Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Fyrir svefninn.

Kæru bloggvinir þið verðið að hafa biðlund með mér, ég
hef ekki verið svo mikið að kommenta hjá ykkur, en það
stendur til bóta vonandi.
Hef haft svo mikið að gera,
í málum sem kemur sálartetrinu í uppnám.

Í dag fórum við gamla settið ásamt Dóru minni og englunum
mínum, inn á Akureyri.
Þær voru að fara til að skemmta sér fara í leikhús og í búðir.

Nú það var einnig farið með Neró litla sem var orðin nokkuð
veikur í eyranu sínu, hann er með ofnæmi fyrir öllum mat nema
spes innfluttu fóðri og má hann bara fá fjórar matartegundir
sem betur fer er hann hrifin af þeim mat og það er til nammi
í þeim tegundum.

Hann var svæfður og þá kom í ljós að hljóðhimnan er sprungin
eftir sýkingu, en ofnæmið kemur fram á eyranu hans.
Nú er hann kominn á magameðal til að þola pensillínið sem hann
þarf að taka í 25 daga ásamt verkjalyfi í 40 daga og krem í eyrað.
Hann er ennþá hálfruglaður eftir þetta allt saman, en vonandi
verður þetta til friðs í nokkurn tíma eftir aðgerðina í dag.

Þetta er nú ekkert, sko ég vaknaði klukkan 6 í morgun fór í
þjálfun klukkan 8 síðan brunuðu við á Eyrina, náðum náttúrlega
fyrst í Dóru fram í Lauga, en þær voru hér englarnir mínir.
Fórum beint með Neró upp á spítala skildum hann eftir er hann
var sofnaður.
Sko þá spurði ég í sakleysi mínu hvort við ættum ekki að fara
og fá okkur kaffi og brauð, nei Dóra var ekki svöng og engin
vissi hvað hann vildi, svo það var haldið í búðir og þegar klukkan
var orðin 12 þá varð ég að taka meðulin mín og sendi Gísla minn
inn í einhverja sjoppubúllu til að kaupa pulsu því ekki má ég taka
fjandann án þess að borða áður.
Haldið þið að einhver skilji það Ó nei, engin vorkennir mérCryingW00t
Það skal nú bara athuga að ég er bílstjórinnWizard

Sko þegar búið var að versla þá var farið að ná í Neró og rennt
heim til Ernu þessarar elsku, ég sagðist nú vera fegin að vera
komin til hennar því þá fengi ég gott kaffi, og það kom sko og
hlaðborð af brauði og allskonar áleggi,ég gæti lifað á brauðmeti.

Það er svo yndislegt að koma til hennar Ernu betri vinkona er
ekki til, enda þær Dóra búnar að vera vinkonur í, ÆI hvað sagði
ég einhvern tímann? 50 ár nei þær eru nú víst ekki orðnar svo
gamlar þessar elskur.
Munið að ég elska ykkur.InLove
Þegar við komum heim um fimm leitið þá spurði ég mína elsku
hvað við ættum að borða, hvort það væri ekki upplagt að fá sér
skyr og brauð, nei honum langaði í pulsu, komst á bragðið á
eyrinni.
Það voru keyptar pulsur og brauð og þetta er bara óþveri.
Ætla að fá mér mitt brauð áður en ég fer að sofa, sem verður
mjög fljótt.

Góða nótt kæru vinir HeartSleepingHeart


Hugleyðing lífsins

mail_google_comengill.gif

Leifi þessum engli að birtast ykkur og blessa alla þá sem
eiga um sárt að binda.
Sérstaklega sendi ég hann til góðra vinkonu minnar, sem
lífið er búið er að leika grátt.
Megi hið góða í lífinu vera með okkur öllum.
Milla.


Fyrir svefninn.

Ef viðrar fyrir okkur þá förum við Til Akureyrar í bítið í
fyrramálið svo við verðum komin með Neró inn á hundaspítala
helst klukkan tíu, en við verðum náttúrlega að bíða eftir mokstri,
söltun, og söndum eða hvað þetta er sem þeir úða yfir vegina.

Englarnir mínir koma á eftir, þær og allir nemendur framhalds-
skólans á Laugum eru hér í boði framhaldssskólans hér, eitthvað
Íþróttamót, síðan út að borða og í leikhús.
Þær munu svo gista hér heima í nótt, við sækjum svo mömmu
þeirra í fyrramálið síðan brunað á Eyrina.

Mæðgur eru að fara í leikhús annað kvöld með Ernu, munu þær
gista þar og það verður nú aldeilis fjör.
Það er svo hittingur á laugardaginn, förum við öll á hann.
Munum fá okkur marengstertu og gott kaffi.

En áður en við förum upp í kaffi Karólínu ætla ég að heimsækja
Norðurport, kaupa mér kleinur, soðið brauð og aðrar kræsingar
sem þar eru á boðstólnum.

Og að því að það á að vera komið vor í loft mun ég birta eitt
yndislegt eftir Sigurð Jónsson frá Brún.


Í Fnjóskadal.

Hvar segir blærinn blíðumál
svo blítt sem hér, í laufasal?
Hvar heyrir þú í áraál
slíkt unaðsrómatal?

Hvar sérðu smáan bóndabæ
þér brosa við svo glatt sem hér?
Við aðra grund og út við sæ
þú ekkert þvílíkt sér.

Þú elur, dalur, indæl blóm,
þú elur þrótt og karlmannsdug.
Ég kveð þér þökk með klökkum róm.
--Ég kveð af öllum hug.

Góða nótt HeartSleepingHeart


Hefði getað orðið Sexí gjörningur.

Það getur endað mjög illa að handjárna fólk gegn vilja sínum. //

Handjárnaði sig við eiginmanninn

Kona í Bandaríkjunum handjárnaði sig við sofandi eiginmann sinn í þeim tilgangi að leysa hjónadeilu. Málið endaði hins vegar á versta veg því lögreglan var kölluð á staðinn og var konan handtekinn og ákærð m.a. fyrir líkamsárás.

Je dú da mía, ekki hefur hún verið klók, eða að eiginmaðurinn
hefur verið búin að fá nóg, en sexí hefði þetta getað orðið
hefði hún kunnað á manninn, en trúlega hefur hann verið búin
að finna sér aðra, nei í alvöru ef ekki þá hefði hann bráðnað
fyrir þessu og erjur hefðu gleymst í hita leiksins
Blush

En þegar eiginmaðurinn hringdi í lögregluna brást Sun hin versta við. Hún réðst á manninn og beit hann í handleggina og í búkinn.

Ó ó Æ Æ það hefur verið sárt, en hún átti ekki að bregðast svona
við, heldur bara að nota tæknina, þið vitið.

Lögreglan heyrði öskur og læti þegar hún var fyrir utan heimili hjónanna og hún varð að brjóta sér leið inn í húsið. Að sögn lögreglu hafði konan einnig skipt um lás á svefnherbergishurðinni.

Já já ég veit hún er ekkert smá biluð ræfilstuskan, en hvað
skyldi hann hafa verið búin að  gera henni finnst hún var
orðin svona slæm og örvæntingafull.
Konur verða að skilja að það eru til fleiri menn en þessi eini.

Sun var m.a. ákærð fyrir minniháttar líkamsárás og fyrir að fjötra manninn sinn með ólögmætum hætti. Henni hefur verið sleppt úr haldi, en hún varð að greiða 400 dali í lausnargjald.

Lögreglan í Fairfield segist ekki hafa orðið vitni að öðru eins

Fairfield hlýtur að vera paton place finnst svona lagað hefur
aldrei gerst þar, eða þeir ekki orðið vitni að því.

mbl.is Handjárnaði sig við eiginmanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

þetta á ekki að gerast núna, komið snarvitlaust veður
búið að snjóa í allan dag og nú vindar slíkt að engri
átt nær. Það er að koma apríl og á að koma hér vor,
en nei það er víst páskahretið eftir og vonandi er þetta
það.

Stelpurnar vinkonur mínar voru hjá mér í dag og var það
bara gaman, drukkum kaffi, borðuðum snittubrauð með
rækjusalati og spjölluðum og hér er ekki náunginn
baknagaður á neinn hátt.

Þar sem ég hef alltaf verið unnandi ævintýra þá er mér
tamt að vitna í þau, svo hafa verið lítil börn í kringum mig
í áraraðir svo maður er búin að horfa á nokkrar yndislegar
barnamyndir með þeim og það er bara það skemmtilegasta
sem ég horfi á.
Einnig að kynnast því hvernig þau túlka söguþráðinn.

Sumum finnst þetta voða asnalegt og vorkenni ég því fólki
því það á enga barnsgleði til og þá á það heldur ekki kærleikann
til að miðla börnum og barnabörnum.

Við vorum að skoða gamlar myndir hér í dag og þar komu myndir af
barnabörnum mömmu minnar er þau á öllum aldri voru í hattaleik,
það gerðist einu sinni á ári á gamlárskvöld í afmæli mömmu.
Þá voru teknir fram allir hattar sem gamla átti og síðan var farið í
hattaleik, þau tala ennþá um þetta krakkarnir.

Ekki vera alltaf að banna börnunum, leyfið þeim að njóta sín
á mínum bæ er leikið, sungið, farið í fimleika, dýnur út um allt,
öllu breytt á sófaborðinu og litlu borðunum og það er í lagi
og ef eitthvað brotnar þá bara fer það í tunnuna, þetta var
bara dauður hlutur hvort sem var.


Að hindra börn í útrás gleðinnar er að hindra þau í þroska
og þau fá eigi það sjálfstraust sem þau þurfa í veganesti
út í lífið.

Góða nótt kæru vinir HeartSleepingHeart


Þetta er yndisleg mynd.

20939.jpg

Er hún ekki yndisleg, væri alveg til í að eiga svona gæludýr.
Það væri bara ekki normalt fyrir litla rauðhausinn.

Elke er aðeins fimm daga gömul og nýtur umönnunar starfsfólks
sjúkrahúss Taronga dýragarðsins.
Móðir Elke vildi ekkert með hana hafa eftir að hún fæddist.

Ef maður hugsar alltaf um ungviði þá er maður hamingjusamur.
Allavega er það svoleiðis með mig.


Farið út fyrir rammann.

Vá hann er flottur þessi, ekki dónalegt
að hafa svona ráðagóða menn í
björgunarstörfum.

 


Hver vill ekki vera bjargað af Köngulóarmanninum?

Hver vill ekki vera bjargað af Köngulóarmanninum? HO

// Veröld/Fólk | mbl.is | 24.3.2009 | 08:21

Köngulóarmaður bjargar einhverfum dreng

Tælenskur slökkviliðsmaður brá sér í hlutverk ofurhetju í Bangkok í gær þegar hann klæddi sig upp sem Köngulóarmaðurinn til að ná dauðskelfdum 8 ára gömlum dreng niður af svölum.
Móðir drengsins sagði að hann væri hrifin að ofurhetjum
Svo slökkviliðsmaðurinn brá sér aftur á  slökkvistöðina
til að ná í búning sem hann átti þar.
Þessi maður er bara snillingur.

„Ég sagði honum að Köngulóarmaðurinn væri kominn til að bjarga honum og enginn skrýmsli myndu ráðast á hann. Svo sagði ég honum að ganga rólega til mín því það væri hættulegt að hlaupa," segir slökkviliðsmaðurinn ráðagóði.

Drengurinn stóð strax upp og gekk í fangið á ofurhetjunni, að sögn lögreglu. Somchai segir að hann geymi bæði Köngulóarmannsbúninginn og búning japönsku sjónvarshetjunnar Ultraman í skápnum sínum á slökkvistöðinni til að lífga upp á brunaæfingar í grunnskólum.

Segið svo að það séu ekki einhverjar góðar fréttir til,
við heyrum bara of lítið um þær.

Endilega bendi ég öllum á að það er í lagi og alveg
nauðsynlegt að fara út fyrir rammann.

Þessi rammi sem ég tala um er það sem aðrir búa
til fyrir fólk að fara eftir í einu og öllu.
Það má sko og er allt í lagi að fara í útrás úr rammanum
og leiða angana þangað sem þörf er á.

Eigið góðan dag elskurnar
Heart

 


mbl.is Köngulóarmaður bjargar einhverfum dreng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Þetta er nú meiri fjandans pestin, maður heldur að hressan
sé að koma, en nei ekki aldeilis, sefur hálfan daginn, vakir
frameftir að vonum, öfugsnúið er það mjög.
Fórum aðeins yfir húsið í morgun, síðan að taka bensín ég með
því það var einhverpúki í mér enda fór ég inn á N1 og keypti
langlokur og smá namm sko handa barnabörnunum og líka
okkur. Maður verður nú að svindla svolítið.ToungeWizard

Sofnaði síðan um 12 leitið og svaf til 4 dreif mig fram og við
byrjuðum að elda matinn, það var Bæóný skinka með öllu tilheyrandi
ódýr en óhollur matur.
þær komu svo mæðgur og borðuðu, Milla og ljósin.
Og það var bland í poka í eftirrétt.Whistling

ufos_devas_and_sea_life_66_818115.jpg

Mér finnst þessi mynd alveg yndisleg.
Hún sýnir okkur svo margt.

Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


Það er nú aldeilis munur að vera þekktur.

Hver skildi eiga málverkið, eigi kemur það fram.
Alveg hefði ég viljað það.
Sjáið hvað hún er sæt, gæti alveg setið fyrir í dag
.

410341a.jpg


Tony og Cherie Blair. AP

// Veröld/Fólk | mbl.is | 23.3.2009 | 22:34

Nektarmynd fyrir 99 milljónir

Málverk af nakinni fyrirsætu, Cherie Booth að nafni, er nú til sölu í Browse & Darby galleríinu í Mayfair í Lundúnum og verðmiðinn er 600 þúsund pund, jafnvirði 99 milljóna króna.

Einhverjum gæti þótt þetta hátt verð en á því er skýring, sú að Cherie Booth heitir nú Cherie Blair og er eiginkona Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra Bretlands.

Hvernig ætli snobbliðið bregðist við, örugglega ekki vel, en
ég meina hún er nú ekki sú eina sem hefur unnið fyrir sér
á þennan hátt á námsárunum.

Þetta gerði ég fyrir reyndar heilan hóp sem var í Listaskóla
þar sem ég var við nám, var ekki alveg nakin en næstum.
Fékk pening fyrir og þetta var bara ekkert mál.

En sko munurinn á mér og hinni flottu Cherie er sá að ég
hef aldrei orðið fræg og heldur ekki þeir sem voru að læra
í þessum skóla, ömurlegt, annars hefði ég kannski komist á
spjöld sögunnar.

Eitt veit ég að ég kemst tanna á milli í mörgum munnum
og það er náttúrlega það skemmtilegasta
.

Málverkið, sem nefnist  Striding Nude, Blue Dress var málað fyrir rúmum þremur áratugum legar Cherie var 22 ára námsmaður. Málarinn hét Euan Uglow og var vinur fyrirsætunnar en hann er nú látinn.

Eigið góðan dag.


mbl.is Nektarmynd fyrir 99 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Fór í nudd í morgun, ekki veitti af eftir hækjuna í 3 mánuði.
Ég fæ nudd hjá Björgu minni einu sinni í viku svo er ég hjá
Jóhanni einnig einu sinni í viku.

Pantaði tíma fyrir mig hjá lækninum og var svo heppin að einn
tími var laus í þessari viku, ég hringdi klukkan tíu, svo ásóknin er
mikil.

Var nú hálf tussuleg fram eftir degi eftir nuddið það hefur ekki
verið hreyft við þessu síðan fyrir jól.

Gísli minn sótti Aþenu Marey á leikskólann og var hún hjá okkur
þar til hún fór í fimleik.
Við horfðum á eina mynd saman, Hefðarkettina og á meðan við
horfðum perlaði hún eitt hjarta.
Vorum síðan í mat hjá Millu, hún var með svínalundir sem hún
setti í pottrétt á Indverskan hátt æði.

einu sinni var ég að tala um tískuna og setti inn nokkrar myndir
hér koma fleiri. Þetta eru ballskórnir mínir síðan 1965 eða svo.

100_8123.jpg

100_8124.jpg

Þetta er perlutoppur keyptur hjá Báru bleiku í Austurstræti
mamma átti hann og lét mig hafa hann.
Síðan kemur perluveskið mamma átti það líka.
Þetta eru bara antik hlutir í dag.

100_8126.jpg


Það kemur meira seinna.

Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband