur við að taka við henni.
Hann var ekki komin lengra en hann var búin að taka um eitt hornið
á bókinni þegar drengurinn hringir klukkunum og Gottskálk og hinir
prestarnir sökkva aftur niður í gólfið með bókina með sér.

Var sagt að eftir þetta hafi Loftur verið sturlaður og ekki mátti hann
vera einn í herbergi og varð hann alltaf að hafa ljós á sér í myrkri.
Ekki lifði hann lengi eftir þetta en á sunnudag á miðföstu þá rann
upp dauðadagur hans þá leitaði hann til prests sem hann hafði leitað
hælis hjá og bað hann að láta sig hafa guðlegt andlát.
Gerði prestur það sem hann bað um en þurfti að sinna andláti
annars manns fyrr um daginn svo að Loftur þurfti að bíða.

Er prestur var farinn þá steig Loftur upp úr rekkju sinni og gekk út.
fann hann þar bónda sem hafði verið að róa og biður hann um bátinn hans.
Rær nú Loftur út á miðin og er ekki komin langt fyrr en bóndi sér
risastóra hönd koma upp úr hafinu og hrifsa Loft niður í hafið.
Ekki hefur spurst til hans eftir það.

                                          Góða nótt.Sleeping


Er eiginlega forviða.

Mun halda áfram með þetta sorglega mál,  sit
hér við tölvuna mína, og er alveg forviða,
segir að hann sé hlýr maður sem faðmi fólk að sér og smelli
á það kossi.
Er maðurinn að hæðast að greind okkar almennings eða hvað?,
menn faðma ekki að sér fólk og smellir á það kossi, sér í lagi
ekki við ungar stúlkur sem eru einar með honum í kirkjunni.
Svoleiðis menn eru í hættulegu siðlausum leik bara til að þjóna
sjálfum sér.

Menn faðma að sér fólk í sorg til að hugga það, en kyssir það ekki.

Sagt var við mig í gær, þetta er nú prestur,
og það ber að taka tillit til þess, ég sagði: ,, En ef þetta hefði verið
einhver plebbi sem engin kannaðist við, hvað hefðir þú sagt þá.?
                              Gott gengi inn í daginn ykkar.


mbl.is Meint áreitni stóð í mörg ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

              Gottskálk Nikulásson biskup

Einn mesti galdramaður sem uppi hefur verið,
skrifaði Rauðskinnu sem er ein þekktasta galdrabók sem
uppi hefur verið. Ríkti hann á Hólum frá árunum 1494-1520.
Gottskálk Nikulásson biskup var af virtri norskri aðalsætt
sem kom frá Björgvin í Noregi og hefði hann fengið biskupsstólinn
af frænda sínum og föðurbróðir Ólafi Rögnvaldssyni þegar hann lést
árið 1494. Foreldrar hans voru þau Nikulás Rögnvaldsson og
Herborg Bárðardóttir.
þrátt fyrir að hann hafði verið prestur var hann nokkuð lauslátur.
hans fyrsta barn hét kristin og var hún dóttir Valborgar Jónsdóttur.
Hans annað barn fæddist árið sem hann hóf störf sem biskup
á Hólum árið 1494 og var það sonur hans og Guðrúnar Eiríksdóttur
var það barn skýrt Oddur-- Oddur Gottskálksson var lögmaður mikill
og síðar biskup á Hólum.
Þótti hann Gottskálksson harður og röggsamur biskup og átti það til
að vera grimmur og fékk viðurnefnið hinn grimmi útaf því.
Þess vegna var hann öllum svo skæður í málum,
að hann gat glapið huga og minni og komið þeim til að gjöra það,
er hann gat gefið þeim sakir á.
Sankaði hann undir sig, og kirkjuna, allt að hundrað jörðum
á þeim árum sem hann sat biskupsstól á Hólum.
Sumar voru samt fengnar með svikum og göldrum.
Gottskálk biskup grimmi var hinn mesti galdramaður á seinni tíð
en hann tók aftur upp svartagaldur á Íslandi,
er ekki hafði tíðkast síðan í heiðni.
Einnig skráði hann galdrabók, er kallast Rauðskinna.
hann átti eiginlega allt sitt líf í deilum við mann nokkurn
Jón Sigmundsson að nafni sem var auðugur lögmaður.
Deilan var um það að Jón hafði án leyfis páfa eða kirkju gift sig
frænku sinni. Einnig var það vegna þess að hann átti margar
auðugar jarðir sem Gottskálk vildi ólmur ná undir kirkjuna.
Tókst honum það á endanum en sonur Jóns náði jörðunum
aftur í sínar hendur eftir að æviskeiði Gottskálks hafði lokið.
Lést Gottskálk hinn grimmi 8. desember árið 1520.
og lét eftir sig nær allar þær jarðir sem hann hafði sankað
undir sig á þeim árum sem hann hafði verið biskup og gaf
ættingjum sínum.
Rauðskinnu-- galdrabók sína gaf hann samt engum og tók
hana með sér í gröfina.
Kenndi hann samt engum kunnáttu sína á svartagöldrum.
Var hann grafinn undir kirkjugólfinu á Hólum eins og gert
var við alla biskupa á hans tíð.
Tók Jón Arason við honum Gottskálki árið 1520.
                 Tóku saman.

Sigrún Lea, Guðrún Emilía og Unnur Svana, Kristín Eva.
Nemendur á Laugum í Reykjadal.

                                 Góða nótt.Sleeping


Knútur prins konungur Íslands.

Fyrir nokkrum dögum birti ,,Ekstrabladet" enn eina
,, fræðslugrein" sína um  Ísland og íslensk málefni.
Er það gert í tilefni þess, að konungur og drottning og
Knútur prins voru í þann veginn að koma heim úr
Íslandsferðinni. Blaðið segir:
,, Árið 1940 er sambandssáttmálinn milli Danmerkur og Íslands
útrunninn. Upp á síðkastið hefur verið á Íslandi  rekinn allmikill
fyrir því í kyrrþey, að Ísland slíti þá öllu sambandi við Danmörku,
og taki sér sinn eigin konung.
En til að sýna Danmörku, hinu gamla móðurlandi, vissa samúð,
er helzt hugsað um danskan prins.
Og sá prins er auðvitað Knútur, sonur núverandi konungs,
enda á hann annars ekki von á neinu hásæti.
þegar því Knútur prins ásamt frú sinni, hefur verið með
konungshjónunum á Íslandi í sumar,
er orsökin skiljanleg ósk hjá vissum flokki manna um að hin
ungu hjón skuli kynnt íbúum þess ríkis,
sem ef til vill kýs þau til konungs og drottningar yfir
Íslandi 1940."

Ja hérna hvað hefðum við svo sem við konung að gera
er við vorum að losa okkur undan oki annars lands.
Hugsið ykkur sýndarmennskuna, koma til Íslands með
þann sem þau ætluðu sem konung yfir landinu,
það átti svo sem að hafa ítök áfram.

Þetta er nú helst ritað til þín Hallgerður mín,
taldi þig hafa gaman af því að lesa þetta.

                          Knús á alla
                             Milla.


Er heimurinn að brjálast, eða hvað?.

Þessi frétt er viðurstyggileg, hvað er að gerast hjá
fólki sem hagar sér svona, hvar eru tilfinningarnar,
siðferðið, ástin og kærleikurinn,
það getur ekki verið að neitt af þessu sé til, jú kannski
hjá öllum nema þeim sem gerði þetta,
þá er um ofbeldi og kúgun að ræða á móðurina, eða hvað?.

Væri fróðlegt að vita hvort þeir sem framið hafa þessa
glæpi séu á líkum aldri eða hvort þeir hafi sama bakgrunn.
Hvað veldur svona svívirðilegu athæfi.
mbl.is Barnslík fundust í frysti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband