Samantekt
21.8.2009 | 21:18
Eins og allir vita sem hér lesa, þá elska ég að hafa barnabörnin í kringum mig, ég sagði frá því í fyrradag að litla ljósið mundi sofa og ætlaði hún að sofa í 3 nætur og pakkaði niður eftir því.
Mamma hennar og stóra systir komu í gærkveldi í mat, hún var beðin um að pakka því þær væru að fara heim, en nei hún var ekki að fara heim, svo hún svaf aðra nótt og ekki hefur maður nú mikið fyrir þessum engli, maður les bara fyrir hana 2 bækur og þá erum við báðar sofnaðar.
Amma læddist fram til að ná í myndavélina, afi með einn bangsa
og hún með annan, eins gott að rúmið er stórt.
Afi leit upp er ég tók fyrri myndina, en hún vaknaði ekki
fyrr en löngu seinna.
Neró að passa hundinn hennar á meðan hún borðaði morgunmat.
Aþena Marey að borða morgunmat.
Sultan kraumar í pottunum, núna er hún komin í krukkur og
upp í hillu í búrinu, en Gísli minn á nú heiðurinn að þeirri vinnu.
Nú við vorum boðin í mat hjá Millu og Ingimar í kvöld og að sjálfsögðu
fórum við sátt heim eftir Pitsurnar, sem voru æði að vanda.
Við Milla fórum aðeins í tölvuna hún var að kenna mér að vinna gamlar
myndir í tölvunni, hlakka til að byrja í þeirri vinnu.
Góða nótt ljúflingar
Milla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bara ef þið þorið að viðurkenna
20.8.2009 | 14:38
Þá lagast allt, því sjáið, þið sem eruð búin að vera gift í mörg ár og sitjið föst í einhverri leiðindar-rútínu, verðið að viðurkenna að breytinga er þörf, ef þið ekki sjáið það þá eruð þið meira en lítið meðvirk já og þorið ekki að viðurkenna eða tala um að breyta þessu hundleiðinlega lífi sem þið lifið.
Margir kunna að njóta lífsins eins og kallað er, en á hvaða hátt og fullnægir það þörfum beggja para.
Það er á tæru að svo er ekki.
Egóista á báða bóga eru svo sannarlega til, en það gengur ekki til lengdar, það á að taka tillit til langana og þó svo að annar hvor aðilinn sé ekki í stuði og hvað er það eiginlega að vera í stuði, drepið mig ekki alveg, maður er náttúrlega ekki í stuði er hinn aðilinn er í sjálfsvorkunnarástandi eða hvað sem hver vill kalla það.
Maður er bara alltaf í stuði ef réttu strokurnar eru viðhafðar.
Tökum konu sem er á hápunkti löngunar í kynlíf, fyrir þá sem ekki vita þá er það allavega einu sinni í mánuð sem sú hvöt er svo sterk að ef ekki annað býðst þá er farið með karlinn inn á bað, en ef karlinn er farinn að daprast, er ekki á víagra sinnir ekki mjálminu í konunni þá endar það með að konan fær sér gervi eða bara flottan elskhuga.
Og það er sko ekki nóg að hoppa smá og búið basta, nei maður verður að leika, leika, og leika sér þar til engin stjórn er á hvar maður er eða hvernig maður gerir, þetta besta sem til er.
Munið það er bara að koma fram og þora að viðurkenna að maður vilji meira og hvernig.
Endilega ekki hneykslast, því þetta eru yndislegustu tilfinningar sem til eru.
Bara að þora að viðurkenna það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Er auðvelt að komast á svona lista?
20.8.2009 | 08:34
Ekki ætla ég að setja út á Jóhönnu Sigurðardóttur sem slíka, en vita þessir menn hvar hún er stödd í framkvæmdum á þeim málum sem hún komst á listann fyrir
Þeir horfa bara á hvaða samkomulag og samninga hún er búin að skrifa undir, leita sér ekki upplýsinga um framvindu þeirra mála.
Hvar er atvinnuuppbyggingin, hjálpin til heimilanna og svo margt annað sem ekki er, allavega komið enn. Jóhanna er breytt, stjórnar harðri hendi öllu því sem á að vera eftir hennar höfði og stendur ekki við það sem hún sagði í kosningaloforðum sínu.
Góðar stundir.
![]() |
Jóhanna meðal áhrifamestu kvenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Samtíningur
19.8.2009 | 20:06
Alltaf er eitthvað að gerast hjá manni og svo eru það minningarnar sem dúkka upp, einnig það sem er alltaf í huga mans, það eru að sjálfsögðu börnin og barnabörnin og bara hið daglega amstur, sem er svo gleðilegt. Stundum eru að koma upp á atburðir sem koma tárunum fram hjá manni eins og þegar maður byrjar að missa sína og vinir missa börnin sín og maka.
Yfir 50 ár er ég búin að upplifa slíka atburði, svo maður ætti að vera orðin skólaður, en nei það venst aldrei er dauðann ber að höndum og allir vita sem hafa misst að það er ekki auðvelt að gleyma, en sársaukinn dofnar með tímanum.
Man svo vel er pabbi minn dó, það gerðist í júlí ég grét á spítalanum og svo ekki meir fyrr en ég fór í garðinn fyrir mömmu á aðfangadagsmorgun, til að tendra ljósin, ég lærði fljótlega að minnast hans með gleði og þakklæti fyrir það sem hann hafði kennt mér.
Það eru tvö ár síðan Ragga mín, missti Himma sinn, hann er reyndar okkar margra núna því þessi fallegi drengur dró mann til sín með sínu blíðlega og góða andliti og ég mun aldrei gleyma myndinni af honum, hann er bara með okkur og takk fyrir það.
Nú við fórum í mat til Millu og þá spurði Litla ljósið hvort hún mætti sofa, jú það var auðfengið, hún ætlar að vera í 3 daga sko. leikskólinn er lokaður svo þá er gott að koma til ömmu og ömmu og afa finnst gott að hafa hana.
Bara að láta ykkur vita að hér er verið að sulta rabbbara, átti ég 10 kíló í kistunni tókum það alt, og þá er nú farið að koma pláss fyrir haustmatinn, frystiskápurinn er nefnilega bara notaður fyrir soðin mat og brauð.
Góða nóttina ljúflingar.
Milla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Auðvitað á ríkið að kaupa.
19.8.2009 | 07:53
Skuldar ekki OR ríkinu einhverja peninga , nei ég meina bara þá gæti það farið upp í kaupverðið, við eigum ekki svo mikla peninga, sko ríkið. þeir gera svo mikið að því að afskrifa þó eigi verði almúginn var við það.
Húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur, er það ekki glæsilegt
hvað ætli hafi kostað að byggja þessa ísköldu ljótu byggingu,
Sem á að vera tákn fyrir Orkuveitu Reykjavíkur, Jæja hvað með það
þó ég telji þetta vera bruðl, er ég örugglega ein um að finnast það.
Kaupa kaupa, því auðlindirnar eiga ekki að fara úr landi, mikið rétt,
en ráðum við eitthvað við það eftir þetta?
![]() |
Vill fund með fjármálaráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Frábær ferð.
18.8.2009 | 22:09
Er við komum á Eyrina fórum við beint upp á dýraspítala, það þurfti að kaupa mat handa prinsinum og að sjálfsögðu svolítið nammi, hundaól fékk hann nýja um hálsinn, blá hún er með demöntum, dugar nú ekkert minna en það handa svona prins.
Þaðan var farið í miðbæinn, BT, Glerártorg þar var nú ýmislegt keypt, við fórum er þær höfðu boðið upp á kaffi á Talíu, í ódýru-búðina þið vitið sem allt kostar það sama, komst að því að það er hægt að gera frábær kaup þar, keyptum margt sem við ætlum að prufa. Stelpurnar gáfu afa sínum nike bol rosa flottan, og sokka þrenna í pakka, bara flott.
Hittum Unni Maríu, barnabörn hennar og Helgi var með þau ætla að koma bráðum í heimsókn.
Hittum síðan Gunna, hann er fyrrverandi maður frænku minnar og hef ég ekki séð hann í nokkur ár, konan hans Elva var með og afréðum við að þau kæmu nú einhvern tímann í heimsókn.
Fórum í Húsasmiðjuna, eða Blómaval réttara sagt og það endaði með að þær komu út með hamstur einn hvítan og flottan, búr og allar græjur, hélt að þær væru komnar yfir hamsturtímabilið, en aldeilis ekki.
Nú aftur niður í bæ og þær þræddu búðirnar og fengu loks eitthvað á sig, en ekki það sem þær voru að leita að, svona þykkar Nikita það kemur seinna.
Þá var farið í Bónus að versla og síðan buðu þær okkur á Greifann að borða, við fengum okkur pitsu sem heitir nautabaninn og við vorum að spring, maður var svo sem ekkert svangur fyrir.
Þegar við komum út þaðan þá var farið í Hagkaup, en ég beið úti í bíl á meðan, síðan brunað heim.
Komum aðeins við hjá Millu og ljósunum og svo sé ég rúmið mitt í hillingum núna.
Góða nóttina ljúflingarnir mínir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Verð að segja ykkur smá brandara.
18.8.2009 | 10:48
Síminn hringdi og það var Dóra mín, hún tjáði mér að það væru tvær litlar stelpur sem langaði svo til Akureyrar, nú já og hvað ætla þær að fara að gera,? auðvitað að versla.
Guðrún Emilía kemur í símann og ég spyr:,, Ætlar þú að kaupa pels handa ömmu, nei ekki tel ég það,
af hverju ekki segi ég, þú ættir nú að vita svarið segir hún, er það að því að ég er svo feit sagði ég,
nú finnst þér þú vera feit, ég var nú meira að hugsa um að þeir væru komnir úr tísku."
Þær geta drepið mig þessar elskur sem ég á.
Auðvitað er ég á leiðinni á Eyrina með englana mína, þær hafa nú sama og ekki neitt verslað sér í sumar svo tími komin á smá eyðslu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sjálfstæðismenn fyllast púkahætti.
18.8.2009 | 09:57
Sé þetta í anda, prúðbúnir sjálfstæðismenn pukrast með að láta stela hattinum hans Hallgríms.
Haldið þið nokkuð að það hafi verið að því að þeir móðguðust, nei hef ekki trú á því. Sé það ekki fyrir mér að þeir sem daga þessa nutu veisluhalda með vinum sínum á Flateyri hafi talað þannig að móðgað gæti nokkurn mann. Ef svo væri.
Eitt veit ég að þarna hefur verið fjör, og hvað er að því að leika sér svolítið, hattinn er ég viss um að hann fær aftur.
Til hamingju Illugi og Brynhildur.
![]() |
Hattinum stolið af Hallgrími |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allt í steik og volli volli.
17.8.2009 | 15:40
Sko ef tölvan hrynur þá hryn ég, en er að fá viðgerðarmann um helgina það þarf víst að uppfæra eitthvað, sko ekki veit ég hvað, en þangað til getur verið eitthvað rugl í gangi. Það virðist vera þannig að tölvan sækir ekki allt sem hún á að gera og þar af leiðandi birtist ekki allt sem á að birtast, svo ef ég ekki svara og þykist vera rosa merkileg (sem ég er, óje baby) þá vitið þið ástæðuna. Sko tölvan er biluð, eða sko ég er búin að ofnota hana, og svo þarf ég að kaupa nýjan disk er að verða búin með þennan.
Drepið mig ekki alveg, en frúin er búin að gera kæfu, þessa líka flottu kæfuna, fékk að sjálfsögðu hjálp frá Gísla mínum, en kæfan er komin í plastboxum niður í kistu. nú ætla ég að vera dugleg og baka eitthvað, allavega brauðin mín, geri það á morgun.
Má til með að segja ykkur eitt, haldið ekki að ég sé komin með hann GULL Pétur, sko ég meina að ég sé búin að breyta yfir í risa GULL og þá verður nú gaman, því ekki er ég þolinmóðasta gellan norðan heiða, svo með nýju háhraðatengingunni þarf ég aldrei að stappa niður fótum og ARG.
Knús knús á alla konur og karla.
Milla í stuði tuði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hvað með þau yngri.
17.8.2009 | 07:49
Tel þetta ekki rétta niðurstöðu þar sem ekki er rætt við yngri börn, ég veit dæmi þess að börn eru með áhyggjur og tala mikið um þetta bæði sín á milli og við sér eldri.
Allar áhyggjur sem börn og fullorðnir hafa skapa á endanum óhamingju á einhvern hátt, og eitt skulu allir vita að það kemur eigi rétt svar út úr einhverri könnun, engin opnar sig svo gjarnan í þeim, og þær sína ekki langtíma áhrif hjá fólki.
Það er einnig afar sterkt í okkur íslendingum að vera dugleg og láta ekki bugast, en á endanum verðum við að horfast í augu við að herða þarf sultarólina, þó við látum ekki bugast.
Er sú staða kemur upp þá þarf að tala við elsku börnin, sko alveg upp í 18 ára og gera þeim grein fyrir ástandinu, en fyrir alla muni, ekki gera þau hrædd þetta er bara ástand sem engin almúgi ræður við, og mikil þörf er á að allir vinni sig saman út úr, en að sjálfsögðu bitnar þetta mest á foreldrum sem verða að takast á við sjálfan sig til að geta verið róleg við börnin.
Veit ég einnig um margar fjölskyldur sem höfðu það "svo" gott, afneituðu ástandinu, en eru að vakna til lífsins með það núna að þau eru aðilar að samfélaginu og þó skuldir séu ekki miklar þá hækkar allt, vinnan minkar, og þau verða að viðurkenna að þau eru með í pakkanum.
Hvet alla til að vinna saman að velferð barna okkar sem eru að byrja í skólanum, sem oft er erfitt og veldur áhyggjum sem þau ættu ekki að þurfa að hafa. segið börnunum ykkar að allir séu jafnir, hvernig sem þau eru klædd.
Verst er að þeir sem þyrftu nauðsynlega að lesa þetta, gera það ekki, telja þetta eigi ekki við sig.
Kærleik til ykkar allra
Milla.
![]() |
Hamingjan jafnmikil og hún var fyrir kreppuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Letidagur.
16.8.2009 | 19:32
Og það er sko í lagi, ekki þurfum við að gefa börnum að borða eða neitt slíkt. Fórum nú samt á fætur í morgunmat og sjæningu, eigi gleymdi ég að fara aðeins inn á bloggið og facebokk, en bloggið hjá mér er eitthvað skrítið það koma ekki inn myndir og eða bannerinn fyrir ofan komenntin þeir halda hjá blogginu að þetta sé lélegt samband hjá internetinu, en hef nú ekki trú á því, mun tékka á því á morgun.
Undir hádegið komu þau Ásgerður og Finnur, en þau voru á tjaldstæðinu hér í nótt, fengum okkur hádegissnarl og spjölluðum, aðallega um gamla daga, mér finnst það svo skemmtilegt.
Þegar þau fóru lagðist Gísli minn í tölvuna og ég settist hér fyrir aftan hann og fór að sauma, og haldið ekki að ég hafi klárað engla sem ég var að gera í harðangur og klaustur, þeir eru yndislegir, á bara eftir að þvo og lakklíma. Ég tala um letidag vegna þess að þessi saumaskapur sem ekki er fljótgerður er sú mesta afslöppun sem ég fæ.
Við gamla settið sem alltaf erum með góðan mat og vorum með glæsilegt í grillinu í gær, fengum okkur bara pulsur í kvöldmatinn, nenntum ekki að elda, en eigum alltaf til pulsur að grípa í þó óþveri sé og mér er orðið hálf illt í maganum.
Fórum yfir byrgðir í kistunni í gær, og komst ég að því að tími er komin á kæfugerð, búið að safnast fyrir afgangsbitar, skólinn að byrja og þá er not fyrir kæfu.
Síðan þarf að sulta rabbbara, þarf einnig að gera chillý-hlaup, en byrja á kæfunni á morgun ef heilsan er góð, Gísli minn hjálpar mér að sjálfsögðu.
Góða nótt kæru vinir og líka allir hinir.
Milla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Frábær dagur.
15.8.2009 | 22:11
Það var grillveisla í dag, hún var haldin að Laugum og fékk Dóra leifi til að vera niður við Vallarhúsið. Blogghópurinn hér norðan heiða, var að hittast og grilla saman, en venjulega hittumst við svona yfir vetrartímann einu sinni í mánuði.
Dagurinn var frábær í alla staði og hér koma nokkrar myndir.
Við hittumst fyrst uppi hjá Dóru og fengum okkur kaffi.
þetta eru vinirnir Helgi sonur Unnar Maríu, Dóra og Neró.
Þetta erum víð nýuppgötvuðu frænkurnar Unnur María og ég
Ásgerður, Anna Guðný og Erna. Flottar.
Guðrún Emilía, sætasta ömmu sinnar.
Sigrún Lea sætasta ömmu sinnar, enda eru þær alveg eins.
Þær eru með tölvurnar frammi á gangi þar sem þær búa.
Hér sjáum við hópinn að mestu nema strákana, þeir voru bara
út á velli að leika sér, það er nú ekki amalegt að una sér í þessu
fagra umhverfi.
Það vakti mikla athygli þetta hýsalín sem hún Ásgerður bar utan á sér,
en reyndist vera þessi líka flotti hlífðarpoki.
Góða nótt kæru vinir og takk fyrir daginn.
Milla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Til hamingju austur Húnvetningar.
15.8.2009 | 08:59
Ja hérna maður hefur bara eiginlega ekkert heyrt um þessa staðsetningu á gagnaveri, en frábært og aftur til hamingju.
Vakna hjá mér spurningar, kemur þá ekki gagnaver á Suðurnesjum, eða er þetta viðbót við það?
Kemur kannski gagnaver einnig á Bakka við Húsavík, eða hvernig líður atvinnuuppbyggingu þar?
Jæja þetta eru nú bara svona forvitnis-spurningar, þetta kemur allt í ljós, sko hvort gagnaverin verði eins og refabúin hér á árum áður, nei þetta var nú djók.
Fagna allri vinnu sem kemur, það er hún sem kemur lífi aftur í allt gangverkið, sem eru við.
Það þarf bara að hugsa um alla landshluta.
Góða helgi.
![]() |
Talið líklegast að risavaxið gagnaver rísi á Blönduósi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Capsicum Annuum.
14.8.2009 | 19:50
Svona plöntu af náttskuggaætt fékk ég gefins í dag, hún heitir
Capsium annuum og er það samnefnari yfir allar tegundir af paprikum
og Chilli, ekki gat ég fundið neitt um af hverju, nema að þeir hefðu þróað
þessa tegund áfram, hversu lengi veit ég ekki.
Eitt veit ég að þetta er ómyssandi krydd í matinn.
Paprika (Capsicum annuum L.) er af náttskuggaætt (Solanaceae). Af öðrum nytjaplöntum úr sömu ætt má t.d. nefna kartöflur, tómat og eggaldin. Algengustu afbrigði hér á landi eru Ferrari sem er gefur græn aldin sem verða rauð þegar þau eru fullþroskuð, Bossanova sem gefur aldin sem fullþroskuð verða gul en eru græn fyrst og Boogie en aldin þess afbrigðis verða appelsínugul þegar þau eru fullþroskuð.
Googlaði á þetta hér að ofan, og að neðan
Sjáið hvað þetta er girnilegt þetta eru flestar þær tegundir sem
ræktaðar eru undir nafninu Chilli eins og við köllum það, ég hef keypt
mitt beint af bónda og er það náttúrlega það besta.
Í Capsicum annuum er mikil hollusta og lækningamáttur, kem kannski með
það síðar.
Mynd frá Indlandi.
Indverskur matur er þekktastur fyrir hve kryddaður hann er. Indland er ákaflega auðugt af kryddtegundum og nær ótæmandi möguleikar eru á samsetningu kryddblanda. Meðal helstu kryddtegunda í indverskri matargerð má nefna túrmerik, broddkúmen (e. Cumin), kórianderfræ, chili-pipar, negul, kanil, fennelfræ, sinnepsfræ og engifer. Styrkur kryddblöndunnar fer að mestu leyti eftir chili-magni.
Googlaði þetta einnig.
Bara að segja ykkur að ég nota mikið þessi krydd og þau eru bara
toppurinn í matartilbúningnum.
Yfirleitt er ég með blöndu af kryddi og dassa yfir salatið og matinn
allan, því ég vil hafa hann sterkan.
Farið vel með ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Súperkonan ég
13.8.2009 | 20:56
Já ég er það sko súperkona, sko í morgun ætlaði ég að vera svo dugleg, en komst ekki í sjæninguna fyrr en um 10 leitið, síðan hringdi ein vinkona mín og þið vitið nú hvernig það er ef maður talar sjaldan saman þá vill það enda í 2 tímum eða svo, jæja en samtalið var yndislegt.
Gísli minn var búin að klára gólfin, tók meira að segja fram vélarnar í vaskahúsinu, og einnig frystikistuna og frystiskápinn í kompunni, veitti nú ekki af, og þegar þessi elska var búinn setti hann í könnuna og ristaði brauð og þá akkúrat kom ég fram.
Við fengum okkur kaffi og brauð, enda var klukkan hálf eitt, fórum síðan upp í Tryggingarumboð hér í bæ, Gísli þurfti að tilkynna lækkun á lífeyrissjóðnum sínum og græddi heilmikið á því, þið vitið.
Og viti menn ég svona rétt í leiðinni athugaði hvað ég mundi fá í ellistyrk, því nú er sú gamla að fara á hann í desember. Ég lækka ekki neitt hjá Tryggingastofnun, en trúlaga eitthvað hjá lífeyrissjóðunum, ætla nú ekki að hafa áhyggjur af því núna.
Fórum síðan í búðir, mig vantaði svona ýmislegt, bæði til heimilisins og fyrir mig persónulega eins og gloss, vax í hárið og sitt af hverju.
keypti mér líka reykelsi, svona til að hreinsa húsið frá öllu leiðinlegu.
Milla mín og Aþena Marey voru hjá okkur í súpu og brauði, en Viktoría Ósk fór með vinkonu sinni og hennar fólki út í Flatey á Skjálfanda.
Milla fór í vinnu eftir mat svo ljósið sefur hjá okkur í nótt.
Er að byrja í sjúkraþjálfun á morgun eftir 5 vikna sumarfrí, hlakka til að byrja aftur.
Kærleik til ykkar allra
Milla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ljótt að sjá.
13.8.2009 | 16:51
Er ekki í lagi með suma, ég meina sko að aka bara næstum inn í Hamraborg bestu sjoppu á landinu.
Bíllinn á að stoppa fyrir framan gangstétt, svo það hefur aldeilis verið trukk sem bensíngjöfin fékk að fara upp á, og yfir gangstéttina, kannski var hann að leggja áherslu á eitthvað.
Jæja elskurnar mínar á Ísafirði, þið látið bara gera við í hvellinum, tryggingarnar borga.
Kveðjur til ykkar í Hamraborg
Milla.
![]() |
Ók á verslun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Léttar aukafréttir.
12.8.2009 | 21:25
Þetta er nú með eindæmum ruglað, ekki friður neinsstaðar, jæja hann Jón Jóns sem er forstjóri í fyrirtæki mínu, sem heitir Eftirhermu-pistlar, mjög vel rekið, skipulagt og með góða innkomu, þess vegna skil ég ekki af hverju ríkið yfirtók það og setti í rannsókn, nú þess vegna verð ég að setja Jón yfir í fyrirtæki mínu sem heitir Útrás í kjaftasögum og rógburði, hann verður fínn þar.
Viti menn, þeir tóku hann af mér og skipuðu hann í skilanefnd Eftirhermu-pistla.
Þá er að setja Siggu Jóns yfir í staðinn fyrir Jón Jóns í Útrás og kjaftasögum, henni mun ganga vel þar. Náttúrlega er ég stjórnarformaður í mínum fyrirtækjum, sem er allt í lagi á meðan ríkið er að rannsaka þau, því þeir tóku rétt í þessu til rannsóknar, Útrás og kjaftasögur, en Sigga Jóns kemur bara með mér í litla fyrirtækið sem ég á, það heitir Að búa til yfirmok, það er svona skítur sem mokaður er yfir almúgann, það fyrirtæki skilar einna mest í innkomu, því þið getið ekki ímyndað ykkur hvað margir falast eftir slíkri þjónustu og er ég bara á fullu í því að skipa fyrir og stjórna, hver á að fá, hvaða yfirmok í dag.
Ríkið var að hringja í Siggu Jóns og skipa hana í skilanefnd hjá Útrás og kjaftasögum, og tjáðu henni í leiðinni að þeir væru að yfirtaka, Að búa til yfirmok, nú þá er ég orðin ein eftir með nokkrar undirtyllur, en verð ekki í vandræðum fer bara að stunda svarta vinnu, eftirspurnin er þvílík eftir öllum þessum sora að eiginlega hlægilegt er.
Mest hissa er ég á að fólk skuli ekki getað bara komið hreint fram, sagt sannleikann og hætta þessum feluleik, nei endilega nota lygina og yfirmokið. Fela sig á bak við önnur nöfn og láta aðra bera ábyrgðina á sínum gjörðum.
Ja hérna ríkið var að hringja og skipa mig fyrir öllum skilanefndunum, fyrir það fæ ég góðan pening svo ég mun sinna því starfi í aukavinnu.
Góða nótt og sofið rótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Saga dagsins í dag.
11.8.2009 | 22:05
Víð sváfum nú bara til átta í morgunn, kannski eðlilegt eftir hrakfarir gærdagsins, en ég segi frá þeim á facebokk.
Nú eftir sjæningu og morgunmat byrjuðum við að undirbúa daginn, en þau voru að koma Fúsi minn og Solla með englana mína, sem eru þrír, þau voru að koma af Króksmótinu, en voru með íbúð á Akureyri. Gísli fór um hádegið að ná í Dóru og englana mína fram í Lauga, síðan komu Milla og englarnir mínir þar, sko ég á marga engla og voru 7 af þeim hjá mér í dag ásamt Ingu mömmu Sollu og Bjarna manni hennar, sem eru góðir vinir okkar, Ingu þekkti ég áður en börnin okkar náðu saman, við vorum báðar upp í flugstöð og er Inga enn að vinna í Fríhöfninni.
Nú eins og gengur er fólk kemur út á land þá þarf að fara í búðir og það gerðu þær svo sannarlega og mikið var verslað, enda útsölur á fullu og haustvörurnar komnar að einhverju leiti.
Matur er mannsins meginn eins og þar stendur ritað og borðuðum við afbragðs kvöldmat, það voru steikt læri, krydduð með Ítölsku kryddi frá nomu, kartöflusalat með sólþurrkuðum tómötum, rauðlauk, papriku, salti og pipar bleytt vel í með sesamolíu, síðan var ferskt salat úr garðinum hjá mér í því var hvítur laukur, steiktir sveppir, plómur, gullostur vel þroskaður, tómatar sem búið var að taka gumsið innanúr, salt og pipar og ekki má gleyma sósunni sem var bara æði að vanda, þá steiki ég sveppina úr smjöri set síðan teninga og paprikukrydd vel af því þykki smá með sósuþykkni.
Á eftir var eðalkaffi frá Kaffitár með heimalagaðri marengs tertu, á milli voru ferskjur, kókósbollur, rólló og þið getið bara ímyndað ykkur hvað þetta allt hefur verið gott.
Maður verður einnig að taka vel á móti fjölskyldunni sinni því við fáum ævilega topp móttökur er við komum í Njarðvíkurnar og Keflavíkina, enda þekkir maður helminginn af Suðurnesjabúum og æðislegt að hittast og rifja upp gamlar minningar.
Við erum líka nýbúin að vera hjá þeim og það var æði.
Þau fóru svo öll Fram í Lauga með Dóru og ætluðu síðan til Akureyrar og heim á morgunn.
Takk elskurnar mínar fyrir að vera til, ég elska ykkur öll.
Og nú erum við gamla settið að dólast, uppþvottavélin búin að þvo tvisvar, mér heyrist Gísli vera að setja dúkinn á borðstofuborðið sem hann setti þvottavélina áðan, gott að vera með svona flauils dúka ekkert að strauja og svo er það líka smart.
Jæja er hætt í bili og góða nótt allir
ættingjar og vinir.
Milla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hvað gerir hvað að verkum.
9.8.2009 | 09:28
Hef oft leitt hugann að því hvernig sumt fólk er, það er hreinlega ekki í okkar heimi, egóið er svo mikið að það nær aldrei ofar en eitthvað vist, það versta við þessar persónur að þær telja allt sem þær gera vera rétt og fullkomið.
Hef oft hugsað,og ég tel að á hverri mannsæfi fæðist fjöldin allur af fólki sem mun aldrei ná fullkomnun í þroska og þar af leiðandi ekki í velgengni, ást eða hverju því sem þarf til fullnægingar í lífinu.
Ætli þetta sé uppeldi að kenna, nei ég tel það ekki vera, þó ég vilji ekki alhæfa neitt um það, hreinlega að því að ég hef ekki vit til þess, en skoðið suma systkinahópa öll nema eitt eru með venjulega hugsun, þetta eina er svona eins og ég er að tala um, bara allt öðruvísi.
Skal stíft tekið fram að ég er ekki að tala umþá sem eru með skerðingu á einhvern hátt.
Þarna gæti komið til á ungaaldri, ótti, ástleysi, óöryggi sem allt skapar lágt sjálfsmat, fólk fer að reyna í einfeldni sinni að vera meiri en aðrir, þegar fólk geri það kemur það ætíð í bakið á fólki.
Ef við tölum bara um okkar tíma fólk sem aktar svona þá teljum við okkur hafa orðið vel fyrir barðinu á því og er það mikið rétt.
Þessi hópur fólks sem um ræðir fær sýnar fullnægingar út úr: ,, mikilmennsku, barsmíðum, kynlífi,að verða ríkir á kostnað annarra,fer út í að svífast engis því þetta fólk telur sig vera fullkomið og skilur ekkert í útásetningum fólks, ekki ætlar það að skaða neinn,það veit bara ekki betur.
Þeir sem verða ríkir og eru á hærra plani, verða samt ríkir á löglegan kostnað annarra.
Þú stofnar fyrirtæki og verður ríkur á hagstæðum samningum og því lága kaupi sem vinnumaðurinn hefur, en án hans gætir þú ekki orðið ríkur. Er það ekki vist siðleysi?
Þannig að það er afar teygjanlegt hugtak á hverju menn verða ríkir, enda ætla ég ekki út í þá sálma hér, og er ekki að mæla neinum bót.
Ég veit um fólk sem er bara ríkt af sjálfum sér og hvað það hefur fram að færa til annarra, selja sína visku, en þroskast aldrei upp úr því plani sem það er á, akkúrat vegna þess að allt er rétt sem það gerir og segir, þar af leiðandi fullkomið. Get sagt ykkur að það er ekki mikið hægt að ræða við svona fólk, það kann bara að ræða um sjálfan sig, frekar leiðinlegt.
Ég er víst að tala um þá sem einu orði kallast siðblindir, en þeir vita bara ekki betur.
Og eitt er á tæru að við vitum ekki endanlega hvernig allt fer.
Ætla einnig að segja að við erum ekki dómarar.
Látum okkur líða vel með það sem við segjum.
Tökum létt á málum, við breytum engu.
Kærleik til ykkar allra.
Milla
Bloggar | Breytt 10.8.2009 kl. 07:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Til hamingju með daginn.
8.8.2009 | 19:00


Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu áætlar að þátttakendur í Gleðigöngunni í ár séu ekki færri en í fyrra. Það þýðir að a.m.k. 70-80 þúsund manns hafi tekið þátt.
Þetta eru æðislegar fréttir fjöldinn er þetta mikill þrátt fyrirallt sem um er að vera úti á landi.
Stærsta gangan til þessa
Þetta er stærsta gangan til þessa hvað varðar fjölda skipulagðra atriða, en þau eru alls 35 talsins. Það segir manni að Reykvíkingar hafa ekki gefist upp á Hinsegin dögum og Hinsegin dagar hafa heldur ekki gefist upp á Reykjavík þó þeir séu nú haldnir í ellefta sinn," segir Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Hinsegin daga þegar blaðamaður mbl.is náðu tali af honum rétt fyrir klukkan tvö í dag.


Flottar myndir hér að ofan.
Hann var þá staddur á Hlemmi þaðan sem gangan lagði af stað kl. 14 og sagði nokkur þúsund manns þegar vera mætta. Alls tóku 70-80 þúsund manns þátt í göngunni í fyrra og segist Heimir verða mjög sáttur ef svipaður fjöldi mæti aftur í ár. Spurður hvort hann óttist að örfáir rigningadropar geti dregið úr aðsókninni svarar Heimir því neitandi og bætir við: Það er ekkert af veðrinu eins og er. En ef hann fer að rigna þá segjum við bara eins og Helgi Björns: Mér finnst rigningin góð" og látum hana ekki setja strik í reikninginn," segir Heimir. Bendir hann á að eitt árið þegar gangan fór fram í úrhellis rigningu hafi engu að síður 25 þúsund manns mætt.
Það skiptir ekki máli þó rigni, fólk hefur gaman og skemmtir
sér vel og þá er allt í lagi.
Aftur til hamingju.
![]() |
Stærsta gangan til þessa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)